Frjáls verslun - 01.04.1961, Blaðsíða 6
Yerzlunarbankinn tekur til starfa
Hér fer á eflir ræða, er Egill Guttorms-
son flutti á l’undi með fréttamönnum 7.
apríl 1901 í tilefni af opnun Verzlunar-
banka íslands h.f. Síðan er birt ávarp
Iljartar Jónssonar við sama tækifæri.
Verzlunarbanki íslands h.f. er
stofnaður fyrir forgöngu ábyrgðar-
manna Verzlunarsparisjóðsins,
samkvæmt heimild í lögum nr. 40
frá 10. júní 1960. Hlutafé bank-
ans er 10,2 milljónir króna, en sam-
kvæmt ákvörðun stofnfundar
bankans hinn 4. febrúar sl. er
bankaráði heimilt að bjóða út auk-
ið hlutafé, að upphæð 2 milljónir
króna á fyrsta starfsári bankans,
og mun það útboð verða gert næstu
daga. Hlutverk Verzlunarbankans
verður að styðja verzlun lands-
mánna og greiða fyrir fjármála-
viðskiptum þeirra einstaklinga og
fyrirtækja, er hafa innflutning og
vörudreifingu innanlands að at-
vinnu. Bankinn mun annast alla
innlenda bankastarfsemi, svo sem
innlánsviðskipti í sparisjóð og
hlaupareikning, kaup og sölu
víxla, tékka og ávísana og inn-
heimtustörf. Enda þótt bankinn
hafi eigi enn heimild til erlendra
viðskipta, er það skoðun forráða-
manna hans, að það sé eðlilegt
og nauðsynlegt að verzlunarbanki
hafi slíka starfsemi með höndum,
og mun verða stefnt að því að afla
slíkrar hcimildar.
Um leið og Verzlunarbankinn
Á efstu myndinni er siarfsfólk í innlóns-
deildum Verzlunarbankans og sú næsta
er einnig tekin í sama afgreiSBlusal ó 1.
hæð. Neðsta myndin sýnir afgreiðslusal
innheimtudeildar á 2. hæð
6
FR J Á LS VERZLUN