Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1969, Page 63

Frjáls verslun - 01.05.1969, Page 63
trjáls verzlun 55 SÓLARLÖND Costa del Sol og Mallorka vinsælustu ákvörðunarstaðirnir SUNNA og ÚTSÝN bjóða enn ódýrar utanlandsferðir. Vegna hækkunar flugfargjalda og ferðakostnaðar til útlanda al- mennt í framhaldi af gengislækk- un íslenzku krónunnar, verða það sennilega mun færri, sem leggja land undir fót í sumar en verið hefur á undanförnum árum. Þó bjóðast enn tækifæri til þess að ferðast ódýrt utanlands og þeir, sem á annað borð hyggja á utan- landsferðir í sumar, munu eflaust velja einhverja hópferðina, sem ferðaskrifstofurnar bjóða upp á og þá einkanlega suður á sólar- strendur Spánar eða Mallorka. MIÐJARÐARHAFSFERÐIR Tvær íslenzkar ferðaskrifstofur, Ferðaskrifstofan Útsýn og Ferða- skrifstofan Sunna, skipuleggja ó- dýrar hópferðir með leiguflugi beint suður í sumar og sól. Með því sparast háar fjárupphæðir og verður ferðalagið með uppihaldi þar syðra í hálfan mánuð mun ódýrara en venjulegt flugfargjald milli Reykjavíkur og Miðjarðar- hafslandanna. Þess ber þó að geta í þessu sambandi, að á síðustu fargjaldaráðstefnu alþjóðasam- bands flugfélaga, IATA, voru sam- þykkt sérfargjöld, sem í gildi eru milli íslands og Spánar eða Portú- gals á tímabilinu frá 1. apríl til 31. október. Verður nánar vikið að þeim síðar. ÚTSÝNARFERÐIR TIL SPÁNAR Það eru liðin ellefu ár frá því, að Ferðafélagið Útsýn efndi til fyrstu Spánarferðarinnar, með leiguflugi beint frá íslandi. í ár hefur Útsýn boðið nýjung, sem tekur mörgu öðru fram, er áður hefur þekkzt á íslenzkum ferða- markaði, það er að segja þotuflug með þotu Flugfélags íslands beint á sólarströnd Spánar, Costa del Sol. Og með gistingu á góðum hót- elum í 15 daga er verðið aðeins helmingur þess, sem venjulegt far- gjald kostar sömu leið. Fáir baðstaðir Evrópu geta keppt við Costa del Sol, Miðjarð- arhafsströnd Andalúsíu. Þar er eitt bezta loftslag álfunnar, nátt- úrufegurð, sem óvíða á sinn líka, góð hótel, ódýrt og fjölbreytt skemmtanalíf og verzlanir, og af- ar margir ferðamöguleikar fyrir þá. sem ekki vilja aðeins njóta sólar og skemmtunar, heldur einn- ig kynnast töfrum þessa sólbjarta lands. sögu þess. siðum og þjóð- lífi í þeim hluta þess, sem er sér- kennilegastur, fegurstur og sögu- frægastur. Af öllu spönsku er ekk- ert sagt jafn spánskt og Andalús- ía og íbúar hennar. Á strönd Andalúsíu reistu Már- arnir skrauthallir sínar og skemmtigarða til forna og þar er flamenkodansinn upprunninn og skáldskapur, söngur og dans sam- ofin lífi fólksins. Á aðra hönd er að sjá hafið og sendna sti'önd, síð- an taka við pálmatré, sem sveigja krónur sínar fyrir hafgolunni, en vínekrur, appelsínu- og sítrónu- lundir teygja sig upp fjallshlíð- arnar. Skammt er upp í kyrrlát fjallaþorpin, sem varðveita alda- gamla siði og þjóðvenjur, ósnort- in af erli nútímans. Óvíða eru há- tíðahöld Spánverja með meiri gleði og glæsibrag, og í ágústmán- uði þyrpast ferðamenn hundruð- um þúsunda saman til að sjá há- tíðahöldin í Malaga, Merie og fleiri borgum á Costa del Sol. Matargerðarlistin stendur á háu stigi í Andalúsíu og vínin eru ljúf- feng og fræg um allan heim enda eru þar einhverjar elztu vínekrur heimsins, allt frá dögum Fönikíu- manna. JBEINT TIL MALAGA Útsýn efnir í sumar til fimm leiguferða með þotu FÍ beint frá

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.