Frjáls verslun - 01.03.1969, Qupperneq 46
42
FRJALS VERZLUN
skiptahópurinn orðinn æði stór,
var ekki óeðlilegt, að hafin væii
verzlun með fóðurvörur enda við-
skiptamannahópurinn sá sami. Því
var það, að Glóbus fór að svipast
um eftir heppilegum fóðurblönd-
um erlendis, með innflutning i
huga, og eftir gaumgæfilega at-
hugun var ákveðið að hefja sam-
vinnu við danska fyrirtækið Elias
B. Muus Odense AS, sem er einn
stærsti framleiðandinn á þessu
sviði þarlendis. Fyrirtæki þetta
stendur á gömlum merg, var stofn-
að árið 1844, og hefur átt frum-
kvæðið að ýmsum nýjungum í
framleiðslu og sölu fóðurblöndu.
Árni segir: „Þetta fyrirtæki hef-
ur jafnan kappkostað að hafa góða
vöru á boðstólum, og það var ekki
hvað sízt með hliðsjón af því, að
við ákváðum að hefja samvinnu
við fyrirtækið. Við viljum og
verðum að selja góða vöru, til að
viðskiptavinurinn sé ánægður og
komi aftur.“
Innflutningur á fóðurblöndunni
hófst í desember sl. og hefur hann
verið dreifður um allt land. „Ai'
þeirri reynslu, sem við höfum
þegar fengið ,teljum við okkur
geta litið björtum augum á fram-
tíðina, hvað þá vörutegund snert
ir.“
Hjá Glóbus starfa nú um 15
manns. í upphafi var fyrirtækio
stofnað til að selja ,,Gillette“ rak-
vörur og landbúnaðartæki. Nú
mun fyrirtækið vera orðinn einn
ÞAU HENTA ÖLLUM
FRAMLEIÐSLA □ KKAR MIÐAST VIÐ AÐ GETA HENTAÐ DLLUM. HEIM-
ILI, SAMKDMUHÚS, FYRIRTÆKI □ G VIN NUSTAÐIR. VIÐ FRAMLEIÐUM
VÖNDUÐ, HAGKVÆM STÁLHLJSGÖGN DG AUÐVITAÐ MEÐ NÆLDNHÚÐ
*
Ávallt reiðubúnir STALIÐN HF.
að gera tilboð. etálhúsgagnagerð nyldnhúðun
NDRÐURGDTU 55 SÍMI [96] 2134D AKUREYRI