Frjáls verslun - 01.05.1969, Síða 75
FRJÁLS VERZLUN
67
„EFLA ÞARF FERÐAMÁLASJÓÐ
Ofi AFLA FJÁR TIL LANDKYNNINCAR
— segir Ludvig Hjálmtýsson, framkvœmdastjóri
F erðamálaráðs.
— Hver voru tildrögin að stofn-
un Ferðamálaráðs, hvert er
hlutverk þess og hverjir eiga
sæti í því?
Tildrögin að stofnun Ferðamála-
ráðs má rekja til ræðu, sem Gunn-
ar Thoroddsen, ambassador, flutti
á Arnarhólstúni 17. júní 1958.
Gunnar Thoroddsen benti m. a. á
í ræðu sinni að við ættum, eins
og aðrar þjóðir, sem voru að ná
sér eftir styrjöldina, að leggja á-
herzlu á, að fá hingað erlenda
ferðamenn í auknum mæli og
skipuleggja ferðamannasamtökin,
enda ættum við að kynna landið
umheiminum, menningu okkar og
þjoðhætti. Við ættum að taka und-
ir með Ibsen í Pétri Gaut: „Þar
úti, sem nótt fyrir árdegi víkur,
er ortakið: „Maður, ver sjálfum
þér líkur“.“ En hafni hinu, sem
Ludvig Hjálmtýsson
gildir um þursann: „Meðal vor,
þar sem myrkt er öll dægur, er
máltækið: „Þursi, ver sjálfum þér
nægur“.“ Um þetta sama leyti
höfðum við nokkrir áhugamenn
um ferðamál stofnað Ferðamála-
félag Reykjavíkur. Gísli Sigur-
björnsson, forstjóri, var formaður
félagsins, en auk mín voru í stjórn-
inni með honum Agnar K. Han-
sen, flugumferðarstjóri, Eggert P.
Briem, fulltrúi; Ásbjörn Magnús-
son, sem nú starfar hjá Loftleið-
um; Njáll Símonarson, sem þá var
starfsmaður hjá Flugfélagi fslands
hf. og Halldór Gröndal, veitinga-
maður á Nausti. Stjórn Ferðamála-
félagsins fagnaði að sjálfsögðu
ræðu Gunnars Tlioroddsen. Ég
ræddi svo málið við Gunnar Thor-
oddsen, og það varð að samkomu-
lagi, að farið væri fram á, að Egg-
ert P. Briem semdi drög að laga-
frumvarpi um ferðamál, enda var
hann vel kunnugur öllum hliðum
ferðamálanna. Hann þekkti manna
bezt gallana á lögunum um Ferða-
skrifstofu ríkisins, sem komu til
framkvæmda 1936. Eggert sendi
svo frá sér vel uppbyggt frum-
varp um ferðamál. En þótt frum-
varp hans væri í alla staði ágætt,
var sá hængur á, að Ferðaskrif-
stofa ríkisins var til orðin vegna
harðfylgis Alþýðuflokksins. Var
mönnum ljóst að frumvarp Egg-
erts mundi ekki nást fram á Al-
þingi, vegna andstöðu Alþýðu-
flokksins. Gunnar Thoroddsen hóf
nú tilraunir til að vinna Alþýðu-
flokkinn til fylgis við einhverjar
breytingar til bóta á lögunum frá
1936. Næst skeður það, að Gunn-
ar breytir í nokkrum atriðum til-
lögum Eggerts og semur nú nýtt
frumvarp, sem hann leggur fram
á Alþingi, og fær sem meðflutn-
ingsmenn þá Jóhann Hafstein,
Magnús Jónsson frá Mel, Jónas
Rafnar og Sigurð Bjarnason frá
Vigur. Líður nú nokkur tími og
a. m. k. dagar frumvarpið uppi á
tveim þingum. Loks er svo skip-
uð nefnd til að athuga upphaf-
lega frumvarpið og gera á því
breytingar. Nefndin var skipuð
Brynjólfi Ingólfssyni, ráðuneytis-
stjóra; Sigurði Bjarnasyni frá Vig-
ur og Þorleifi Þórðarsyni, forstjóra
Ferðaskrifstofu ríkisins. Þessi
nefnd vann mikið og gott starf,
leitaði eftir umsögnum ýmissa að-
ila, erlendra og íslenzkra. Til að