Frjáls verslun - 01.08.1969, Blaðsíða 40
4Q
TRJALS VERZLUNf
Ilafnarfjörðui* hefur ört vaxandi íbiiatöln
og er hiin iió 9000 ......
lagzt að bryggju nema í Hafnar-
firði.
Á þeim tíma, er Hafnarfjörður
fékk kaupstaðarréttindi voru gerð
út 18 fiskiskip þaðan og sjómenn
voru taldir 278. Á þessum tíma
voru þeir Ágúst Flygenring og
Einar Þorgilsson kunnustu at-
hafnamennirnir í Hafnarfirði og
skömmu síðar var Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar stofnuð. Þessi fyrir-
tæki hafa haldizt að stofni til,
þótt nýir menn hafi tekið við
stjórnartaumunum í fyrirtækjun-
um. Eitt umfangsmesta fisk-
vinnslufyrirtæki í Hafnarfirði er
H.f. Lýsi og Mjöl, en einnig mætti
nefna Fiskiðjuver Bæjarútgerðar-
innar. Kunnur útvegsmaður í
Hafnarfirði er einnig Loftur
Bjarnason, en hann rekur þó hluta
af starfsemi sinni í öðru byggðar-
lagi (Hvalstöðin í Hvalfirði).
Eitt yngsta fiskvinnslufyrirtæki
í Hafnarfirði er Norðurstjarnan
h-f., sem stofnuð var fyrir nokkr-
um árum og leggur' niður síld í
neytendapakkningar. Ymsir örð-
ugleikar hafa mætt rekstri fyrir-
tækisins, og þá fyrst og fremst
hráefnisskortur. Vonandi rætist
þó úr, því hér er um að ræða
mjög mikilverða starfsemi, ekki
einungis fyrir Hafnarfjörð, held-
ur og alla þjóðina.
IÐNFYRIRTÆKI.
Allmörg iðnfyrirtæki eru rekin
í Hafnarfirði, og eru flest þeirra
gömul og gróin. Meiri hluti þeirra
eru iðnþjónustufyrirtæki, svo sem
vélsmiðjur, blikksmiðjur, tré-
smiðjur og vélaverkstæði. Hafa
sum umfangsmikla starfsemi með
höndum. Nefna má Vélsmiðju
Hafnarfjarðar, Vélsmiðjuna Klett,
Vélsmiðjuna Hrými, Bílaverið við
Reykjanesbraut, Bifreiðaverkstæði
Hafnarfjarðar o. fl.
Tvær skipasmíðastöðvar eru
reknar í Hafnarfirði, Bátalón og
Skipasmíðastöðin Dröfn. Fyrr-
nefnda stöðin hefur mest fengizt
við nýbyggingu báta, og hefur
hún á undanförnum árum smíðað
fjölmarga minni báta. Hjá Dröfn
er meira fengizt við viðgerðir
báta og skipa.
Raftækjaverksmiðjan h.f-, sem
hinn kunni athafnamaður Axel
Kristjánsson rekur, hefur á liðn-
um árum verið einn stærsti aðil-
inn í sölu heimilisraftækja á fs-
landi. Framleiðsla verksmiðjunn-
ar hefur getið sér mjög gott orð,
og má fullyrða, að hún sé fylli-
lega samkeppnisfær við innflutt-
ar rafmagnsvörur.
Sem fyrr segir, eru í Hafnar-
firði nokkrar trésmiðjur og hús-
gagnasmíðastofur. Má þar til
nefna Reykdalsverksmiðjuna, er
framleiðir mikið af gluggum og
hurðum, Húsgagnaverzlun Hafn-
arfjarðar og Form s.f., er fram-
leiðir húsgögn.
ÞJÓNUSTA.
Prentsmiðjur og prentmynda-
gerð eru reknar í Hafnarfirði.
Stærsta prentsmiðjan er Prent-
smiðja Hafnarfjarðar, en einnig
má til nefna Litmyndir h.f., sem
er þekkt fyrir vandaða og fallega
vinnu. Þá rekur einn umfangs-
mesti bókaútgefandi landsins fyr-
irtæki sitt í Hafnarfirði. Er það
Oliver Steinn, og nefnist útgáfa
hans Skuggsjá- Bróðir Olivers,
Þorkell, rekur einnig bókaútgáfu
í Hafnarfirði. Nefnist sú Snæfell.
Bankar og bankaútibú hafa
þrifizt með ágætum ! Hafnarfirði,
svo sem annars staðar. Sparisjóð-
ur Hafnarfjarðar er gömul stofn-
un. Nú síðari ár hafa Samvinnu-
bankinn og Iðnaðarbankinn opnað
útibú í Hafnarfirði.
Lítið hefur farið fyrir hótelum
og þjónustu við ferðafólk til þessa
tíma, en nú er að taka til starfa
mjög myndarlegt veitingahús, er
Skiphóll h.f. rekur. Stendur styrr
um það, hvort hús þetta skuli fá
vínveitingaleyfi eða ekki, og
munu Hafnfirðingar skera úr um
það í allsherjar atkvæðagreiðslu.
VERZLUN.
Margir segja, að Hafnfirðingar
verzli nær eingöngu í Reykjavík.
Svo er þó ekki, ef marka má
fjölda verzlana í bænum. Þó er
greinilegt, að sérverzlanir eiga
þar fremur örðugt uppdráttar,
enda ekki nema eðlilegt ef litið
er til þeirrar samkeppni, sem sér-
verzlanir í Reykjavík veita. Hitt
er svo annað mál, að sennilegt er,
að Hafnfirðingar leiti oft langt
yfir skammt í verzlunarferðum
sínum.
Kaupfélag Hafnarfjarðar er
einna umfangsmesti aðilinn í
rekstri matvöruverzlana- Auk að-
alverzlunarinnar við Strandgötu
á félagið margar matvöruverzlan-
ir víða um bæinn. Nú fyrir
skömmu tók til starfa mjög glæsi-
leg verzlun við Álfaskeið, Hraun-
ver, og verið er að byggja stórt
verzlunarhús við Arnarhraun, sem
Stefán Sigurðsson í Stebbabúð og
fleiri eiga.
ÆVINTÝRI STÓRIÐJUNNAR.
Ekki verður svo skilið við hafn-
fifzk fyrirtæki, að ekki sé minnzt
á eitt yngsta og jafnframt stærsta
fyrirtækið, sem aðsetur hefur inn-
an marka bæjarfélagsins — Ál-
verið í Straumsvík. Það fyrirtæki
verður sennilega stærsta fyrirtæki
á íslandi og kemur til með að
verða hafnfirzku atvinnu- og at-
hafnalífi mikil lyftistöng. Þar
munu starfa um 400 manns, sem
flestir eiga heimili í Hafnarfirði.
í kringum fyrirtækið mun svo
verða mikil og margvísleg þjón-
usta, sem koma mun öllum Hafn-
firðingum til góða í einni eða
annarri mynd. Verður því ekki á
móti mælt, að það voru Hafnfirð-
ingar „sem hlutu stóra vinning-
inn í happdrættinu", eins og einn
af þingmönnum Framsóknar-
flokksins orðaði það, þegar álver-
inu var valinn staður.