Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1950, Blaðsíða 12

Frjáls verslun - 01.12.1950, Blaðsíða 12
'JifNf Auman (jtanfo Eítir NJÁL SÍMONARSON. Áfram veginn í vagninum ek ég — og að baki mér eru senri gleymdar áhyggjur um vegabréfaskoðun, landamæraverði og embættismennsku. í þetta skiptið höfðu örlögin vísað mér til sætis í voldugum en eftir því að mér virtist ellihrumum langferðabíl frá félag- inu Transportes del Norte. Ég hafði komið mér vel fyrir í sætinu, sem ég kaus framarlega og út við glugg- ann. Takmarkið var nefnilega að sjá eins mikið af mexíkönsku landi og tækifæri gafst til á leðinni frá landamæraborginni Nuevo Laredo til Monterrey, sem ég hafði ákveðið fyrsta áningastað minn á ferðalagi mínu um Mexíkó. Ég var í sólskinsskapi og langaði mig einna helzt til að taka lagið — og þá auðvitað á íslenzku. Ekki var neinn af samferðamönnum mínum þesslegur, að hann gæti aðstoðað mig við slíkan söng, því að ég komst brátt að því, að allur skarinn var mexíkanskur að mér einum undanskildum. Ég sá því þann kost vænstan að raula bara í hálfum hljóðum, því ég var smevkur um, að þeir mexíkönsku mvndu álíta mig læknis þurfi, ef ég færi að syngja íslenzk ættjarðar- Ijóð fullum hálsi. Hvert sæti fararskjótans okkar var skipað. Ég renndi augunum sem snöggvast yfir hópinn og veitti því athygli. að bann var æði mislitur. Þarna var fólk á öllum aldri. allt frá börnum í reifum til karlægra gamalmenna. Flest virtist betta fólk vera h°ldur litl- um efnum búið, ef dæma skyldi eftir klæðnaði bess, en hann var mjög tötralegur að sjá. Undantekning frá þessu var þó svertingi nokkur, sem sat við hliðina á mér. Var hann miög bokkalega klæddur og bar sig borginmannlega. Við höfðum ekki ekið lengi, þegar sá blakki snýr sér að mér og ávarpar mig á spænsku: „Hables usted espanol?“ (talið þér spænsku?). „Sí, un poco“ (já, ofurlítið), svara ég vitandi það. að brátt myndi reka í vörðurnar hjá mér, ef samtalið yrði öllu lengra á spænska tungu. En ég var ákveð- inn að reyna að þrauka þetta út í yztu æsar og tíndi allt til, sem ég hafði lært í málinu, en það var frekar takmarkað. Það fór nú samt svo að lokum, eftir að blakkur hafði spurt mig hvaðan ég væri og fengið svar við því, að hann spurði mig ósköp kurteislega, hvort ég kysi frekar að rabba við sig á ensku. Ég sam- þykkti það umsvifalaust, þar sem ég taldi mig heldur liðugri á því máli. Vegurinn. til lífsins. Gamli langferðabíllinn okkar ók með ótrúlegum hraða og stefndi suður á bóginn eftir þráðbeinum og eggsléttum Pan American þjóðveginum. Þjóðvegur þessi á upptök sín við landamæraborgina Laredo í Texas og teygir sig 1760 km. til suðausturs eftir endi- langri Mexíkó allt til borgarinnar Oaxaca, sem er suð- ur við Yucatán skagann. Enn er nokkur hluli þessa mikla þjóðvegar ófullgerður, og er það nokkurt svæði syðst í Mexíkó og hluti af Mið-Ameríku ríkinu Guatamala. Þegar lokið verður við lagningu vegarins, en ráðgert er að svo verði innan tveggja til þriTgja ára, þá verður hægt að aka í bifreið alla leið frá nyrstu borgum Kanada og Bandaríkjanna allt til Buenos Aires í Argentínu, en það mun mörgum finn- ast drjúg bæjarleið. Ég virti fyrir mér landslagið um leið og við þutum áfram eftir þjóðveginum. Kjarrivaxnar sléttur teygðu sig þarna í allar áttir, og virtist landið vera nokkuð striálbýlt. Hvergi hef ég séð jafn þráðbeinan veg og Pan American þjóðveginn frá Laredo til Monterrey, en vegalengdin á milli borganna er um 230 km. Við höfum víst áreiðanlega ekið á annan klukkutíma án þess að ég yrði var við, að bílstjórinn okkar tæki minnstu beygju. Mér sýndist hann nú dotta öðru hvoru við stýrið, enda ekki að furða, þar sem það tilbreyt- ingaleysi að fá aldrei að snúa stýrinu samfara hita- stækjunni í bílnum virtist gild ástæða til að fá sér smá blund annað kastið. Annars sýndu ferðafélagar mínir bílstjóranum hina mestu ónærgætni með því að tala svo hátt, að um langan svefnfrið gat ekki verið að ræða. 172 FRJÁLSVERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.