Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 12

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 12
12 HARALD L. TVETERÁS Mikil þjóðleg sönghátíð var haldin þar þessa daga, og Björnson var aðalmaðurinn, átrúnaðargoð stúdentanna með skáldalaun Stór- þingsins upp á lífstíð. Ibsen átti sem fyrr í erfiðleikum með sig, og Björnson varð strax Ijóst, að það yrði að gera honum eitthvað til uppörvunar. Með hjartahlýju tók hann að lofsyngja vin sinn í ræðum og á mannamótum. Avöxtur þessara heitu sumardaga varð fyrsta fullmótaða leikrit Ibsens, Konungsefnin, vort ágætasta söguleikrit, eins og það er kallað. Það var samið á hálfum öðrum mánuði. Björnson hélt áfram að styðja við bakið á vini sínum. Hann efndi til samskota handa Ibsen til að afla honum farareyris til útlanda. Hann studdi hann og styrkti á allan hátt. Það var á þessum áfanga æviskeiðsins, sem Ibsen varð fullkomlega ljóst, að hann yrði að sætta sig við þær andstæður, sem bjuggu í skapgerð hans. Sumt í fari sínu var honum ógeðfellt, en hann fann þó, að það var mannlegt. Hann næði því aldrei að vera jafnheill og Björnson. En einmitt í slíkum andstæðum fann hann sjálfan sig, orkulind sína sem skapandi listamaður. Hinn mikli boðberi nýrra siða, sem hann var innra með sér, átti í stöðugri baráttu við efasemdamanninn og óbil- gjarnan uppreisnarsegg. Hann samdi Brand til að aga og styrkja sjálfan sig og norsku þjóðina. Það var einmitt um sama leyti, að Prússar gerðu áhlaup á Dybböl, og hann skammast sín fyrir, að Norðmenn og Svíar skyldu ekki koma Dönum til hjálpar. ,,Brandur“ byggir á því, sem segja mætti, að standi ofar daglegu lífi mínu, skrifar hann seinna. Til að setja skýrt fram, hver hann sjálfur væri og hver hann vildi vera, breytti hann skyndilega útliti sínu í Rómaborg. Fram að þeim tíma hafði hann hirt lítið um klæðaburð sinn, enda oftast gengið fátæklega til fara. Nú klæddist hann eftir ströngustu tízkukröf- um heldri manna, svörtum lafafrakka, sem varð upp frá því eins konar einkennisbúningur hans. Jarpa alskeggið, sem hann hafði áður falið andlit sitt á bak við, var klippt og snyrt og gert að brúskmiklu vanga- skeggi, svo að kröftug hakan fékk betur að njóta sín. Hann breytti um rithönd. Hún hafði verið létt og losaraleg, vel til þess fallin að hripa niður hjá sér hugdettur í flýti, en nú varð hún stílhrein og ósveigjanleg líkt og með henni væri lýst yfir, að það sem skrifað væri skyldi standa óhaggað. I raun og veru fólst ný lífsstefna í breyttu útliti hans. En sýnilega hafði hann ekki ennþá haldið stefnu sinni svo eindregið fram, að hún hefði hlotið viðurkenningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.