Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 12
!□
FRJÁL5 VERZLUN
Slök fréttaþjónusta
í tilefni af stuttri frásögn F.
V. af tveim merkum dagblöð-
um í Danmörku, kom mér í
hug, sem oft áður, hve íslenzk
fréttaþjónusta er bág. Það eina
sem virðist halda áhuga frétta-
miðlanna vakandi, eru svo-
kallaðar lögreglufréttir, um
slys og afbrot o. þ. h. Að öðru
leyti virðist sjaldan gerast
nokkuð markvert utan Reykja-
víkur, og sízt í næsta nágrenni
höfuðborgarinnar, eins og hér
á Suðurnesjum. Einn og einn
staður nýtur áhuga fréttaritara,
en í þessu tilliti virkar það
sem skop í garð atvinnumanna
við íslenzka fjölmiðla. Auðvit-
að er hinum ,,frjálsu“ blöðum
í sjálfsvald sett, að hafa þetta
svona með höppum og glöpp-
um, en meiri kröfur verður að
gera til opinberra fréttastofn-
ana. í manna minnum er ein
skipuleg tilraun til úrbóta af
hálfu útvarpsins, þar átti Egg-
ert Jónsson fréttamaður hlut
að máli. En svo hafði hann ekki
lengur tíma til að sinna þessu!
Og svo heldur útvarpið áfram
að láta líta svo út, sem hvergi
sé róið nema af Skipaskaga.
Er það ekki ofrausn við þá á-
gætu Skagamenn, þótt dugleg-
ir séu?
Pétur á Suðurnesjum.
Þar fæst jafnvel ekkert
Loksins er búið að opna
raunverulega ferðamannaverzl-
un á Keflavíkurflugvelli, með
alls konar íslenzkar fram-
leiðsluvörur á boðstólum.
Það sýndi sig fljótt, að þetta
var merk ráðstöfun. En þetta
er þó aðeins viðleitni ennþá.
Þótt nú hafi orðið framfarir í
framleiðslu íslenzks vamings
fyrir erlenda ferðamenn og er-
lenda neytendur yfirleitt, er
akurinn þó lítt plægður enn-
þá. Hversu stórir hlutar lands-
ins ætli séu enn án nokkurra
teljandi viðskipta við erlenda
Það eru heilir landshlutar, þar
sem jafnvel ekkert fæst af varn
ingi fyrir erlenda gesti okkar.
Ársgömul saga hermir t. d. að
erlent skemmtiferðaskip hafi
komið óvænt inn á einn aust-
fjarðanna — í kaupstað, en
farþegarnir gátu ekkert feng-
ið annað en mjólk í plastpok-
um, ekki einu sinni frímerki!
Það er dýrt að vera fátækur,
en dýrara að vera sofandi á
verðinum. Hótel og þotur er
gott og gilt að hafa, en lítill
verður þó akkurinn eftir allt
saman, ef ekkert er upp úr því
að hafa, að flytja hingað og
hýsa tugþúsundir erlends fólks
ár hvert.
Eyjólfur.
Rán fyrir opnum tjöldum
Það gerðist á dögunum, að ég
þurfti að kaupa viðgerð á bif-
reið minni — aldrei þessu
vant. Og þar sem mér lá á,
fylgdist ég óvenjuvel með við-
gerðinni. Nú þurfti ég auðvitað
að greiða verkstæðinu fyrir
þjónustuna, og veittist sá heið-
ur, að sitja andspænis forstjór-
anum við reikningsgerðina. Jú,
þetta voru 4 klst., skv. nótu
frá viðgerðarmanni, og var það
gott og gilt. En svo höfðu ver-
ið keyptir tveir hlutir í vara-
hlutaverzlun í sömu götu, svo
sem 100 metra frá. Það gerði
tvo hálftíma fyrir sendilinn,
samtals eina klst. á sama verði
og verkstæðið tók fyrir við-
gerðarmanninn! Mér blöskraði,
eða var það furða? Maldaði í
móinn, og fyrir náð var ann-
ar hálftíminn settur í rusla-
fötuna. Er það ekki þetta og
annaf af þessu tagi, sem verð-
lagseftirlitið ætti að fást við?
Rán fyrir opnum tjöldum, eins
og þetta, bendir til þess að hér
sé um verðugt rannsóknarefni
að ræða.
Fórnarlambið.
Bréf til blaðsins
Lesendum er heimilt að
senda blaðinu bréf um mál,
sem þeir telja að vekja eigi
máls á í því. Bréfin skulu stíl-
uð til FRJÁLS VERZLUN,
„Orð í belg“, Pósthólf 1193.
Reykjavík, vera undirrituð
nafni og heimilisfangi bréfrit-
ara, svo og dulnefni, ef það
þykir fremur hlýða til birting-
ar. Blaðið áskilur sér rétt til
að stytta bréf, sem berast.
Ritstj.
MAGNUS KJAF^AN
HAFNARSTRÆTI 5 SÍNI24140-
EINFALT LETURBORÐ
og léttur ásláttur er aðalsmerki
Addo-X reiknivélanna. Þetla er
stílhrein vél, sterk og ending-
argóð. - Hagstætf verð. - Árs-
ábyrgð og eigin viðgerðarþjón-
usta.