Frjáls verslun - 01.03.1969, Side 31
FRJALS VERZLUN
Z7
IÐNAÐUR
ÖLFAR GUÐJÖNSSQN HF.
nefnist fyrirtæki í Kópavogi og
helgar sig húsgagnaframleiðslu
eingöngu. Fyrirtæki þetta hét áð-
ur „íslenzk húsgögn“ og var þá
Úlfar Guðjónsson einn af meðeig-
endum þess, unz hann keypti það
allt fyrir um einu og hálfu ári.
Hefur Úlfar síðan rekið fyrirtækið
einsamall. Hjá því starfa nú um
tíu menn, húsgagnasmiðir og
bólstrarar, og selur fyrirtækið
beint til kaupmanna, en rekur
ekki verzlun samhliða verkstæð-
inu.
Húsgögnin, sem fyrirtækið hef-
ur á boðstólum, eru smíðuð eftir
norskum fyrirmyndum. Úlfar hef-
ur fengið einkaleyfi á framleiðslu-
vöru húsgagnaframleiðandansEgil
Aavik, sem er stórt fyrirtæki í
Noregi með um 80 manna starfs-
liði. Norsku teikningarnar ei’u
betrumbættar hér heima eða öllu
heldur aðalgaðar miðað við ís-
lenzkar þarfir og kröfur.
Úlfar tjáði Frjálsri verzlun, að
hann væri ánægður með fram-
vindu fyrirtækis síns þann tíma,
sem hann hefði rekið það. Eftir-
spurn eftir framleiðslu þess hefði
verið allgóð á sl. ári, og svo virtist
sem fólki líkaði mjög vel við hús-
gögn þau, sem það hefði á boð-
stólum. Hann kvaðst að vísu hafa
orðið var við, að húsgagnasalan
hefði heldur farið að dragast sam-
an síðustu mánuðina á sl. ári.
„Það veldur mér þó engum áhyggj-
um,“ sagði Úlfar. „Sala á húsgögn-
um var óeðlilega mikil fyrir og
eftir gengisfellingarnar tvær, og
það er mun betra að byggja á