Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1961, Blaðsíða 52

Frjáls verslun - 01.12.1961, Blaðsíða 52
 n r nn ,.Eq er fullkomin andstæða þessa þama.' „Nonni vill fá að vita af hverju vitamín voru sett í spínat og lýsi, cn ekki í kökur og brjóstsykur.“ ★ „Mamma“, sagði Sigga litla, um leið og hún horfði á litrík ský á björtu sumarkvöldi. „Mikið hlýtur að vera fallegt í himnaríki úr því að rangan á því er svona falleg.“ •k Mamma: „Hvað er að sjá þig drengur? Skyrtan þín er öll götug.“ Tommi: „Já, við vorum í búðarleik, og ég átti að vera svissneskur ostur.“ ★ Frúin: „Dóra, sópaðir þú á bak við hurðina?“ Stúlkan: „Já, frú, ég sópaði öllu á bak við hurð- ina.“ ★ „Hvað myiulir þú segja um mann, sem hefði ekki einu sinni greitt hattinn, sem hann notar?“ „Ég myndi segja, að hann væri skuldum vafinn upp fyrir haus.“ Bekknum hafði verið sagt að skrifa ritgerð um veturinn, og ein hljóðaði á þessa leið: „A veturna er mjög kalt. Margt gamalt fólk deyr á veturna, og margir fuglar fara þá einnig til heitari staða.“ ★ Kennarinn: „Jæja, Magnús; hvaða mánuður hef- ur 28 daga?“ Maggi litli var búinn að gleyma því en eftir dá- litla umhugsun sagði hann: „Allir mánuðirnir hafa það.“ ★ Eftir mikið erfiði lauk nemandinn að lokum við prófverkefni sitt og skrifaði síðan eftirfarandi at- hugasemd neðst á blaðið: „Herra kennari, ef þér seljið blöðunum eitthvað af prófsvörum mínum sem skrýtlur, þá vonast ég eftir að fá helming af hagnaðinum.“ ★ „Við eruin hætt við að selja húsið okkar. — Eftir að við lásum lýsingu fasteignasalans á því sáum við, að það er einmitt hús eins og við vorum að leita að.“ „Viltu gcra mór einn greiða? Hættu að segia: „Hér erum við núna." " 48 FR.TÁLS VEItZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.