Frjáls verslun - 01.08.1969, Blaðsíða 9
FRJÁLS VERZLUN
9
Norskur skemmiferðabátur, teiknaður fyrir Bandaríkjamarkað af Philip
C. Bolger, en hann teiknaði einnig íslenzka bátinn.
Bátaútflutningur Norðmanna
ÁriS 1967 fluttu Norðmenn út báta undir 100
smál. fyrir um 86 millj. norskra króna, en að-
eins um 12 millj. norskra króna árið 1957.
Af þessari upphœð nam útflutningur
skemmtibáta 51 millj. norskra króna, en út-
flutningur annarra báta, svo sem björgunar-
báta og smœrri fiskibáta 35 millj. norskra
króna. Fiskiskip yfir 100 smál. voru flutt út fyr-
ir 36 millj. norskra króna árið 1967, í saman-
burði við 7,5 millj. norskra króna árið 1957.
Árið 1967 nam því útflutningur Norðmanna
á bátum undir 100 smál. og fiskiskipum yhr
100 smál. um 122 millj. norskra króna.
Möguleikar íslendinga.
Þegar rætt er um að reyna að
komast inn á bandarískan mark-
að með skemmtibáta, verða menn
að gera sér grein fyrir því, að við
harða samkeppni er að etja, bæði
við bandarískan bátaiðnað og við
bátaiðnað margra annarra þjóða.
Norðmenn hafa mikið smíðað slíka
báta úr glértrefjum, en önnur
smíðaefni eru stál, tré og ál.
Að vandlega íhuguðu máli hafa
Hitatæki hf. komizt að þeirri nið-
urstöðu, að vænlegast sé að komast
inn á bandarískan markað með
bát í svokölluðum CLASS 3, en
það eru 40—65 feta skemmti-
snekkjur (cabin cruisers), stórar
og íburðarmiklar. Snekkjur und-
ir 40 fetum eru í fjöldafram-
leiðslu í Bandaríkjunum, og við
slíka framleiðslu geta íslendingar
ekki gert sér vonir um að keppa,
40—45 feta bátur er aftur á móti
fyrir ofan mörk fjöldaframleiðsl*
unnar, bátar af þeirri stærð eru
handsmíðaðir, og telja Hitatæki
hf., að góðir möguleikar séu á að
keppa við handsmíði Bandaríkja-
manna. Veldur því hagstæður sam-
anburður á kostnaði vinnuafls í
Bandaríkjunum og á íslandi og
einnig það, að íslenzkir iðnaðar-
menn eru fyllilega færir um að
skila jafn góðri eða betri fram-
leiðslu en tíðkast á bandarískum
markaði í þessum efnum. Hitatæki
hf. hafa gert frumdrög og lauslega
áætlun um smíði 45 feta skemmti-
snekkju og telja, að með þeirri
stærð séu íslendingar fyllilega
samkeppnishæfir við bandaríska
framleiðendur hvað snertir verð,
frágang og' gæði.
Hefur fyrirtækið nú fengið
kunnan bandarískan skipaverk-
fræðing og teiknara, Philip C.
Bolger í Gloucester í Massachu-
setts, til að gera frumdrög að
skemmtisnekkju. Bolger hefur
gefið bátnum nafnið BERSERKR.
„BERSERKR“ er 45 fet að lengd
og yi’ði smíðaður úr áli. Hefur
notkun áls til slíkra skipasmíða
farið sívaxandi, það er léttara
Og auðveldara í meðferð en önn-
ur efni. Er Hitatæki hf. tóku á-
kvörðun um efnisval, var það haft
í huga, að hér á landi hafa skipa-
smíðastöðvar þegar fengið tals-
vei’ða reynslu í álsmíði, einkum við
smíði yfii’bygginga, og verkkunn-
átta og tæki eru fyrir hendi hjá