Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 44

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 44
44 JÓN STEFFENSEN bráðlega. Það má ætla, að það hafi orðið að samkomulagi með þeim að hinkra við með greiðslu, þar til séð yrði, hvort bærust frá rentukamm- eri fyrirmæli um frekari greiðslu til Sveins, og stiftamtmaður heitið að sjá til, að þær yrðu inntar af hendi, en jafnframt hefur hann ráðlagt Sveini að sækja um lektorsstöðuna. Ólafi hefur eflaust verið ljóst, að hér var hann að troða beiskum bita ofan í Magnús son sinn, en þar sem þeir feðgar stóðu í miður vinsælum aðgerðum gegn Skúla, væri ekki á þær bætandi augljósu lögbroti á Sveini, sem auk þess var náinn vinur Stefáns sonar Ólafs og einnig fyrrum tengdasonar hans, Hannesar biskups Finnssonar, og þess vegna æskileg sem friðsamlegust lausn þessa máls. Að stiftamtmanni hafi borizt frá rentukammeri beiðni um enn eina greiðslu til Sveins, má ráða af því, sem hann ritar í dagbók sína 10. júlí 1794: bbr [bréf] frá Rentek[ammer] og N[aturhistorie] Sfelskabet]. Þess verður ekki vart, að Eldrit Sveins beri nokkru sinni á góma í dagbókum hans á árunum 1795 -1799, en tvívegis er þess getið, að hann láni journal ársins 1794, og má þá vera, að honum hafi fylgt Eldritið, hafi verið líkt gengið frá því og nú er í ÍB. 3 fol. í ágústyfirliti Dagbókar 1797 segir: „Den Reisende Thorlacius [Þórður Thorlacius, f. 1774] besögte mig d. llte, ham laant minjournal for 1794,“ og 13. nóvember 1799 stendur: „Profastr [Gísli Þórarinsson, f. 1758] hér etc. honum led min Reisejournal pro 93-4.“ Nú kemur stór eyða í dagbækur Sveins eða öll árin 1800 - 1805, en 1806 er þessi athyglisverða frásögn í þeim 8. ágúst: „Kom hingað B[jarni] m[inn] Thorarensen, H[ei]m kominn um m[or]g[uninn] den 6te reid med honum ad Hlídarenda.“ og 8. sept.: ,,Skr[ifadi] B[iarna] Thorarensen frá Oddg[eirs]h[ólum] með Eldskrifinu.“ Bjarni skrapp þetta sumar frá námi í Hafnarháskóla í stutta heimsókn til foreldra sinna á Hlíðarenda, en um það leyti er Sveinn Pálsson önnum kafinn við bólusetningu og lækningar, þannig dvelst hann í Arnessýslu sam- fellt frá 18. ágúst til 11. september ýmist hjá séra Eggert Bjarnasyni á Klausturhólum, sem var að eignast erfingja, eða hjá Steindóri sýslu- manni Finnssyni á Oddgeirshólum. Svo virðist sem Sveini hafi verið í mun að koma Eldskrifi sínu á Bjarna áður en hann færi aftur til Kaupmannahafnar og í þeim tilgangi hafi Sveinn tekið með sér journal ársins 1794 í Arnessýslu að fá hreinskrift af Eldritinu, sem hann gæti komið á Bjarna, þegar hann færi til skips sennilega á Eyrarbakka. Hér er sýnilega komið IB. 23 fol., sem Sveinn er að keppast við að gangafrá, ef Bjarna mætti auðnast að fá einhvern í Höfn til að gefa það út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.