Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1961, Blaðsíða 23

Frjáls verslun - 01.12.1961, Blaðsíða 23
Þór Guðjónsson, veiðimólastj.: FISKELDI- NÝ ATVINNUGREIN Við lifum á tímum örrar þróunar. Svo að segja daglega koma fram nýjungar á ýmsum sviðum atvinnulífsins. Ef við íslendingar ætlum okkur í framtíðinni að vera efnalega sjálfstæðir og lifa menníngarlífi í landi okkar, er okkur nauðsynlegt að fylgjast með nýjungunum, þegar þær koma fram, og hagnýta þær í framleiðslu okkar. Ekki hvað sízt verðum við að liafa vakandi auga með þeim nýjung- um, sem leitt geta til nýbreytni í atvinnumálum okkar og skapa aðstöðu til þess að taka upp nýjar framleiðslugreinar. Ný atvinnugrein, sem unnið er við að koma á fót hér á landi, er laxfiskaeldi. Geysimiklar framfarir í laxfiskaeldi erlendis svo og fjárhagsleg þróun síð- asta hálfan annan áratuginn hefur aukið mögu- leika okkar á að gera þessa atvinnugrein arðvæn- lega. Sjálfsagt er að notfæra sér þær sérstöku að- stæður, sem eru hér á landi til laxaeldis. Laxveiði í sjó er bönnuð við ísland, og skapar það mögu- leika fyrir þann, sem sleppir laxi af göngustærð í á eða lætur hann ganga út úr laxabúi, að njóta ávaxta iðju sinnar, þar sem laxinn fullþroska muni koma þangað, sem honum var sleppt, án þess að óviðkomandi aðilar taki þar stóran toll af á göngu- leiðum hans í sjónum. Slíkur „tollur“ nemur í Nor- egi um 85% af því, sem kemur aftur fullþroska af seiðunum, sem sleppt er, en þar, eins og í öðrum Evrópulöndum, fer mestur hluti laxveiða fram í sjó. Við uppbyggingu á nýrri atvinnugrein er nauð- synlegt að leysa af kostgæfni vandamál, sem á vegi verða, því að mikilsvert er, að vel takist til. Styðj- ast verður annars vegar við erlenda reynslu og hins vegar verður að taka tillit til íslenzkra að- stæðna. Nauðsynlegt er að ætla sér tíma við upp- bygginguna og forðast flaustur. Um reynslu á sviði fiskeldis, sem sækja verður til annarra landa, væri fróðlegt að ræða ýtarlega, cn hér verður ekki rúm til þess. Að þessu sinni verður að láta nægja að FR.TÁLS VERZUIN skýra frá nokkrum athyglisverðum atriðum fisk- eldis, sem fram hafa komið í Bandaríkjunum. Síð- an mun greint frá undirbúningi, sem nú er unnið að hér á landi á vegum ríkisins, undir að koma laxfiskaeldi á traustan grundvöll og stuðla að fram- förum á því sviði. Fiskeldi og fiskrækt í Bandaríkjunum Bandaríkjamenn standa mjög framarlega í fisk- rækt og eldi laxfiska. Er engin tilviljun, að svo er. Þeir hafa nær aldarreynslu í þessum greinum, hafa um 15 tegundir laxfiska og mikinn fjölda laxáa og silungsvatna. Laxveiðar eru umfangsmikill og arð- vænlegur atvinnuvegur og sportveiði er mikið stunduð í sjó, ám og vötnum. Talið er, að 1960 hafi yfir 20 milljónir stangaveiðimanna veitt í fersku vatni, en alls hafi um 45 millj. stangaveiði- manna stundað veiði það ár. Hafa þeir að sjálf- sögðu veitt af fleiri fisktegundum heldur en lax- fiskum. Árið 1955 veiddu Bandaríkjamenn nær 70.000 tonn af laxi og mikið magn af silungi. Ilið mikla veiðiálag á lax- og silungsstofnana annars vegar og rafvirkjanir, áveitur, og vatns- notkun til heimilisþarfa og iðnaðar hins vegar hafa rýrt þá svo mjög, að víðtækra ráðstafana hefur verið ])örf til ]>ess að hamla á möti öflunum, sem eyða fiski og spilla lífsskilyrðum hans. Eitt áhrifaríkasta ráðið til þess að viðhalda lax- fiskunum hefur verið að klekja út hrognum og ala seiðin upp í eldisstöðvum og sleppa þeim síðan stálpuðum í ár og vötn. í Bandaríkjunum voru 587 eldisstöðvar í eigu hins opinbera árið 1958, og framleiddu þær rúmlega 820 milljónir seiða, er sleppt var í ár og vötn til viðhalds veiði, en veiði- réttur er þar ríkiseign. Verulegur hluti þessara seiða voru Iaxfiskaseiði. Árið 1958 vörðu opinberir aðilar 17,6 milljónum dollara, eða sem svarar tæplega 757 milljónum ís- «3

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.