Frjáls verslun - 01.05.1969, Page 29
FRJÁLS VERZLUN
29
SJÁVARÚTVEGUR
Vaxandi fiskframleiðsla
Rússa
Dr. Donld E. Bavan, aðstoðar-
forseti fiskveiðideildar háskólans
í Washingtonfylki í Bandaríkjun-
um, heldur því fram, að Rússar
muni innan fárra ára geta full-
nægt sjálfir fiskþörf sinni og muni
síðan snúa sér að útflutningi. Dr.
Bavan hefur dvalizt langdvölum
í Sovétríkjunum og talinn kunn-
ugri fiskveiðum og fiskiðnaði þar
í landi en nokkur annar Banda-
ríkjamaður.
Segir hann, að allar líkur séu
á því, að Rússar fullnægi heima-
markaði árið 1970 eða 1971. Hann
bendir einnig á það, að Rússar
hafi gert víðtækari rannsóknir á
nýtingu fiskafurða en flestar aðr-
ar þjóðir. Sérstaklega hafi þeir
prófað sig áfram með notkun ým-
issa fisktegunda til manneldis,
sem ekki hafi áður tíðkazt að
borða. Telur dr. Bavan til dæmis,
að Rússarnir viti þegar meira um
nytjafiska við Kyrrahafsströnd
Bandaríkjanna, en Bandaríkja-
menn sjálfir, enda hafa Rússar
þar mikinn fiskiflota allt árið.
Hér er bersýnilega um uggvæn-
lega þróun að ræða fyrir okkur
fslendinga og vonandi að markaða
verði leitað annars staðar í tíma.
Við megum ekki við því, að svona
lagað komi okkur á óvart.
Steinbíts-
rækt
Ræktun á steinbít er orðin að
milljónaiðnaði í Bandaríkjunum.
Árið 1963 var þessi fiskirækt í
mjög smáum stíl og aðeins rækt-
uð fá tonn á ári. Á skömmum
tíma hefur framleiðslan vaxið í
tugi þúsunda tonna.
Ræktun þessi fer fram við Miss-
isippi fljótið í Arkansas, Missouri,
Missisippi, Louisiana og fleiri ríkj-
um í sunnanverðum Bandaríkjun-
um.
Enn sem komið er, er fram-
leiðslan seld nær eingöngu sem
dýr sérréttur á veitingahúsum, en
þegar framleiðslan vex, má vænta
þess, að einnig verði selt í almenn-
um matvörubúðum.
Hvernig skyldi okkar steinbítur
koma út í samkeppni við þennan?
Er hann seldur sem „Gourmet“
sérréttur?
Rússar reyna nýjar
veiðlaðferðir
Rússar gera nú tilraunir með
ljós og tæki, sem gefa frá sér
hljóð, til að draga að sér fisk. í
sumum tilfellum draga þau fisk-
inn að öngli eða neti, en í öðrum
tilfellum eru hljóð eða Ijós notuð
til að reka fisktorfur inn í net eða
á hentugra dýpi til veiða.
Tilraunir þessar eru ekki langt
komnar enn, en margt bendir til,
að hljóð geti verið gagnleg, og
hafa þau tæki þegar þrefaldað til
fimmfaldað afla á sumum stöðum.
AMERÍSKIR VERKSMIDJUTOCARAR
í Baltimore í Maryland er verið
að Ijúka smíði fyrstu tveggja verk-
smiðjutogaranna, sem smíðaðir eru
í Bandaríkjunum. Nefnast þeir
Seafreeze Atlantic og Seafreeze
Pacific. Þeir eru byggðir af Mary-
land Shipbuilding and Drydock
Company fyrir American Stern
Trawlers Inc. í New York. Bygg-
ing togaranna er ríkisstyrkt og
kostar hvor þeirra eigendurna um
230 milljónir króna. Þeir geta unn-
ið úr fimmtíu tonnum af fiski á
dag og geymslurými er fyrir þús-
und tonn í frystigeymslum. Hvort
skip hefur sex troll, sem sögð eru
þau stærstu, sem gerð hafa verið
til þessa, og voru keypt í Vestur-
Þýzkalandi. Kostaði hvert þeirra
um 300 þúsund krónur.