Frjáls verslun - 01.03.1969, Blaðsíða 45
FRJÁLS VERZLUN
LANDBÚNAÐUR
BÆNDUR ÁHUGASAMIR
AÐ TILEINKA SÉR NÝJUNGAR
Rœtt við Árna Gestsson í Glóbus.
Á síðustu árum hefur átt sér
stað hérlendis mikil vélvæðing
innan landbúnaðarins. Þessi at-
vinnuvegur hefur orðið skjótur cil
að tileinka sér nýtízkuleg tæki,
sem haft hefur í för með sér, að
aukning hefur orðið í framleiðsi-
unni, þrátt fyrir fækkun fólks til
sveita.
Fyrirtækið Glóbus hf. er einn
þeirra aðila, sem annazt hefur inn-
flutning tækja o. fl. fyrir land-
búnaðinn um árabil, og þótti F.
V. ekki úr vegi að kynna fyrir-
tækið og forstöðumann þess lítil-
lega fyrir lesendum sínum.
Glóbus hf. var stofnað áriö
1947, en fimm árum síðar komst
það í eigu forráðamanna Heild-
verzlunarinnar Heklu. Árni Gests-
son, núverandi forstjóri Glóbusar,
var þá starfsmaður Heklu, hafði
starfað þar allt frá 1938 og síð-
ustu árin sem meðeigandi þess,
eða til 1956, að hann tók að eign-
ast meirihluta í Glóbusi hf.
Fyrirtækið hóf þá aftur sjált-
stæðan rekstur. Á þeim tíma var
innflutningsmálum þannig háttað,
að allt var ieyfum háð og ákveð-
ið kvótakerfi ráðandi. Þeir inn-
flytjendur, sem kvóta þennan
höfðu, réðu því algjörlega, hvaða
vélar eða tæki þeir fluttu inn, en
hinn endanlegi kaupandi var svo
til áhrifalaus, „keypti það, sem
að honum var rétt“, eins og Árni
komst að orði í samtali við F. V.
Þrátt fyrir mikla erfiðleika bjarg-
aðist þetta á einhvern hátt og
reynt var að afla nýrra sambanda
í tækjum og vélum, sem álitið
var, að hentaði íslenzkum aðstæð-
um.
Árið 1960 gerbreyttust svo við-
horfin í þessum efnum. Innflutn-
ingurinn var gefinn frjáls, og gafst
þá bædum kostur á að velja á
milli fleiri tegunda af vélum en
áður hafði þekkzt, enda fór svo,
að salan í þessum tækjum óx til
mikilla muna, og hefur vélaþró-
Árni Gestsson.
unin í landbúnaðinum aldrei orci-
ið eins ör og fyrstu árin, eftir að
frjáls innflutningur fékk að njóta
sín, að sögn Árna.
Þótt Árni Gestsson sé ekki gam-
all maður, þá hefur hann haft
kynni bæði af höftum og frjálsr:
verzlun og vildi hann engum óska
þess, að hér kæmu höft á ný. „Oll
höft á innflutningsverzlun leiða
til svæfandi áhrifa á innflytjend-
urna sjálfa og óskir neytendanr.a
eru fyrir borð bornar.“
Fyrstu árin, sem Glóbus stari-
aði sjálfstætt, var fyrirtækið í
leiguhúsnæði að Hverfisgötu 50.
Húsnæðið reyndist brátt of lítið,
og var þá ráðizt í kaup á 200 fer-
metra húsnæði að Vatnsstíg 3. En
þegar innflutningurinn var orðinn
frjáls, óx Glóbus hf. sem og önnur
fyrirtæki og hafði þá fyrst bot-
magn til að reisa framtíðarhúj
næði fyrir starfsemina að Lág-
múla 5.
Árni telur sig hafa verið eink'
ar heppinn að leggja inn á þá
braut innflutningsverzlunarinnar,
sem lýtur að landbúnaði, þrátt
fyrir þá staðreynd, að bænduir.
fer fækkandi. „Þróunin á þessu
sviði hefur verið einstaklega ör og
skemmtileg viðfangs. Framleiðsl-
an í landbúnaði hefur aukizt jafnt
og þétt þrátt fyrir fækkun bænda,
og er það fyrst og fremst að þakka
aukinni vélvæðingu. Bændurmr
hafa verið einkar áhugasamir urn
að tileinka sér nýjungar, sem fram
koma í framleiðslu landbúnaðai-
tækja, og einnig er þessi stétt
manna upp til hópa heiðarleg í
viðskiptum. Já, þær eru ótaldav
þær stundir, sem ég hef setið á
tali með þessum mönnum, mér
til gagns og gamans.“
Þar sem Glóbus hefur sérhæít
sig í verzlun við bændur og við-