Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 65
FRJALS VERZLUN
57
Reykjavík til Malaga á suður-
strönd Spánar. Verður fyrsta ferð-
in farin 8. ágúst, en hin síðasta 3.
okt. Eru ferðirnar yfirleitt 15 daga
ferðir, en sú síðasta 21 dagur. Far-
ið verður á föstudagskvöldum frá
Keflavíkurflugvelli og komið tii
Malaga eftir fjögurra klukku-
stunda flug. Þar tekur starfsmað-
ur Útsýnar á móti ferðafólkinu og
að lokinni vegabréfaskoðun skipt-
ist hópurinn í bila eftir hótelum
og ekið er til Torremolinos og
Fuengirola, um hálftíma ferð, og
hverjum og einum hjálpað að
koma sér fyrir til gistingar.
Torremolinos er talinn einn
helzti tízkubaðstaður Evrópu í
dag. Skilyrðin eru þar hin ákjós-
anlegustu til að njóta sólar og
skemmtunar. Hótelin eru glæsi-
leg, andrúmsloftið alþjóðlegt og
frjálslegt. Ferðaskrifstofan Útsýn
hefur gert hagstæða samninga við
gistihús og matsölustaði, svo að
verðið er sambærilegt við aðrar
baðstrandarferðir frá íslandi, þótt
fargjaldið sjálft sé örlitlu hærra
í samræmi við vegalengdina. Far-
þegar geta valið um tvö fyrsta
flokks hótel og lúxushótel og góð-
ar nýtízku íbúðir rétt við aðal-
skemmtisvæði Torremolinos og
skammt frá ströndinni. Gististað-
irnir hafa einkabaðherbergi, sval-
ir og sundlaugar.
Um 15 kílómetra vestan Torre-
molinos stendur blómskrýtt þorp
á ströndinni, Fuengirola. Þar er
kyrrlátara en í Torremolinos og
naumast finnst betri staður til
hvíldar. Þar er hægt að spóka sig
á baðfötum daglangt, enda aðeins
steinsnar niður að ströndinni og
aðstaða öll hin bezta til að njóta
veðurblíðunnar. Þeir, sem búa í
Fuengirola, eiga kost á sömu
kynnisferðum og farþegar í
Torremolinos og fyrir sama verð
og þjónustu fararstjóra. Farþegar
Útsýnar eiga ókeypis aðgang að
bezta næturklúbbnum í Fuengir-
ola, en stöðugar strætisvagnaferð-
ir eru til Torremolinos fyrir þá,
sem heldur kjósa að leita skemmt-
unar þar.
ÚRVAL
KYNNISFERÐA
Farþegar í Útsýnarferðum njóta
fulls frjálsræðis til að verja tím-
anum að eigin geðþótta, eins og
væru þeir einir á ferð, en aðstoð
og ráðleggingar fararstjórans
standa alltaf til boða og er hann
því í sambandi við farþega á öll-
um hótelunum daglega. Á dagskrá
er fjölbreytt úrval kynnisferða,
sem farnar eru undir leiðsögn far-
arstjórans um héruð Andalúsíu og
Costa del Sol. Fararstjórinn til-
kynnir um kynnisferðir og sækir
og skilar farþegunum á hótel.
Hvað er svo að sjá á sólarströnd
Spánar?
Malaga, höfuðborgin á Costa
del Sol, þrjú hundruð þúsund
manna bær, er staðsett í frægu
vínyrkjuhéraði, ólgandi af suð-
rænu lífi og stemmningu, þar sem
sjá má rústir 2000 ára gamals róm-
versks leikhúss, Alka Saba, átta
hundruð ára gamalt vígi Mára og
kastalann Gibral Farao. Einnig
þrætueplið Gíbraltar, hið forna
vígi Breta við Njörvasundið. Sval-
ir Evrópu nefnist svo leiðin hjá
Nerja. sökum hins óviðjafnanlega
útsýnis, en þar eru líka frægir
kalksteinshellar. Hin heillandi
Andalúsíuþorp Ronda og Mijas
eða Koing, sem fræg eru fyrir app-
elsínu- og sítrónurækt og fagran
handiðnað. Síðasta vígi Mára á
Spána, Granada, er skammt frá og
ferð til Madrid þarf ekki að kosta
mikið og auðvelt er að komast til
Cordova Sevilla og síðast en ekki
sízt að bregða sér suður yfir sund-
ið til Afríku og dveljast dag í
Marokkó. Ferð til Tangier í Mar-
okkó kostar rúmar tvö þúsund ís-
lenzkar krónur, með gistingu þar
í borg eina nótt.
ÞÆGILEGT LOFTSLAG
Loftslag á Costa del Sol er mjög
ákjósanlegt. Meðalhitinn þar í ág-
úst er 20,4 stig C, í september 23,1
stig og í október 19,5. Sólardagar
í ágúst eru 31 að meðaltali, 27 í
september og 27 í október. Rign-
ingardagur er enginn í ágúst, 3 í
september og 4 í október. Meðal-
hiti sjávar í ágúst er 24,2 gráður,
21,2 í september og í október 18,3.
Árið 1968 voru sólardagar á Costa
del Sol samtals 348.
FARGJÖLD
Verðlag í þessum ferðum er all
misjafnt. Til þess að gefa nokkra
hugmynd um það, má nefna, að
í fyrstu hópferðinni, sem ráðgerð
er 8. ágúst, 15 daga ferð, er lægsta
verð 14.200,00 krónur, en í því
er innifalið flugfar, gisting á hót-
eli og morgunverður. Sé hins veg-
ar leigð íbúð til gistingar í, er
verðið 16.800,00 krónur eða 18,-
800,00 krónur, það fer eftir því,
hvort tveir eða fjórir taka íbúð
saman. í fjögurra manna íbúðum
eru tvö svefnherbergi, dagstofa,
bað og eldhús. Vilji menn hins
vegar borga fullt fæði með gist-
ingu í íbúðunum, verður verðið
nokkru hærra, eða 21.300,00 krón-
ur í fjögurra manna íbúð og 22.-
800,00 í tveggja manna íbúð. Gist-
ing á hóteli með fullu fæði kostar
21.800,00 krónur. í næstu þremur
ferðum þar á eftir er verðlagið
yfirleitt þúsund krónum hærra
miðað við það sem upp hefur ver-
ið talið hér að framan. Og í síð-
ustu ferðinni, 3. október, 1500—
2000 krónum hærra í hverjum
flokki. Þeir, sem velja þann kost-
inn að kaupa gistingu í íbúð, án
þess að matur sé innifalinn í verði,
geta keypt hjá ferðaskrifstofunni
miðað við það, sem upp hefur ver-
og vínum, sem kosta hver um 100,-
00 íslenzkar krónur, og er síðan
hægt að framvísa þeim á matsölu-
stöðum í nágrenni við íbúðirnar
eða í sameiginlegum matsal í
byggingunum. í framhaldi af þessu
má svo geta þess, að Ferðaskrif-
stofan Útsýn býður nú 25% fjöl-
skylduafslátt í Spánarferðum sín-
um. Greiða þá foreldrar fullt
gjald, en fyrir hvert barn reikn-
ast 25% afsláttur, af skráðu verði.
AUKAÚTGJÖLD
Verðlag er mjög hagstætt í næt-
urklúbbum og skemmtistöðum á
Costa del Sol og er íslenzkum
ferðamönnum, sem þangað hyggj-
ast fara, ráðlagt að fá yfirfærðar