Frjáls verslun - 01.08.1969, Blaðsíða 11
FRJÁLS VERZLUM
11
hvað búnaður er fullkominn og
íburðarmikill. „Við teljum,“ sagði
Ásgeir, „að mjög vel þurfi að
vanda til fyrsta bátsins og geia
hann að ýmsu leyti betur úr garði
en sambærilega báta í Bandaríkj-
unum, án þess þó að skaða sam-
keppnisaðstöðuna. Helzt þyrfti
báturinn að vera betri og ódýrari
en aðrir bátar í sama flokki og yrði
þá eins konar sýningarbátur. Telja
verður vonlaust að ætla sér að
komast inn á markað sem Banda-
ríkjamarkað, án þess að hafa sýn-
ingarbát. Menn fara ekki að
leggja út í tugþúsund dala fjár-
festingu með teikningu eina til
hliðsjónar.
Hins vegar má telja fullvíst, að
hægðarleikur sé að selja einn slík-
an bát, ef honum væri komið vest-
ur, en spurningin er aðeins sú,
hversu marga væri hægt að selja.
Árlega eru haldnar margar
bátasýningar í Bandaríkjunum, og
eru þær veigamestu í New York
í janúar, Miami í febrúar og
Chicago í október. Þessar sýning-
ar eru einkum sóttar af bátasöl-
um, vélasölum og öðrum, sem
kynna sér þá framleiðslu, sem er
á markaðinum hverju sinni. Telja
Hitatæki hf. brýna nauðsyn bera
til að geta sýnt íslenzkan bát á
þessum sýningum, því að þar gefst
tækifæri til að hitta alla helztu
menn í iðnaðinum.“
A hverju ári eru haldnar fjölmargar bátasýningar. Verða íslendingar
með á slíkum sýningum í framtíðinni?
allmörgum aðiljum til álsuðu (arg-
onsuðu).
„BERSERKR" er ætlaður til
hvers konar sjóíþrótta, skemmti-
siglinga og almennrar notkunar,
og þar sem markaðssvæðið er eink-
um austurströnd Band.aríkjanna,
hefur Bolger teiknað bátinn með
hliðsjón af aðstæðum þar, enda
sjálfur þaulkunnugur þeim kröf-
um sem gerðar eru til slíkra báta
á austurströndinni.
Gert er ráð fyrir, að „BER-
SERKR“ yrði búinn tveimur dies-
elvélum og ganghraði yrði mest-
ur 21 hnútur, en siglingarhraði 10
hnútar. Telur Bolger, að ekki sé
þörf á meiri hraða. Bolger telur
og tilgangslaust að ætla að hafa
eina vél í bátnum, því að þá yrði
gengið í berhögg við óskir og
kröfur kaupenda. Um þrjár gerðir
véla er einkum að ræða, Caterpill-
ar, GM eða Cummings. Mikilvægt
er, að vélar og sem mest af búnaði
bátsins sé bandarískt, með tilliti
til væntanlegrar þjónustu.
Kostnaður.
Lauslega má áætla, að kosta
muni 4%—6 milljónir kr. að smíða
slíkan bát og búa vélum og öðrum
búnaði, en heildarkostnaður fer
að sjálfsögðu nokkuð eftir því,
Fjánnálin.
Af þeim 4V2—6 milljónum kr.,
sem er áætlaður kostnaður, má
telja víst, að unnt sé að fá um
2—2 V-2. milljón kr. að láni í áli og
hjá véla- og efnissölum. T. d. hafa
umboðsmenn vélaframleiðenda
boðið mjög hagstæð kjör og
greiðsluskilmála. Bundið fjármagn
(innlent) gæti verið um eða yfir
3 millj. kr., þó ekki allt í einu,
og setja þyrfti tryggingu fyrir 2—
2% millj. kr. til véla- og efnissala.
Erlent efni og búnaður er allt
háð tollum hér, en búast má við,
að ríkið endurgreiði ca. 10% af
samningsupphæð. í Bandaríkjun-
um eru allir hlutir, sem keyptir
eru þar í landi, tollfrjálsir við
endurflutning, en 7% tollur er
á öðru.
Eins og fram kemur í því, sem
hér er ritað, hafa Hitatæki lif.