Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Blaðsíða 35
RITUNARTÍMI ELDRITS SVEINS PÁLSSONAR KIRURGS
35
faaer med saa meget andet beroe til næstk[ommende] Efter Aar“ (ÍB.
7 fol.), og í bréfi til félagsins dags. 20. maí 1795 (ÍB. 7 fol.) segist
Sveinn loks vera búinn að ljúka ritgerðinni ,,om de Isl[andske]
Isbiærge“ og sendi því hana. En ég hef ekki getað fundið í bréfum til
Naturh. Selsk. eftir 20. maí 1795, að Sveinn sendi því Éldritið, og tel, að
úr því hafi aldrei orðið, annars hefði það eflaust fylgt Ny kgl. saml. 1094
b foí. (Jöklaritinu) í bókhlöðu konungs. Það mun engu að síður rétt, að
Eldritið hafiverið til í upphaflegri gerð 19. maí 1795, gerð, sem varekki
eins og hinar prentuðu útgáfur þess (Sveinn Pálsson 1881 og 1945),
það leiðir athugun á handritunum ÍB. 3 fol. og ÍB. 23 fol. í ljós, sem nú
skal rakin.
ÍB. 3 fol. er ritað með dökku bleki með fljótaskrift og hendi Sveins.
Það er með breiðri spássíu vel helming blaðbreiddar með mörgum
spássíugreinum rituðum með sama dökka blekinu og að auki fáeinar
ritaðar með ljósara bleki, en allar með hendi Sveins. ÍB. 23 fol. er ritað
með æfðri hendi með ljósara bleki, stærra letri, meira línubili og minni
spássíu en IB. 3 fol., og hafa allar spássíugreinar þess með dökka
blekinu verið teknar upp í meginmál ÍB. 23 fol., sem er ekki með hendi
Sveins. I þessu handriti eru fáeinar spássíugreinar, allar með hendi
Sveins og allar þær sömu og voru með ljósa blekinu í ÍB. 3 fol., og mjög
áþekku bleki.
Titill Eldritsins í IB. 3 fol. er: Tillæg/ Til Beskrivelserne over den Volcan,
der / brœndte i Skaþtafells Syssel Aar / 1783 / Samlet ved en Reise i Egnen i
Aarene 1793 og 94 með et Kaart. Samlet og áfram, er spássíugrein með
dökku bleki. Höfundar er ekki getið, og er það hliðstætt Jöklaritinu, þar
er hans ekki heldur getið, hvorki í IB. 2 fol. (Sveinn Pálsson 1945, 422)
né í Ny kgl. saml. 1094 b fol. (Sveinn Pálsson 1882, 20), sem mun það
samrit af Jöklaritinu, er Sveinn sendi Naturhistorie Selskabet.
Titill Eldritsins í IB. 23 fol. er: Tillæg/ Til Beskrivelserne overden Volcan
der/brændte i Skaptafells Syssel Aar/1783/Samlet ved en Reise i Egnen, Aarene
1793 og 94 / med et Kaart. / af / Distrikts Kirurg Svend Paulsen. / Síðustu
tveim línunum er bætt við með hendi Sveins.
Spássíugreinar með ljósu bleki í IB. 3 fol., sem skipta máli fyrir
tímasetningu ritgerðar, eru: \den anden K. M. Laugmand i Nord- og
Vesterlandet] nu Justitsraad og Justitiarius i Islands Overret (bls. 90, Ind-
ledning. Utan hornklofa er spássíugreinin).
[hvilket alt nærmere beskrives í min\ til detforrige Naturh. Selskab forlængst
bortsendte, men saavidt mig er bekiendt hidtil utrykte [Afhandling over de
Islandske Jökler] (bls. 148, gr. 15).