Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Side 49
ÞORLEIFUR JÓNSSON
Rit Eggerts Ólafssonar
um trúarbrögð fornmanna
Hinn 20. júní 1978 keypti Landsbókasafn latínurit, sem Eggert Ólafs-
son tók saman á árunum 1750-51 um trú norrænna manna að fornu.1
Þetta er eiginhandarrit höfundar, en það var aldrei gefið út prentað, og
ekki er kunnugt um uppskriftir af því. Kaupin áttu sér nokkurn að-
draganda, og verður þeirra getið í skýrslu Landsbókasafns síðar í þessu
hefti. Hér verður sagt frá ritinu í stuttu máli og efni þess kynnt.
Handridð af Theologiae gentilis historia er 140 tölusettar blaðsíður að
stærð, bundið (eftir að það var skrifað) í brúnt skinn og gyllt á kjöl. Það
er snyrtilega skrifað með athugasemdum neðanmáls, og efni er rakið
jafnharðan á spássíu. Verkið er samið í Kaupmannahöfn, eftir að
Eggert kom úr Islandsferðinni haustið 1750, og formálinn er dagsettur
26. janúar 1751. Óljóst er um feril þess í upphafí eða þar til árið 1812,
að það er í eigu Gríms Thorkelín leyndarskjalavarðar. Hann gefur það
svo í safn Strangfords lávarðar (1780-1855), sem starfaði í utanríkis-
þjónustu Breta á sinni tíð, var m. a. sendiherra þeirra í Svíþjóð á
árunum 1817-19, og var áhugamaður um bókmenntir.2 Ur Strang-
ford-safninu barst það svo í bókasafn Sir Thomas Phillipps
(1792-1872) og var boðið upp ásamt fleiri ritum úr því safni í London
árið 1977.
Lengi hefur verið kunnugt, að Eggert Ólafsson setti saman verk um
norræn trúarbrögð, þó að ekki væri vitað til, að það heíði varðveitzt.
Steingrímur Jónsson síðar biskup gerði lauslegt efnisyfirlit yfir veru-
legan hluta þess (§§ 1-240), og barst það Landsbókasafni með hand-
ritum hans (Lbs. 240 4to). Líklegt er, að Steingrímur hafi lesið ritið á
árunum 1803-4, en þá vann hann fyrir Grím Thorkelín, m. a. að
þýðingu Gulaþingslaga á latínu.
Eggert hefur ritið á formála til lesarans (bls. 3-8), þar sem hann
gerir grein fyrir tilurð verksins og lýsir efni og efnisskipan. Fram
kemur, að hann hafði stefnt að því að halda áfram að skrifa Enarrationes,
en fyrsti hluti þess verks kom út árið 1749 og vakti þá nokkra athygli.
4