Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1969, Side 55

Frjáls verslun - 01.05.1969, Side 55
frjals verzlun 47 MEÐ BfLINN TIL ÚTLANDA Eítir að hœgri umferð tók gildi hér á landi er mun vanda minna fyrir íslenzka ferðamenn að aka ó meginlandinu. Á undanförnum árum og áratug- um hafa íslendingar gerzt víðreist- ir mjög. Margir hafa byrjað á að fara í hópferðir, en síðan fengið löngun til að reyna nýjar leiðir og ferðast í eigin bílum. Alþjóðlegt ökuskírteini er hægt að útvega sér hjá Félagi íslenzkra bifreiða- eigenda, sérstök tryggingaskírteini þarf að fá hjá einhverju af trygg- ingafélögunum. Þá er sjálfsagt að verða sér úti um vegakort og er mælt með bókinni Europe Tour- ing, sem fæst í bókaverzlunum í Reykjavík. í henni eru öll nauð- synleg kort, og hún geymir mik- inn fróðleik, sem hafa má bæði gagn og gaman af. Einnig fást í bókaverzlunum hentugt rit undir nafninu: Turen gár til ..., dönsk útgáfa, hvert þeirra helgað einu landi. Þar segir frá því helzta, sem fyrir augu ber á hverjum stað, og gefnar eru upplýsingar um matarvenjur og drykki hverr- ar þjóðar, og hvenær mestu há- tíðir eru haldnar. Höfuðkostur bókanna felst þó í leiðarlýsingum, þar sem höfð er hliðsjón af nátt- úrufegurð og merkisstöðum, og ráð fyrir gert, að fólk sé á ferð í eigin bíl. Ennfremur má benda á prýðisbók, er nefnist Europe on Five Dollars a Day. í henni eru veittar upplýsingar um hótel, veit- ingastaði, skemmtistaði og verzl- anir stórborganna fyrir ferða- langa, sem vilja gjarnan fá góða þjónustu án þess að þurfa að eyða mjög miklu fé. GISTIÐ EKKI í STÓRBORGUM Sá, sem ekur eigin bíl, ætti ekki að gista í stórborgum, nema nauð- syn beri til, því að hótelin við þjóðvegina eru ódýrari. Norðan Alpafjalla eru þau til fyrirmynd- ar, hreinlegri og þægilegri en mörg hótelanna í borgunum. í þýzkumælandi löndum eru hótel af þessu tagi nefnd Gasthof, en i frönskumælandi löndum Auberge. Mótelin eru lítið eitt dýrari, en þar geta menn fengið herbergi með baði. Vilji fólk hafa tjald með- ferðis. þá eru sérstök tjaldstæði fyrir ferðamenn í þúsunda tali um alla Evrópu. Rétt er að ganga í tjaldfélag viðkomandi landa og afla sér greinargóðra upplýsinga um tjaldstæðin, því að þau eru misjöfn að gæðum. Það gefur auga leið, að töluvert má spara með því að gista í tjaldi, en hentugt getur líka verið að dveljast á hótelum og tjöldum á víxl. Ef fólk vill borða ódýrt, er góð regla að velja sams konar rétti og innfæddir, því að allur óvenjulegur matur er dýrari. Veitingamenn og þjón- ar eru venjulega mjög fúsir til að gefa ráðleggingar og ábending- ar í þeim efnum. UM VOR EÐA HAUST Hér hefur verið drepið á ýmis atriði. er varða þá ferðalanga, sem aka í eigin bíl. Heppilegasti ferða- tíminn er að sjálfsögðu um vor og haust, vegna þess að þá er flóð- bylgja ferðamanna ekki á hástigi, hitinn þægilegur fyrir íslendinga, umferð á vegum tiltölulega lítil og víðast hvar auðvelt að fá her- bergi á gistihúsum. Eftir að hægri handar umferð tók gildi hér á landi, er mun vandaminna fyrir íslenzka ferðamenn að aka á meg- inlandinu og þar eru þjóðvegirnir ólíkt betri en við eigum að venj- ast. Ef menn kæra sig ekki um að hætta sér inn á aðalumferðar- æðar stórborganna, geta þeir lagt bílnum sínum í úthverfum þeirra og notað almenningsvagna til að komast leiðar sinnar, þar sem um- ferðin er þéttust. FLUTNINGSGJALD Samkvæmt upplýsingum Eim- skipafélags íslands kostar það 1302 krónur að flytja bifreið allt að 4,25 metrum að lengd með Gull- fossi til Leith eða Kaupmanna- hafnar, hvora leið, ef fjórir far- þegar eru um bílinn. Verður flutn- ingsgjald fyrir bifreiðina hærra eftir því, sem farþegarnir eru færri. Gjaldið er nokkx-u hærra fyrir stærri bifreiðir. Á Gullfossi er hægt að flytja 16 til 20 bíla í hverri ferð og einn- ig tekur Kronprins Frederik bíla í ferðum sínum. Þá er og hugsan- legt, að fai-þegar með Gullfossi geti fengið bíla sína flutta með einhverju af vöi’uflutningaskipum Eimskipafélagsins til hafna á Norðurlöndum fyrir sama verð og um flutning með Gullfossi væri að ræða. í verði því, sem greint var frá að ofan, er allt innifalið, þ. e. a. s. útskipun og afskipun. Séu hins vegar engir farþegar með bifreið- inni á skipinu verður flutnings- gjald hennar miklu hærra og reiknast eftir rúmmáli. Við það bætast svo ýmis önnur gjöld.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.