Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Page 57

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1968, Page 57
59 afsannað ummæli sín og áhugaleysi varðandi kúna og at- burðinn í sambandi við hana. Jónas notaði myndina af Búkollu minni á mjög frum- legan hátt. Hann bjó til jólakort, og límdi myndina þar á og sendi hlutaðeigandi læknum ásamt nokkrum orðum og innilegum jólaóskum. Auðvitað hefði ég átt að gera þetta, en gat bara ekki dottið það í hug, en Jónasi er ég þakklátur fyrir hugmyndina, því að það skapar skemmtileg endalok sögunnar. Landlækni skrifaði hann á þessa leið: „Búkolla í Villingadal sendir yður hér með mynd af sér ásamt kærri kveðju og innilegri þökk fyrir þá ómetanlegu hjálp, sem þér, ásamt þrem undirmönnum yðar veittuð henni, þegar henni reið mest á síðastliðið sumar, er slys hafði að höndum borið. Búkolla er nú orðin heil heilsu og gegnir hlutverki sínu aftur eins og ekkert hafi í skorizt. Bréfritarinn sendir yður hér með innilegar óskir um gleðileg jól“. Undir þetta setti hann signet sitt, sem hann segir, að sé lítt læsilegt, öllum, nema sjálfum sér. Þetta er að vísu ekki rétt hjá honum, en þó virðist sem það hafi valdið landlækni nokkrum heilabrotum, hvaðan þetta jólakort væri komið, en er hann hafði leyst þá gátu, skrifaði hann Jónasi eftir- farandi bréf: „Með innilegu þakklæti fyrir óvenjulegt jólakort og kveðju. Það hefur verið jólagetraun á heimili mínu frá hvers stands persónu mér hefði borizt fágæt jólakveðja og óvænt lausn vakið mikla gleði ungum og gömlum. Eg bið fyrir alúðar kveðjur og beztu nýársóskir til fólks og fénaðar í Villingadal. Viðkoman þar varð mér minnisstæðust úr hringferð minni umhverfis landið á síðastliðnu sumri, enda hafði ég orð á því, er heim kom, að á þeim eina stað hefði ég viljað verða eftir. Kortið er ekki eingöngu skemmtilegt, heldur er fregnin um, hve vel tókst til um spena Búkollu, uppörvandi fyrir mann í minni stöðu, sem er vanastur því, að það, sem í er vasast og bezt á að duga, geri annaðhvort að stíflast eða leka. Með beztu kveðjum og nýársóskum. Vilmundur Jónsson".
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.