Frjáls verslun - 01.08.1969, Blaðsíða 59
FRJÁLS VERZLUNf
5«
FÚAVARNAREFNI
Ekkert byggingarefni, beint úr
skauti náttúrunnar, er eins vin-
sælt og trjáviður. Hann hefur lif-
að og vaxið, — og það, ásamt eig-
inleikum hans, fjölbreytni og
hinni náttúrulegu fegurð, — hef-
ur átt sinn þátt í því, að hann er
eins mikið notaður og raun ber
vitni.
En þó svo að trjáviðurinn sé
mjög sterkt efni, er hann sem
byggingarefni, varnarlaus gagn-
vart alls kyns sveppagróðri, fúa
og öðrum eyðandi öflum úr ríki
náttúrunnar. Samt sem áður er
varla nokkurt annað efni, sem
auðveldara eða ódýrara er að
vernda.
SOLIGNUM fúavarnarefnið var
fyrst framleitt árið 1894, og á þvi
75 ára afmæli á þessu ári. Á þess-
um langa fei'li, hafa framleiðend-
ur stöðugt aukið og endurbætt
framleiðslu sína, enda fengið við-
urkenningu fjölda byggingarfyrir-
tækja og opinberra stofnana um
allan heim.
Vegna fjölda viðartegunda, og
þá um leið mismunandi eiginleika
viðar til notkunar á ólíkum stöð-
um, er SOLIGNUM framleitt í 12
mismunandi gerðum og í yfir 50
litum og litaráferðum. Er þetta
gert til þess að geta fullnægt öll-
um þeim kröfum, sem gerðar eru
til viðar, hvar sem hann kann að
vera notaður.
EXTERIOR: — sérstaklega á-
hrifaríkt en seinþornandi fúa-
varnarefni, til notkunar utan-
húss, þar sem lítil hætta er á, að
það smiti frá sér.
INTERIOR: — til notkunar þar,
sem EXTERIOR er ekki komið
við vegna smithættu, og einnig
innanhúss, t. d. á gólf.
BRUN: — mjög sterkt fúavarn-
arefni, á mörkunum að vera EX-
TERIOR og INTERIOR.
Sérhvert þessara þriggja efna
er framleitt í þremur brúnum lit-
um, dökkbrúnt, millibrúnt og
ljósbrúnt.
COLOURLESS: — Litlaus fúa-
vari, til þess að grunnfúaverja,
áður en viðurinn er meðhöndlað-
ur á annan hátt, t. d. rneð ULTRA-
litum, lakkaður eða málaður.
COLOURED: — fúavarnarefni,
sem hvoru tveggja í senn smýgur
inn í viðinn og litar yfirborð hans.
RED CEDAR — tekklitað fúa-
varnarefni, sem einnig hrindir
vatni frá sér. Það er vel til innan-
hússnotkunar fallið jafnt sem ut-
an.
V. DK.: — ljósgrænn fúavari,
algerlega skaðlaus viðkvæmum
gróðri og því vel fallinn til notk-
unar í gróðurhúsum og görðum.
ARCHITECTURAL: — þunnt
litarefni, sem þekur yfirborð við-
arins, líkt og málning, en flagnar
ekki af (sjá Höfða, hús borgar-
stjórnar við Borgartún).
ULTRA: — 18 sérlega áferða-
fallegir viðarlitir, sem aðeins lita
yfirborðið, þannig að mælt er með
COLOURLESS á undan, til þess
að grunnfúaverja viðinn.
WATER STOP: — mjög æski-
legt er að bera WATER STOP yf-
ir ULTRA litina utanhúss, þar
sem þetta litlausa efni ver viðinn
vatni, þannig að vatnið liggur
ekki á viðnum, heldur perlar af
og eykur þar með eindingu litar-
ins að miklum mun.
Eitt er sameiginlegt öllum gerð-
um SOLIGNUM fúavarnarefnis,
að ARCHITECTURAL undan-
skildu, en það er, að viðurinn
heldur sinni náttúrulegu áferð,
þ.e.a.s. að æðar hans og önnur
yfirborðseinkenni, sem hafa gert
viðinn að þessu vinsæla bygging-
arefni, halda sér og jafnvel skýr-
ast. Að öllu athuguðu mætti því
með sanni segja, að varla sé nokk-
urs staðar til sá viður, þar sem
SOLIGNUM fúavarnarefnið full-
nægi ekki kröfunum, með til-
liti til veðurfars, umhverfis og
smekks.
ÚTGERÐARMENN ÚTGERÐARMENN
Höfum ávallt fyrirliggjandi 1 Þeir útgerðarmenn, sem enn
alit til togveiða svo sem: | hafa ekki gert pöntun á
Botnvörpunet, i | þorskanetum íyrir næstu ver- tið eru vinsamlegast beðnir að
Polypropylene-tóg, i hafa samband við okkur hið r fyrsta.
Polyethylene-tóg,
botnrúllur (bobbinga), ] IHARCO H.F.
togvíra, hlera o. fl. r Aðalstræti 6, Reykjavík Símar 13480 og 15953.