Frjáls verslun - 01.05.1969, Page 57
FRJÁLS VERZLUN
49
BYGGINGAR
PAN AMERICAN
BYGGINGIN ER
STÆRSTA SKRIFSTOFU-
BYGGING í HEIMI
Þar vinna 17 þúsund manns og 250 þúsund gestir
eiga þangaS erindi daglega.
Hin mikla Pan American bygg-
ing í New York er stærsta skrif-
stofu- og verzlunarhús í heimi.
Raunar er byggingin líkari lítilli
borg, með öllum þeim mismun-
andi þjónustum, sem hún býður
upp á. Einn munur er þó sá, að
umferðin í byggingunni fer upp
og niður, með mesta flutninga-
kerfi, sem til er undir einu þaki.
Fólk þýtur upp og niður um 59
hæðir með lyftum, sem sumar fara
með 530 metra hraða á mínútu
eða um tvær hæðir á sekúndu.
Lyftur eru 65 og rúllustigar eru
21.
í byggingunni vinna 17 þúsund
manns og 250 þúsund gestir eiga
þangað erindi daglega. Ekki trufl-
ar þetta fólk, sem starfar í hús-
inu, og telja margir hagræði að
vera í svo stóru húsi, þar sem oft
má ljúka viðskiptum innan húss-
ins, sem annars myndu kosta
tímafrek ferðalög. Fyrirtæki frá
tíu erlendum löndum hafa þarna
skrifstofur, auk stórra amerískra
fyrirtækja eins og Westinghouse,
Alcoa. Kodak, og að sjálfsögðu
Pan American, sem notar fjórð-
ung hússins fyrir sig. Alls eru í
húsinu 222.960 fermetrar af skrif-
stofurými.
Til að þeir, sem í húsinu vinna,
geti haft samband hver við ann-
ann og umheiminn, er mikið fjar-
skiptakerfi, sem tekur tvær heil-
ar hæðir. Tuttugu þúsund símar
eru tengdir við 80 þúsund kíló-
metra af símalínum. Og þó að
byggingin hafi 8 þúsund glugga. er
engan þeirra hægt að opna. Hit-
unar- og loftræstikerfi blæs 140
þúsund rúmmetrum af lofti á mín-
útu inn í bygginguna.
í húsinu eru tugir lítilla matstofa
og auk þess fjögur stór veitinga-
hús. Án þess að fara út fyrir dyr
er hægt að leggja fé inn í banka,
kaupa og selja verðbréf hjá mörg-
um verðbréfasölum, fá gert við
skó og filmur framkallaðar. gert
við úr og keypt blóm. skartgripi
og jafnvel útvörp og plötuspilara,
svo nokkuð sé nefnt. I húsinu eru
rakarastofur og hægt er að ná til
augnlæknis og tannlæknis.
í anddyrinu eru stöðugt haldn-
ar listsýningar, ýmist á verkum,
sem byggingin á sjálf, eða almenn-
ar sýningar. Höggmynd, sem nefn-
ist „Flugið“, er samansett úr þús-
undum stál- og gullvíra og nær
upp í gegnum þrjár hæðir.
Bygging þessi hefur þótt sér-
lega vel heppnuð, ekki sízt vegna
þess, hvernig hún er tengd sam-
göngukerfi borgarinnar. Hægt er
að fara í lyftu niður fyrir götu
og ná þar í neðanjarðarlestir víðs-
vegar um borgina og einnig til
nærliggjandi járnbrautarstöðva.
Fyrir eigendurna hefur hún gef-
izt vel, því að ekki hefur verið
einn fermetri af óleigðu húsrými,
frá því að húsið var opnað fyrir
sex árum.
ferðaskrifstoía bankastrætl7 simar 16400 12070
^ Almenn
ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta Sunnu um allan heim fyrir hÓRO, fyrirtæki og einstaklinga er
viðurkennd af þeim fjöjmörgu er reynt hafa. Reynið Telex ferðaþjónustu
okkar. Aldrei dýrori en oft ódýrari en annars staðar.
\Mm\
feroirnar sem folkið velnr