Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 5
FRJÁLS VERZLUM
3
FRJÁLS
VERZLUN
7. tbl., 30. árg.
1970.
Mánaðarlegt timarit um
viðskipta- og efnahags-
mál — stofnað 1939.
Gefið út i samvinnu við
samtök verzlunar- og
athafnamanna.
Útgáfu annast:
Frjálst framtak hf.
Skrifstofa að Suðurlands-
braut 12, Reykjavik.
Pósthólf 1193.
Símar: 82300, 82302.
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Briem.
Ritstjóri:
Herbert Guðmundsson.
Setning og prentun:
Félagsprentsmiðjan hf.
Myndamót:
Rafgraf hf.
Brot og hefting:
Félagsbókbandið hf.
Áskriftarverð á mán. kr. 65,00
til alm. áskrifenda, kr. 95,00 til
fyrirtækja og stofnana.
öll réttindi áskilin.
Endurprentun að hluta
eða öllu leyti óheimil,
nema til komi sérstakt
leyfi útgefanda.
Meðal annarra orða...
I þessu töluhlaði halda áfram þættirnir um efnahags-
mál, kjaramál og lög og rétt, sem allir njóta mikilla
vinsælda, enda fróðlegir og gagnlegir. 1 þættinum um
efnahagsmál fjallar Pétur Eiríksson hagfræðingur um
horfur í framhaldi af launahækkunum og verðhækkun-
um síðustu mánaða. Þá koma fram upplýsingar um
Kjararannsóknarnefnd, sem ekki hafa verið á almanna
vitorði. Loks er fjallað um firmað og réttarvernd þess i
tilel'ni af „Esju“-málinu.
Stjórnun og reksturstækni er m. a. umræðuefni í við-
tali við Oltó A. Michelsen forstjóra IBM á Islandi, en
Ottó leggur mikla áherzlu á nauðsyn umbóta á þessu
sviði, enda stjórnar hann forystufyrirtældnu í raf-
reiknaþjónustu hér á landi, og er hnútum gjörkunnug-
ur. I nýjum þætti, Á markaðnum, er rætl við fleiri for-
stjóra, m. a. Einar J. Skúlason og Giumar Dungal, en
Gunnar er líkast til yngsti forstjóri hér á landi, a. m. k.
við meiriháttar rekstur. Þcssi nýi þáttur fjallar annars
að þessu sinni um skrifstofuvélar og húsgögn.
Það er ekki aðeins rætt við forstjóra í þessu tölublaði,
þótt við þrjá framangreinda megi bæta öðrum þrem,
sem vinna að ferðamálum. Tveir einkaritarar sitja fyrir
svörum um starf sitt, þær Guðrún Kristinsdóttir og
Áslaug G. Harðardóttir.