Frjáls verslun - 01.07.1970, Qupperneq 24
22
FRJALS VER'ZLUN
Hlín: Það starf er margþætt,
en fyrst og fremst starfar hann
á svipaðan hátt og forstjóri hjá
hverju öðru fyrirtæki. Hann
skipuleggur verkefni starfs-
fólksins, og sér um, að það sé
ánægt; hann sér um fjárhald-
ið og áætlanir og auglýsingar;
hann fylgist með hag gestanna,
sér um að nóg sé til af öllu,
sem þeir geta hugsanlega
þarfnazt, en þeir geta þurft ó-
trúlegustu hluti, frá saumnál-
um upp í sjónvörp, plástra, rit-
vélar, hitapoka, að ógleymdum
vöggum og barnarúmum handa
yngstu gestunum.
KREFST ÓTAKMARKAÐS
TÍMA
F. V.: Er þetta kvenmanns-
verk?
Hlín.
Hlín: Ég held, að starfið henti
ekki síður konum en karl-
mönnum. Að vísu var það dá-
lítið erfitt, meðan tvísýnt var,
hvort opnunin drægist úr
hömlu, og ég þurfti að ganga
fast á eftir mönnum til að fá
hlutina — þá var stundum
sagt, að maður væri frekur og
uppivöðulsamur. En engu að
síður held ég að ánægjustund-
irnar séu fleiri í þessari vinnu
en flestri annarri — að því
tilskildu, að maður sé reiðu-
búinn til að helga henni ótak-
markaðan tíma. Þeir sem ekki
hafa ótakmarkaðan tíma handa
starfi sínu, ættu ekki að koma
nálægt ferðamálum.
Hótelstjóri á Hótel Loftleið-
um er Erling Aspelund, en hó-
telið hefur nú verið starfrækt
í fjögur ár og er að færa út
kvíarnar með viðbótarbygg-
ingu.
STÖÐUGT AUKIN NÝTING,
í JÁRNUM MEÐ AFSKRIFT-
IR — EKKERT UPP í VEXTI.
F. V.: Hvað er að segja um
afkomu hótelsins?
Erling: Nú eru liðin um það
bil fjögur ár, síðan Hótel Loft-
leiðir tók til starfa, og í ár má
Birgir.
segja að standi í járnum með
afskriftir, en í ár höfum við
ekki upp í vexti. Reksturinn
að undanförnu hefur gengið
vel, og stöðug aukning á nýt-
ingu. Þrír mánuðir á árinu eru
jafnan góðir, en vandinn hef-
ur verið að dreifa ferðamönn-
um á fleiri mánuði, og það lít-
ur út fyrir, að eitthvað miði í
þá átt. í apríl í fyrra var nýt-
ingin til dæmis 76%, en núna
í apríl var nýtingin 84%, svo
að það má telja að sjö mánuð-
ir á hverju ári séu þolanlegir,
hvað nýtingu snertir, en þá
eru eftir fimm mánuðir.
VIÐBYGGINGIN MEÐ
RÁÐSTEFNUSÖLUM.
F. V.: Hvaða ráðstafanir eru
fyrirhugaðar til að kippa þvi í
lag?
Erling: Nú er verið að byggja
við hótelið, og sú viðbygging á
að verða til 1. maí næsta ár,
en við hana er nú unnið á
tveimur vöktum. Þar verður
gert ráð fyrir góðri aðstöðu
til ráðstefnu og fundahalda,
rúmgóðir salir fyrir 135 og
150 manns, sem má svo aftur
skipta niður í smærri eining-
ar, ef á þarf að halda, og þar
verður einnig auk gistiher-
bergjanna, kaffitería þrisvar
Erling.
sinnum stærri en sú, sem nú
er til staðar.
AÐALATRIÐIÐ
AÐ FÁ SEM FLESTA.
Við auglýsum óhemjumikið
í alls konar bókum og blöðum
til að fá fólk til að koma, og
svo er mikill hluti gestanna
einnig svonefndir „áningar-
gestir* ‘ (stop-over-f arþegar),
en undanfarið hefur einn af
hverjum fjórum gestum hó-
telsins verið áningargestur.