Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1961, Blaðsíða 49

Frjáls verslun - 01.12.1961, Blaðsíða 49
ÚR GÖMLUM RITUM FRAMFARIR III. Þessi grein er framhald af greinimii i siðasla hefli, eflir Vestur-Islendinginn Friðrik J. Berginann, }iar sein hann lýsir íslenzka þjóðlífinu um aldamótin síðustu. F'r |)etta þriðja og síðasta greinin. í því, sem hér fer á eftir, er rælt um flokkaskiptinguna, skóla- mál, bindindishreyfinguna, Ameríkuferðirnar, trúna ú framtíð Islands og afstöðuna til Vestur-Islendinga. Þótt ekki hafi verið stigin nein stór spor áfrani í stjórnarbót landsins á þessuni síðustu 25 ár- um, er þó baráttan fyrir henni ef- laust komin í vænlegra horf en áður. Aldrei síðan á dögum Jóns heitins Sigurðssonar hefir þjóðin skilið eins vel og nú, hvað um er verið að þrefa. Sést það bezt á því, að nú er greinileg flokkaskifting orðin út af pólitík landsins, bæði á þingi og ntan þings. Svo er það hvarvetna annarstaðar í heimin- um. Á annan hátt virðist mönn- unum ekki unt að heyja fram- farabaráttu sína. Á síðasta þingi stóðu tveir flokkar með ákveðna stefnu hvor gagnvart öðrum og nú fara fram kosningar lil þings um land alt, sem skera úr, hvor stefnan skuli verða ofan á á næstu þingum. Framfaraflokkurinn vill ganga að samningum, sem stjórn- in hefur boðið, um að settur verði sérstakur ráðgjafi fyrir ísland, er beri fulla ábyrgð á allri stjórn landsins gagnvart þingi og ])jóð. Er ætlast til, að hann verði ís- lendingur, sem gagnkunnugur sé þörfum lands.ins og þjóðfélags- ástandinu í heild sinni. Ilann á að vera eins konar meðalgöngu- maður og sáttamiðill milli þjóð- viljans eða meiri hlutans á þingi og stjórnarinnar. Þar næst vill framfaraflokkurinn koma á öflugri peningastofnun í landinu sjálfu, sem fullnægja megi allri peninga- þörf landsins. Og í þriðja lagi vill hann tengja landið við umheim- inn með því, að fá sæsíma lagðan til landsins, til ómetanlegs gagns fyrir verzlun þess og viðskiftalíf. — Hinn flokkurinn hefir nú sem stendur ekkert annað á stefnuskrá sinni, eftir því, sem unt er að sjá, en stórt nei við öllu þessu. Hann vill ekkert af þessu aðhyllast og berst á móti því með hnúum og hnefum. Fyrir nokkru síðan barð- ist hann undir forustu Benedikts heitins Sveinssonar fyrir alinn- lendri stjórn, íslenzkum jarli eða landshöfðingja, er heima skyldi eiga í Reykjavík og hafa íslenzkt ráðaneyti. En nú heyrist ekkert um það talað, — ekkert nema eitt nei við öllu því, er framfara- flokkurinn vill fá framgengt. Af- stöðu flokkanna hvors gagnvart öðrum skilja nú allir, sem á ann- að borð nokkuð reyna að skilja. Þess vegna virðist mér það stór og mikil framför, að hugsanirnar í þessu efni eru orðnar svo ljósar, — skoðanirnar svona ákveðnar og skilmerkilegar í stjórnarbaraáttu landsins. Þær hafa verið svo óákveðnar og þokukenndar frá því Jón heitinn Sigurðsson féll frá, að tornæmum mönnum, eins og þeim, sem þetta ritar, hefir ekki verið unt að átta sig á þeim. En nú cr engin afsökun lengur fyrir neinn. Mentunarástandið hefir verið gjört að umtalsefni hér að fram- an, þar sem minst hefir verið á skólana, og ætla eg þar engu við að bæta. Skólunum hefir fjölgað stórkostlega. Nú eiga að vera ein- ir 30 barnaskólar til á landinu og eitthvað Iítið færra en 200 sveita- kennarar. Stýrimannaskólinn í Reykjavík var mjög nauðsynleg stofnun, og er sagt að hann leysi ætlunarverk sitt vel af hendi. Kvennaskólarnir eru þrír og þó raunar fjórir, að hússtjórnarskól- anum meðtöldum, tveir í Reykja- vík og tveir á Norðurlandi. Hin yngri kynslóð hefir sjálfsagt meiri þekking í almennum fræðum en hin eldri, þótt sii þekking sé nokk- uð í molum. En hvort hún hefir fengið gleggri sjón á aðalatriðum lífsins, traustari lund og fastari lífsstefnu, — það er annað mál. Sú andleg hreyfing, sem mest hefir borið á í landinu um síðast- liðin 12—15 ár, er bindindishreyf- ingin. Með sívaxandi afli og áhuga hefir bindindismálið verið rekið af Good-templarafélaginu, sem svo nefnist, og hefir ensk-amerísk- an uppruna, eins og kunnugt er. Önnur bindindisfélög eru einnig mörg til í landinu, en á þeim ber svo sem ekkert við hlið Good- templarareglunnar. Aðalaðsetur þess er höfuðstaður landsins og þar er stórstúka þcss, sem heldur þing annaðhvort ár. Undir henni standa um 80 stúlkur víðs vegar urn alt land og í þeim um fjórar þúsundir manna. Hreyfingin er nú komin um land alt, og fær hvar- vetna meira og meira fylgi. Það er einungis ein sýsla, sem hún hef- ir enn ekki náð til, Strandasýsla; þar er enn enginn „stúkubróðir“. Árangurinn af þessu starfi er líka orðin töluvert mikill. Miklu minna FliJÁLS VERZLUN 45

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.