Frjáls verslun - 01.12.1961, Page 31
m iú rT?1! mmm tT i ta i: i 11 (j 1 !4|
1 ■ i" 1 i m \ 11 ■ '' 1 ■ '
Seiðaskurðir og eldiskassar í Tilraunaeldisstöð ríkisins í Kollaiirði
ríki, þar sem þau höfðu verið alin frá vorinu áður,
um 30 km leið norður til Tilraunaeldisstöðvar Fiski-
fræðideildarinnar í Seattle. TJm helmingi seiðanna
var sleppt í eldisstjaranir stöðvarinnar, og hinum
hlutanum var sleppt í eldistjarnir eldisstöðvarinn-
ar í Issaquah, sem er urn 55 km leið ofar við sama
vatnasvæði. Tveimur mánuðum síðar gengu seið-
in út úr eldisstöðvunum áleiðis til sjávar, en
þau voru merkt með uggastýfingum, til þess að
laxarnir þekktust aftur. Af seiðum úr Issaquahcld-
isstöðinni var kli]>ptur hægri kviðaruggi. Voru þau
9,4 sm á lengd og vógu 10,5 gr að meðaltali. Af
seiðunum úr Tilraunaeldisstöð Fiskifræðideildarinn-
ar var klipptur vinstri kviðaruggi. Þau voru 10,6
sm á lengd og voru 14,8 gr að þyngd.
Sérstakar ráðstafanir voru gerðar til þess að
finna merkta fiska. Skoðaðir voru rúmlega þrjú
hundruð þúsund silfurlaxar, og fundust tæplega
400 merktir laxar frá því í júlí 1952 þar til í febrúar
1954, en meirihluti veiðanna fer fram í sjó. Þá var
leitað að merktum löxum við Sooseldisstöðina það-
an, sem laxaseiðin voru flutt í janúar 1952, og í
rannsóknarstöð Fiskimálastofnunar Waslúngtonrík-
is í Minteránni. Á hvorugum staðnum fundust
silfurlaxar, sem á vantaði kviðarugga. ITpp í tjarnir
Tilraunaeldisstöðvar Fiskifræðideildarinnar gengu
124 fullorðnir silfurlaxar, sem allir höfðu verið
merktir þar áður, og gengið út úr stöðinni. 195
laxar þaðan höfðu veiðst í sjó svo vitað sé. 70 laxar
gengu upp í Issaquaheldisstöðina, sem þar höfðu
verið merktir, og einn að auki, sem merktur hafði
verið í Tilraunaeldisstöðinni, og hafði hann því farið
villur vegar. Vitað var urn, að veiðst liöfðu 186
silfurlaxar úr Issaquahstöðinni í sjó. Eins og áður
segir, er Issaquaheldisstöðin ofar við sama vatna-
svæði og Tilraunaeldisstöðin, og þurftu Issaquah-
laxarnir að ganga rétt framan við Tilraunaeldisstöð-
ina á leið sinni „heim“, og villtust engir þeirra upp
í hana.
Niðurstöðurnar af tilraun þessari eru þær, að
enginn silfurlax fullvaxinn gekk úr sjó upp í móð-
urána, Soosá, en þeir komu aftur upp í fósturstöðv-
arnar, j). e. upp í eldistjarnir Tilraunaeldisstöðvar
Fiskifræðideildarinnar og í stofnlaxajn'ó Issaquah-
eldisstöðvarinnar. Aðeins einn hinna merktu laxa af
195, sem gengu aftur upp í eldisstöðvarnar, villtist.
FH.TALS VERZLUN
27