Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1945, Page 91
Nýung í íslenzkri bókagerð
Á árunum milli heimsstyrjaldanna voru
nokkrar íslenzkar bækur ljósprentaðar í
Þýzkalandi, þar á meðal þjóðsögur Jóns
Árnasonar, sem gefnar voru út á vegum
Sögufélagsins. Einnig voru endurprentað-
ar með þeim hætti nokkrar kennslubækur
o. fl.
Árið 1933 hóf Ejnar Munksgaard, for-
lagsbóksali í Kaupmannahöfn, útgáfu rit-
safnsins Monumenta typographica Island-
ica, en það eru ljósprentaðar útgáfur af
gömlum íslenzkum hókum prentuðum. —
Hafði hann gefið út fimm bindi, er styrj-
öldin skall á: Nýja testamentið frá 1540,
Passio Corvins frá 1559, Guðspjallabók
1562, Jónsbók 1578 og Vísnabók Guð-
brands biskups frá 1612. Síðan hefur bætzt
við 6. bindið: Gronlandia Arngríms lærða
frá 1688.
Hér á landi hefur eigi verið unnt að fá
bækur ljósprentaðar fyrr en á allra síðustu
árum. Það mun hafa verið árið 1938, að
stofnað var til fyrirtækis í þessu skyni hér
í Reykjavík og var það nefnt Lithoprent.
Stofnendur voru Einar Þorgrímsson, núver-
andi forstjóri og eigandi Lithoprents, og
Guðmundur Jóhannsson prentari. Starf-
semi þessi hófst í smáum stíl og með ó-
fullnægjandi tækjum, en hefur smám sam-
Einar Þorgrímsson er jæddur að Borgum í Nesj-
um í Hornajir'Si 15. júní 1896. Voru joreldrar
hans Þorgrímur lœknir Þórðarson, síðast í Kejla-
víkLog kona hans, Jóhanna Knudsen. Hann dvaldist
alllengi í Vesturheimi, en stojnaði Lithoprent
skömmu ejtir heimltomu sína.
an færzt í aukana og er nú löggilt iðngrein
hér á landi. Hefur Lithoprent nú aflað sér
góðra véla til þessarar starfsemi og eru
þegar komnar út á vegum þess ljósprent-
anir ýmissa merkra bóka og er frágangur
allur hinn vandaðasti.