Frjáls verslun - 01.07.1970, Qupperneq 25
FRJÁLS VERZLUN
Þeir standa að vísu stutt við,
svo að hlutfallslega er hærri
kostnaður við þá en aðra gesti,
en aðalatriðið er að fá sem
flesta til að koma til íslands.
Það er hægt að hafa meiri
tekjur af mörgum, sem standa
stutt við, en fáum, sem dvelja
lengi.
F. V.: Það er orðið mjög eðli-
legt nú til dags, að Flugfélög
sjái einnig um hótelrekstur og
aðra ferðamannaþjónustu.
Erling: Já, með tímanum hef-
ur starfssvið flugfélaga færzt
út. Þau láta ekki lengur við það
sitja að flytja fólk milli staða,
heldur reyna þau að sjá fyrir
allri þeirri þjónustu, sem ferða
manninn kann að vanhaga um,
og þar kemur hótelrekstur
fyrst og fremst við sögu.
HVER FERÐAMAÐUR EYÐIR
í REYKJAVÍK UM 6000 KR.
Annars er hótelrekstur
heimur út af fyrir sig. Senni-
lega þarf ekkert annað fyrir-
tæki að byrja daginn á því að
vekja viðskiptavinina; og
sannarlega er þjónusta við
ferðamenn þarfur atvinnuveg-
ur. Það er gert ráð fyrir því,
að hver ferðamaður eyði í
Reykjavík sem svarar 65 döl-
um (ca. 5720 kr.), og þeir
peningar koma víða við. Á síð-
ustu 12 mánuðum hafa þjóðar-
tekjur af hótelgestum Loft-
leiða numið um 700 milljón-
um króna.
VERÐLAG SVIPAÐ OG
ANNARS STAÐAR Á
N ORÐURLÖNDUM.
F. V.: Hvað er að sega um
verðlag á hótelþjónustu hér á
landi?
Erling: Verðlag hér er ákaf-
leea svinað og annars staðar á
Norðurlöndum miðað við hó-
tel í svipuðum flokki, aftur á
móti er verðlagið hjá hótelum
eins mismunandi og annars
staðar eftir því, hvaða þión-
usta er á staðnum. Við höfum
hér sundlaug, gufubað, rakara-
stofu, hárgreiðslustofu, minja--
grinasöiu og fleira og meira að
segja flugstöð, svo að sumir
gestanna geta gengið beint inn
í hótelið, eftir að hafa lent á
flugvellinum, þrátt fyrir þetta
er verðið hér litlu hærra en
hjá öðrum hótelum í Reykja-
vík, en ferðamenn hafa ekki á
móti því að borga, ef þeir
finna, að þeir fá það, sem þeir
vilja fyrir peningana. Og þetta
hótel er jú dýrt fyrirtæki —
hvert herbergi kostar rúmlega
milljón.
NÚ VIÐ FLUGVÖLL,
VERÐUR í MIÐBORG.
F. V.: Það hefur sitt að segja
fyrir hótelið að vera staðsett
alveg við Reykjavíkurflugvöll,
en útlit er samt fyrir, að þessi
flugvöllur verði einhvern tím-
ann að víkja burt. Hvílir sá
möguleiki ekki eins og mara
á Loftleiðamönnum?
Erling: Það er sennilega fáar
borgir í heiminum, sem eiga
þess kost að skipuleggja hjá
sér nýja miðborg á áður ó-
byggðu svæði í borginni og það
kemur að því, að ný miðborg
verður reist, þar sem flugvöll-
urinn er nú. Þá verður aðeins
sú breyting, að Loftleiðahótelið
stendur ekki lengur við flug-
völlinn, heldur við miðborgina,
og það er engin ástæða til að
kvíða því.
F. V.: Eiga Loftleiðir hér lóð
undir frekari viðbyggingu við
hótelið.
Erling.: Nei, það verður ekki
mögulegt að bæta meira við
hótelið hér, því að lóðin er full-
nýtt, og meira að segja urðu
að fara fram makaskipti á landi
milli ríkis og borgar, áður en
hægt var að byggja við hótelið,
því að horn á viðbyggingunni
stendur á landi, sem ríkið átti.
Lóðin er sem sagt fullnýtt, að
því er hótel varðar, en hugs-
anlegt er að bæta við skrif-
stofuhúsnæðið hér.
FULL ÁSTÆÐA TIL
BJARTSÝNI.
F. V.: Og að lokum: Hvernig
er að vinna að ferðamálum hér
á landi?
Erling: Það er líflegt starf.
Alltaf er eitthvað nýtt og
spennandi að gerast. Starfið
hvetur mann til dáða, því að
það er á nýju sviði. Við höfum
fulla ástæðu til að vera bjart-
sýnir — ef við höldum vel og
rétt á spöðunum.
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
FERÐIZT ÓDÝRT
FERÐIZT 1. FLOKKS
MEÐ ÚTSÝN TIL
ANNARRA LANDA
Þeirn fjölgar stööngt, sem láta
ÚTSÝN
sjá um feröalagiö.
REYNSLA OKKAR OG SAM-
BÖND ER YÐAR HAGUR.
Allir ferseölar og liótel á
iœgsta veröi.
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN,
Austurstræti 17
(Hús Silla & Valda)
Símar: 20100/23510/21680