Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1969, Síða 33

Frjáls verslun - 01.05.1969, Síða 33
FRJALS VERZLUN 33 Boeing'-þota Flugfélags íslands flaug yfir mesta annatímann á s.l. ári brettán flugferðir. I áætlunarflugi milli landa flutti félagið 56.386 farþega, en í innanlandsflugi 109.516 farþega. muni ferðamanna og annarra viðskiptamanna ferðaskrifstofa með opinberum afskiptum. Reynslan sýndi hins vegar, að þessi ákvæði laganna frá 1964 voru ófullnægjandi. Þar var upphæð tryggingafjár aðeins 350.000,00 kr. og aðstaða til op- inbers eftirlits ekki nægileg til þess að tryggja, að viðskipta- menn og skuldheimtumenn gætu treyst því, að ferðaskrifstofur gætu jafnan staðið við skuld- bindingar sínar. Því voru seint á árinu 1968 sett lög um breytingu á lögunum um ferðamál frá 1964 og þar m. a. ákveðið, að tryggingafé það. sem setja þarf vegna ferða- skrifstofu, skyldi hækkað úr 350 þús. kr. í 1,5 millj. kr., sem ráðuneytið getur ákveðið að hækka enn frekar, að fengnum tillögum Ferðamálaráðs. Með þessari nýju lagabreytingu var ferðaskrifstofum einnig gert að skyldu að senda ráðuneytinu ár- lega reksturs- og efnahagsreikn- ing undanfarandi árs, endur- skoðaðan af löggiltum endur- skoðanda og ráðuneytinu veitt fortakslaus heimild til að aftur- kalla leyfi, ef heildarvanskil eru meiri en upphæð tryggingafjár- ins nemur. 3) Er einstaklingum frjálst að efna til hópferða innanlands með ferða- fólk gegn auglýstu gjaldi? Samkvæmt 8. gr. laga um ferða- mál, ná ákvæði I. kafla laganna um almennar ferðaskrifstofur, hvorki til Ferðaskrifstofu ríkis- ins, viðurkenndra ferðafélaga, eða eigenda samgöngutækja, að því er tekur til sölu á farseðl- um í eigin ferðir eða með eigin samgöngutækjum, né til hóp- ferða, sem slíkir aðilar þannig skipuleggja, enda þótt nsetur- gisting fylgi. Sé um að ræða félag, starfs- hópa eða samtök, sem fara vill hópferð innanlands, myndi slík- ur hópur venjulega skipta við eiganda samgöngutækis, þann- ig að lögin um ferðamál tækju ails ekki til slíkra tilvika. 4) Víða erlendis starfar sérstakt upplýsinga- eða ferðamálaráðu- neyti. Hvað ver samgöngumála- ráðuneytið íslenzka miklu fé til auglýsinga erlendis og landkynn- ingar? í lögum, sem nýlega voru sam- þykkt á Alþingi um Stjórnarráð íslands, er ekki gert ráð fyrir sérstöku upplýsinga- eða ferða- málaráðuneyti og veit ég ekki til, að komið hafi til álita að setja slíkt ráðuneyti á stofn hér. Samkvæmt 14. gr. laga um ferðamál skal Ferðaskrifstofa ríkisins annast landkynningu, vinna að því að vekja athygli ferðamanna á landinu og kynna það á þanni hátt, að menn fái sem gleggsta mynd af lands- og þjóðháttum, menningu, atvinnu- lífi og framleiðslu. Ferðaskrifstofa ríkisins hefur ekki beina fjárveitingu úr ríkis- sjóði lengur, en bæði þessi og önnur starfsemi hennar er greidd með tekjum skrifstof- unnar af almennum ferðaskrif- stofurekstri, svo og tekjum af minjagripaverzlunum skrifstof- unnar í Reykjavík og á Kefla- víkurflugvelli. Samkvæmt reikningum Ferðaskrifstofu ríkisins 1967, varði hún það ár um 1,3 millj. kr. til landkynningar. Ferða- skrifstofa ríkisins er þátttak- andi í sameiginlegum upplýs- ingaskrifstofum Norðurlanda í ýmsum borgum erlendis.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.