Frjáls verslun - 01.03.1969, Blaðsíða 18
14
FRJALS VERZLUN
frekari kaup á þeim. En til þe^s,
að svo yrði, væri nauðsynlegt að
fá betri vélar til framleiðslunnar.
Hr. Krutikov var í samning; -
nefnd Sovétríkjanna um olíusölu
til íslands, sem áður er greint frá.
og hann var inntur eftir því, hvers
vegna olíuverð til íslands væri
nokkru hærra en verðtilboð, sem
íslendingar hefðu fengið frá öðr-
um aðilum. Hann svaraði því til,
að olíuverð Sovétmanna væri ails
ekki hærra en eðlilegt mætti telj-
ast. Ástæðan fyrir þessum tilboð-
um, sem lægri væru, taldi 'hann
vera þá, að einhverjir aðilar hefðu
áhuga á að fjarlægja Sovétríkin aí
íslenzka markaðinum, og þar af
leiðandi byðu þeir lægra verð um
stundarsakir til að komast inn á
markaðinn.
Hr. Krutikov hefur starfað í ut-
anríkisþjónustu Sovétríkjanna um
margra ára skeið og gegnt marg-
háttuðum trúnaðarstörfum fyrir
land sitt. Hann var að því spurð-
ur, hversu mörg lönd hann hefði
sótt heim á starfsferli sínum.
Hann svaraöi: „Ætli það yrði ekki
styttri upptalning, ef ég nefndi
þau lönd, sem ég hef ekki komið
til.“
Iir. Krutikov kom hingað með
konu sína og hyggst dveljast hér
á landi um nokkurn tíma.
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar annast sölu á öllum rússneskum bifreið-
um og varahlutum til þeirra.
Er utanferó ómöguleiki ?
Á vinningaskrá næsta
happdrættisárs
eru:
36 utanlandsferöir
fyrir 25,35 og 50 þús. kr.
1969-70