Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1969, Side 21

Frjáls verslun - 01.08.1969, Side 21
FRJALS VERZLUN 21 að aukningu ferðamanna með kynningarstarfsemi, þar á meðal landkynningu. En á því leikur varla nokkur vafi, að engin þjóð hefur reitt sig svo mik- ið á flugfélögin sem íslendingar, til þess að haida uppi landkynningunni í heild. Kostnaðurinn við slika starfsemi eða stofnun, sem ég nefndi, yrði vitaskuld hár, en kostnaðurinn ætti að haldast í hendur við gjaldeyristekjurnar af ferðamönnum. Þótt flugfélögin og ferðaskrifstofurnar eigi miklar þakkir skilið fyrir sina landkynningu má gera bet- ur, og meginkostur slíkrar stofnunar er samræm- ingin, nýta krafta okkar til fullnustu. F.V.: Svo aS viS rœðum aðeins um aðstœSurn- ar heima á íslandi... S. C.: Já, í fyrsta lagi vildi ég vara við því að skattleggja ferðamenn. Slík skattlagning er fárán- leg hjá þjóð, sem er'að reýna að vinna sér séss á alþjóðlegum ferðamarkaði. Þá er verðlagið hátt miðað við Evrópu, sé Sviþjóð undanskilin. Hyggi- legt væi'i að slá svolítið af á vissum árstímum. Reynandi væri að láta stóra ferðamannahópa fá afsláttarkort. Útlendingum finnst mörgum erfitt að átta sig á þjónustu strætisvagna og langferðabíla. Úr þessu mætti bæta með auknum merkingum á ensku, enda þótt mig gruni, að margir íslendingar yrðu lítið hrifnir af slíku. Slíkt myndi í það minnsta spara útlendingum að eyða stórfé í leigubíla í Reykjavík. Og svo að ég haldi áfram í sama dúr, hvers vegna setja verzlunareigendur ekki upp smá spjöld í búð- argluggum, svo að t- d. ferðamenn, sem aðeins eru fransk- eða þýzkmælandi, geti áttað sig á því, hvort þeim sé óhætt að fara inn? Óhætt er að mæla með flestum hótelum á ís- landi og húsnæði yfirleitt. Húsnæði kemur þó til með að vanta, verði veruleg aukning ferðamanna. Þetta er nokkurt vandamál, þar sem ferðamanna- tíminn er stuttur. En á íslandi eru margir lítið notaðir sumarbústaðir, og ég bind miklar vonir við tilraunir Flugfélagsins í þessum efnum. F.V.: íslendingar segja gjarnan, að „glöggt sé gests augað", og ferSamálafrömuðir íhuga von- andi þessar þörfu ábendingar ySar. S. C.: Þakka yður fyrir, en syndalistanum er ekki lokið enn. Útlendir ferðamenn hafa kvartað undan því, — sérstaklega í Reykjavík, — að lítið sé að gera á kvöldin, þegar þeir hafa þrammað um bæinn þver- an og endilangan. Nokkur bót yrði að því, að taka saman yfirlit yfir skemmtistaði í Reykjavík og skýra frá því, hvað þeir hafa upp á að bjóða. Einn- ig vantar stað, sem framreiði íslenzkan mat við hóflegu verði og hafi íslenzka skemmtikrafta á sínum vegum. Afstöðu ykkar fslendinga í bjórmálinu hef ég aldrei fyllilega skilið, og varla breytti það neinu, þótt ég segði nokkur vel valin orð. F.V.: Og aS lokum ..: S. C.: Því hefur löngum verið haldið fram, að til íslands leiti einkum menn með sérstæð áhugamál, t. d. fugla- og náttúruskoðarar. Þessir dagar hljóta að vera liðin tíð. Að vísu er ekki á íslandi allt það að finna, sem flestir ferðamenn sækjast eftir- En óþarfi er að afskrifa landið sem ferðamannaland fyrir þvi. Ég vil að endingu nefna þrjú atriði: Stóraukið átak þarf að gera til þess að laða ungt fólk til landsins, jafnvel hið svokallaða bakpoka- fólk. Hér er ekki verið að hyggja að líðandi stund, heldur framtíðinni. Heilar fjölskyldur gera yfirleitt lítið af því að heimsækja fsland. Foreldrarnír, og kannski eldri börnin, hefðu áhuga á því að fara til íslands, en of lítið er að gera fyrir þau yngri. Þetta atriði þyrfti að kanna rækilega. Ferðamannatíminn á íslandi er of stuttur. Mjög þarf nú að efla aðstöðuna til vetraríþrótta. Þá má ekki gleyma því, að ráðstefnuhald fer mjög í vöxt, og ættu íslendingar að geta notið góðs af. Kannski er ráðstefnuhald á íslandi ekki meira en raun ber vitni, vegna þess, að útlendingum eru ekki kunn- ar aðstæður þar eða óttast jafnvel slæman aðbún- að. Hægur vandi er að ráða bót á þessu.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.