Frjáls verslun - 01.12.1961, Page 29
Eldistjarnir í TilraunaeldisstöS Fiskiiræðideildar Washingtonhóskóla i Seattle
og leggja vísindalegan grundvöll að þekkingu á
því sviði í Bandaríkjunum. Fiskifræðideild Wash-
ingtonháskóla hóf snemma þátttöku í rannsóknum
af þessu tagi. Gerður var samanburður á ýmsum
fóðurtegundum til þess að fá fram gildi þeirra sem
fiskfóður. Rannsóknum á nærignargildi fóðurteg-
unda og fóðurblandna hefur nú verið haldið áfram
í rúmlega þrjá áratugi með athyglisverðum ár-
angri. Iíefur Donaldson, prófessor, tekizt með sér-
stakri fóðurblöndu að fá eitt kíló af fiski á móti
einu kílói af fóðri, og er þá mikið af þurrfóðri not-
að í fóðurblönduna.
Ástand innyfla í alifiski er oft notað sem mæli-
kvarði á, hve hollt fóður er fyrir fiskinn heilsu-
farslega. Donaldson, prófessor, fann með rannsókn-
um, að vissar fóðurtegundir orsökuðu skemmdir í
briskirtlinum. Þá hefur verið unnið að því að finna
fóður, sem leggja má til grundvallar við fóðurtil-
raunir. Ilefur þetta borið góðan árangur. Er nú
slíkt undirstöðufóður notað við rannsóknir á nær-
ingarþörf fiskanna.
Kynbætur á regnbogasilungi
Kynbætur á laxfiskum er ein merkilegasta nýj-
ung seinni ára í veiðimálum. Árangurinn, sem þeg-
ar hefur fengizt af tilraununum í því efni, gefur
fyrirheit um, að fá megi í framtíðinni fisk, sem
muni henta betur breyttum aðstæðum, og muni
gefa mjög auknar afurðir á styttri tíma heldur en
nú tíðkast.
Merkt tilraunastarf hefur verið unnið af Don-
aldson, prófessor, og aðstoðarmönnum hans í nær
þrjá áratugi á sviði kynbóta á regnbogasilungi,
rákasilungi og kóngslaxi. Reynt hefur verið að fá
fram fisk, sem yxi ört og yrði kynþroska snemma
og væri ónæmur fyrir sjúkdómum, hrygndi á hag-
kvæmum tíma og hefði sem flest hrogu.
Árið 1932 hóf Donaldson kynbætur á rcgnboga-
silungsstofni, og voru stofnsilungarnir tæp 700 gr.
hver og 4 ára gamlir, þegar þeir voru fyrst kyn-
þroska. Meðal hrognafjöldi í þeim var 1000 hrogn.
Vaxtarhraðinn jókst á næstu árum, og fiskarnir
urðu kynþroska yngri heldur en hinn villti stofn.
Þegar kynbæturnar höfðu staðið í áratug, náðu
fyrstu silungarnir kynþroska tveggja ára, og eftir
hálfan annan áratug hafði hrognafjöldinn tvöfald-
azt. Tveggja ára fiskarnir frá klakárinu 1953 voru
kynþroska 49,0 sm að lengd að meðaltali og 1848
gr. að þyngd. Þeir voru nálega sinnum þyngri
heldur en villti stofninn var 4 ára gamall. Þegar
FRJÁLS VERZLUN
25