Frjáls verslun - 01.06.1942, Side 10
uð fleira. Ýmsum sveitakonum og öðrum kynni
ef til vill, að þykja gaman að sjá reikninginn,
hann hljóðar þannig:
Frú Sigrún Sigurðardóttir í Unaðsdal
Debet
Kr. aur.
ál. fjórbreitt línlakaléreft 1/60
ál. Dowlas (hvítt léreft) 0/16
ál. do.
ál. do.
ál. do.
ál. do.
ál. do.
do.
do.
do.
do.
do.
0/20
0/22
0/25
0/30
0/32
50
70
70
70
70
70
70
24 ál. tvistau 0/40
100 ál. af millumskyrtutauinu góða 0/25
50 ál. do. 0/28
40 ál. hv. og sv. shirting 0/25 .
40 ál. millumfóðurstrigi 0/25 ...
20 ál. grátt watterproof 1/50 . .
20 ál. sirz 0/20 20 ál. do. 0/22 .
3 ullarsjöl ný munstur 25/00 20/00
26/00
25 ál. millumverk 5/0/25 10/0/28
5/0/35 5/0/40
4 kefli skúfatvinna 3/75 ............
12 ál. hvítt borðdúkatau 1/70 (11 kv.
breið)
12 ál. do. 1/50 (2(4 al. á breidd) ...
3 borðdúkar 2/50 1 damasksd. 3/75
15 ál. svört silkibönd 0/55 ..........
15 ál. do. 0/65 ......................
12 ál. tvíbreiðum sængurdúk 2/00 ....
12 ál. do. 1/65 ........
24 ál. yfirsængurver 0/50 ............
20 ál. blátt hálfklæði í reiðföt 1/80
2 reiðhattar með punti 5/00 ........
4 reiðtreflar 1/25 .................
100 ál. hv. gardínutau 25/0/15 25/0/28
25/0/35 25/0/40
6 lífstykki 3/2/00 3/1/50 .......
20 ál. blátt drengjafataefni 1/35 ....
24 ál. svuntutau með silfurlit 0/35 . .
24 ál. svart silkitau 1/70 ...........
24 ál. brúnt svuntutau 1/20 ..........
24 ál. gult do. 0/55 .................
40 ál. línlök með vaðmálsvend 0/70 ..
6 kommóðudúkar hv. 3/1/00 3/1/50
12 ál. borðvaxdúk 6/1/00 al. 6 do. 0/90
60 ál. af vaxdúknum breiða 1/10 ....
3 dúsin do. do. 0/15................
3 dúsin hvítir handklútar 0/15........
12 smásjöl 3/1/00 3/1/50 3/2/00
3/2/50
Iíálspípur 5 tegundir pr,
80.00
11.20
14.00
15.40
17.50
21.00
22.40
9.60
25.00
14.00
10.00
10.00
30.00
8.40
71.00
7.80
15.00
20.40
18.00
1125
8.25
9.75
24.00
19.80
12.00
36.00
10.00
5.00
29.50
10.50
27.00
8.40
40.80
28.80
13.20
28.00
7.50
11.40
66.00
5.40
5.40
21.00
5.00
40 ál. svart kirlatau 20/1/80 20/1/35 63.00
Tvinninn góði Coats 400 yds. pr....... 10.00
Krókapör, nálar, hnappar pr........... 25.00
2 rúmteppi 1/5/00 1/9/00 ........... 14.00
2 hvít skjöl (ullar) 4/50 .......... 9.00
Handsápa, brjóstsykur og fleira pr.... 10.75
Kr. 1000.00
Jón bóndi á Sóleyjarbakka var búhöldur góð-
ur. — Hann sat á eignarjörð sinni og átti margt
gangandi fé, túnið var eggslétt og fallegur tún-
garður allt um kring. Engjarnar voru umhverf-
is, og var þeim skipt í ýmsa parta með skurð-
um og ræsum. Falleg fjallahlíð var skammt
frá bænum. Húsakynni voru hin beztu. Það var
skömmu eftir túnasláttinn, að einn góðan veður-
dag sást fjöldi fóllks koma ríðandi heim að
Sóleyjarbakka, og var auðséð á öllum þeim
mannfjölda að eitthvað óvanalegt stóð til. Það
var líka von, þetta var boðsfóikið að koma frá
kirkjunni á Hóli. Því hinn nýji sóknarprestur
séra Bjarni Ásmundarson hafði verið að gefa
saman í hjónaband Ilarald einkason Jóns bónda
á Sóleyjarbakka og yngismey Áslaugu Sigurð-
ardóttir frá Unaðsdal. Sumt af heimafólkinu
stóð prúðbúið í sínum beztu sparifötum út á
hlaði á Sóleyjarbakka, og var að horfa á boðs-
fólkið, þegar það var að ríða heim. Þarna ríður
hann séra Bjarni, á fallegum fola, hann kann
betur við kallinn, að það sé fjörugt, sem hann
situr á, þarna kemur hann séra Snjólfur gamli
í Eymdardal á henni Jörp, hún lítur út fyrir að
vera grindhoruð eins og vant er, hann hefur
líklega ekki látið gefa henni of vel, hann prútt-
ar aldrei mikið um fæðuna, hvorki þá andlegu
né líkamlegu. Skal hann ekki hafa barlóms-
skjóðuna fyrir aftan sig? Það vildum við óska,
að nýji presturinn léti hann ekki láta leka úr
séi hina gömlu melankolíu, og þar með skemma
alla gleðina í dag. Nei, sjáið þið, þarna kemur
hún Snjálaug dóttir hans Finnboga í Saltvík,
er sem mér sýnist ? Hún er búin upp á hádönsku
í gráum kjól, og hallast reiðhatturinn út i aðra
hliðina, ekki er hún heldur digur um mittið,
nú held ég að hún hafi spent laglega að sér
lífstykkið, hún ríður líka sjallaus, svo menn
taki eftir hversu vel fari henni fötin. Nei, sjáið
þið hælana á stígvélunum hennar, þeir eru
hálf alin á lengd, svo ég held að hún geti í
hvorugan fótinn stígið. Hver ríður þarna á
brúnum? Ég held það sé Eyvindur sveitarodd-
viti og sáttasemjari i Kreistuvík, sá er nú ann-
ars á báðum buxunum, það skín út úr honum
spekingsskapurinn. Hana nú, þarna koma þeir,
10
FRJÁLS VERZLUN