Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Side 93

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1979, Side 93
LANDSBÓKASAFNIÐ 1978 93 sjást á yfirborðinu í vefnaðinum nokkrir einstakir þættir, er lífga upp á teppið og styrkja það. Hér skiptast á þykkir og þunnir þræðir, ullar- þræðir, nylonþræðir, málmþræðir. Listakonan hefur jafnmikið yndi af mögnuðum litaandstæðum og hinum gráu litum - allt frá næstum hvítu til dökkgrárra lita. Um hið óhlutlæga verk sitt segir Synnpve Anker Aurdal: „Ég hef haft í huga hafið, hið þýða hljóð þess, hreyfmgu og hrynjandi, en þó fyrst og fremst leiðir skáldskaparins milli íslands og Noregs. Ætlunin er og að sýna hin gagnvirku og uppörvandi áhrif, sem þjóðirnar hafa svo lengi haft hvor á aðra.“ Gildi skáldskaparins er undirstrikað í þeim tilvitnunum úr fornum verkum og nýjum, sem ofnar eru í teppisrendurnar. Synnpve Anker Aurdal kemst svo að orði um vefnaðarlistina: „Pað er að mínum dómi sérstakt um vefnaðarlistina, að hún er sterkar bundin en aðrar listgreinar við þau þröngu mörk, er veftæknin setur henni. Engu að síður hefur maður mikið svigrúm til að koma sjálfum sér og hugmyndum sínum á framfæri bæði í efni, formi og litum. Endurnýjunin felst líka í því, að maður leitast stöðugt við að fá sagt hið persónulega, hið einstaklingsbundna, hvað sem allri hefð og svo- kölluðum stefnum tímans líður.“ En á öðrum stað orðar hún þetta svo: „Hefð er ekki aðeins eitthvað gamalt, heldur einnig eitthvað nýtt, sem stöðugt er verið að skapa. Hefðina verður að rjúfa til þess að endurnýja hana í takt við slagæð tímans, möguleika og hugsunarhátt.“ Synnpve Anker Aurdal nam fyrst í vefskóla í Lillehammer, en síðar við Statens kvinnelige industriskole í Ósló. Hún hélt fyrstu sýningu sína 1941, en síðan eru sýningarnar orðnar mjög margar, bæði einka- sýningar og samsýningar. Henni hefur verið falið að vefa meiriháttar verk, sem nú prýða m. a. Hákonarhöllina í Björgvin, Konserthuset í Ósló, ráðhúsin í Björgvin og Asker o. fl. o. fi. I norskri blaðagrein um teppið, er birtist í Adresseavisen í Þránd- heimi 15. marz 1978, segir Gudny Berg Braa meðal annars: „Það er engin tilviljun, að Synnpve Anker Aurdal var valin til að vinna það verk, er verða skyldi þjóðargjöf Norðmanna til Islands á 11 alda afmælinu. Hún hefur greinilega haslað sér völl sem einn fremsti vefari á vorum dögum, talar þar sínu máli, á sinn eigin stíl, sem fellur ekki einungis eðlilega inn í hið nútímalega umhverfi, heldur mun lifa og skipa Synnöve Anker Aurdal á bekk með hinum mestu myndvefurum við hlið Hannah Ryggen. Teppi hennar er ekki aðeins táknrænt meistaraverk 6 X 2 m að stærð, heldur finnum við, að henni hefur tekizt það, sem hún ætlaði sér:

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.