Frjáls verslun - 01.05.1969, Side 19
FRJALS VERZLUN
19
REYKINGAR
„Það er erfitt að svara því, hvað
menn megi reykja, því að margt
er óljóst um orsakir krabbameins,
kronisks bronkitis og fleiri sjúk-
dóma. Almennt má segja, að mað-
ur, sem reykir einn til tvo pakka
af sígarettum á dag í tuttugu ár,
sé í mikilli hættu með að fá þessa
sjúkdóma. Ég ráðlegg öllum mín-
um sjúklingum að reykja ekki.“
„Það eru kerlingabækur, að það
sé varasamt að fara oft í röntgen-
myndatöku. Geislunin er mjög lít-
il, sem menn verða fyrh\“
„Fyrir allan almenning, sem lif-
ir á eðlilegu fæði, á ekki að vera
þörf á vítamíngjöf. Helzt er þörf
á þeim hjá fólki, sem er alveg inn-
anhúss um vetrarmánuðina.“
„Það er ekki beinlínis hættu-
legt að hafa með sér vinnu heim
á kvöldin, en menn eiga að geta
skipulagt tíma sinn betur en svo,
að það sé nauðsynlegt. Það er sér-
staklega mikilvægt, að menn hafi
frí um helgar."
LÍKAMSÞJÁLFUN
„Hvaða líkamsþjálfun menn
nota á að fara eftir því, hvaða
möguleikar eru fyrir hendi, hver
áhugamálin eru, og hvað mikinn
tíma hann hefur. Þegar menn hafa
lítinn tíma ráðlegg ég þeim að
kaupa sér æfingabók kanadiska
flughersins, sem allir hafa tök á
að nota.“
„Meðal íþrótta, sem menn geta
tekið þátt í, eru golf, sund, tenn-
is, útreiðar, og ef menn eru í mjög
góðu líkamlegu ástandi, hand-
bolti.“
„Skokk er ágæt tegund þjálfun-
ar, en ekki er rétt að nota það
sem byrjun, ef menn byrja seint
á æfinni. Það sama á við um t. d.
tennis. Ef menn setja sér það að
ganga daglega, þurfa þeir að
ganga það hratt, að þeir finni til
hóflegrar þreytu. Ef þeir ekki geta
það, hafa þeir gengið of hægt og
gangan er þá til lítils.“
„Menn eiga að velja sér góða
stóla, sem þeim líður vel í. Þeir
þurfa að hafa arma, bak, sem nær
upp fyrir herðablöð, og helzt þurfa
þeir að vera á hjólum og vera
hægt að snúa þeim.“
SVEFN
Á fertugs- og fimmtugsaldri
þurfa menn minnst sjö til átta
tíma svefn og á sextugs- til sjö-
tugsaldrinum sex og hálfan tíma.
Að sofa mikið meira en þetta er
ekki hollt. Ef hægt er fyrir menn
að leggja sig í fimmtán mínútur
eftir hádegismat, er það mjög
hollt. Þeir sem ekki geta það,
ættu að reyna að halla sér aftur
á bak í stólnum sínum jafnvel þó
að þeir sofni ekki.“
„Það er vissulega þess virði fyr-
ir fyrirtæki að borga læknisskoð-
un stjómenda. Svo oft hafa ill-
kynjaðir sjúkdómar fundizt nógu
snemma til að lækna þá, að eng-
inn vafi leikur á því. Maður, sem
er við góða heilsu, ætti að fara í
slíka rannsókn árlega.“
LÉTTAR ÞAKBYGGINGAR ÚR STÁLI
FYRIR STÆRRI HÚSAKYNNI
Nýtízkuleg lausn
byggingavandamáls-
ins með minni efn-
isnotkun og meiri
sparnaði á bygginga-
kostnaði.
Fyrir íþrótta- og sýningahúsnæði, flugskýli, vörugeymslur
og verksmiðjur.
Leitið upplýsinga hjá
STROJEXPORT
P.O.B. 662 Prague
Czechoslovakia