Frjáls verslun - 01.07.1970, Side 11
FRJALS VERZLUN
9
Bréf frá lesendunn
ORÖ í BELG
Hættulegt eldspítnarusl
Ekki er ein báran stök í ein-
okun ríkisins, sem Frjáls Verzl-
un drap lítillega á fyrir
skömmu. Má ég minna á ÁTVR.
Það er athyglisvert fyrir
okkur neytendur, að kynnast
starfsháttum þess fyrirtækis
og bera þá saman við venju-
lega verzlunarþjónustu. Er ÁT-
VR þó talið með skástu ein-
okunarfyrirtækjum hérlendis.
Vínsalan er einn kapítulinn,
sölu- og afgreiðsluhættir ein-
stakir í almennum viðskiptum
hér á landi, t. d. um torsóttar
leiðbeiningar í vínbúðunum,
og elur það lítt á menningu. Þá
er tóbakssalan annar kapítuli,
sem skrifa mætti um þykka og
merka bók. Angi af henni er
sala á hættulegu eldspýtnarusli,
sem afskekktustu Síberíubúar-
yrðu hvumsa yfir. Það menn-
ingarleysi er einstakt um víða
veröld, og við skattborgararn-
ir megum þakka okkar sæla
meðan ríkisfjárhirzlurnar
fuðra ekki upp út frá splund-
ruðum eldspýtuoddi. Nóg er að
þola sífelldar skemmdir á fatn-
aði og gólfteppum heima hjá
sér. Hafa öryggisstofnanir okk-
ar borgaranna ekkert um þetta
að segja? Hvað segir Slysa-
varnafélagið? Jafnvel dómstól-
arnir? Það liggur við að vera
tilræði, ef kveikt er á ís-
lenzkri ríkiseldspýtu í manna-
byggðum.
Kristján Árnason.
Vísitöluhús atvinnu-
veganna?
P.S.: Ég má ekki gleyma að
óska ÁTVR til hamingju með
nýja húsið við Árbæ. Sú hall-
argerð minnir á hið merka
„Gullauga“ Grænmetisverzlun-
arinnar við Síðumúla, þótt það
glói e. t. v. öllu meira útvort-
is. Eru þetta vísitöluhús at-
vinnuveganna? — K. Á.
Þessar frábæru
eldvarnarhurðir
eru smíðaðar eftir
sænskri fyrirmynd
og eru eins vand-
aðar að efni og
tæknilegri gerð og
þekking framast
leyfir. Eldvamar-
hurðirnar eru sjálf-
sagðar fyrir mið-
stöðvarklefa,
skjalaskápa, her-
bergi sem geymd
eru í verðmæti og
skjöl, milli ganga
í stórhýsum,
sjúkrahúsum og
samkomuhúsum,
þar sem björgun
mannslífa getur
oltið á slíkri vörn
gegn útbreiðslu
elds.
Eldvarnarhurðir
GLÓFAXA eru
viðurkenndar af
Eldvarnareftirliti
ríkisins.
Ármúla 24,
Sími 34230.