Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1970, Side 33

Frjáls verslun - 01.07.1970, Side 33
31 FRJALS VERZLUNf Áslaug. Guðrún: Já, já, og út fyrir þær líka. FV: Hvernig er félagslífið innan svona umfangsmikils og mannmargs fyrirtækis? Guðrún: Það var miklu meira hér áður fyrr. Núna þekkir maður tæpast helminginn af fólkinu, sem vinnur hjá fyrir- tækinu. En við gefum út starfs- mannablað, Faxafréttir. Á vet- urna erum við með spilakvöld, taflkvöld og svo árshátíð einu sinni á ári. Hér áður fyrr héld- um við þeim sið að hittast á gamlárskvöld og vorum þá með mikinn fögnuð úti í af- greiðslu. Skreyttum þar alla veggi hátt og lágt, lögðum nótt við dag til þess að koma þessu um kring. Þetta var oft mjög huggulegt. En ég er hrædd um að það þætti of mikil fyrirhöfn núna. FV: Hvernig fyndist þér, að vera allt í einu orðin einkaritari kvenforstjóra? Guðrún: Æ, ég held mér myndi engan veginn líka það. Ég er nú ekki ,,rauðsokkóttari“ en þetta. Iinni á íburðarmiklum skrif- stofum Loftleiða úti á Reykja- víkurflugvelli, hittum við Ás- laugu G. Harðardóttur, einka- ritara Alfreðs Elíassonar, for- stjóra, þar sem hún situr við skrifborð sitt, með fagurt út- sýni yfir borgina í baksýn. Sitt- hvorum megin -við hana eru hálfluktar dyr, aðrar vita inn til forstjórans, en hinar til stjórn- arformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, hrl. Það má því með sanni segja, að henni sé ætlaður staður í hjarta fyrir- tækisins. FV: Reynist starf einkaritara á stundum innantóm pappírs- vinna? Getur þetta verið vél- rænt starf, spyrjum við Ás- laugu, þegar hún sleppir hend- inni af ritvélinni til þess að ræða við okkur. Áslaug: Það er ekki einvörð- ungu fólgið í því að sitja og hamra á ritvélina, síður en svo. Mér finnst þetta vera fjölbreytt og skemmtilegt starf. Það eru ekki alltaf sömu verkefnin, sem verið er að vinna að. Þetta er áreiðanlega líflegra heldur en mörg önnur skrifstofuvinna. FV: Hvaða undirbúning hef- ur þú fyrir þetta starf? Áslaug: Ég hef verzlunar- próf, og svo hafði ég fengið talsverða starfsreynslu þegar ég byrjaði að vinna hjá Loft- leiðum. FV: Og hvar var það? Áslaug: Ég var búsett i Bandaríkjunum í fjögur ár, í Minnesota, og vann þar við há- skóla sem einkaritari. FV: Hvenær hófstu svo starf hjá Loftleiðum? Áslaug: Fyrir 5 og hálfu ári. FV: Hvaða undirstöðuatriði er nauðsynlegt fyrir einkaritara hjá svona stóru fyrirtæki að hafa? Áslaug: Að sjálfsögðu vélrit- un, tungumálakunnáttu, að geta annazt almennar bréfaskrifíir; hraðritun er gott að kunna og að geta vélritað eftir segul- bandi. Þá er einnig nauðsyn- legt að geta unnið sjálfstætt. FV: Tekur einkaritari ein- hvern tíma sjálfstæðar ákvarð- anir? Áslaug: Að sjálfsögðu er það óhjákvæmilegt, en fer þó eftir öllum aðstæðum. FV: Nú þar sem þú situr hérna í innsta hringnum, ef svo má segja, hlýtur þú að finna betur en margir aðrir starfs- menn, æðaslög fyrirtækisins. Kemstu ekki stundum að ýmsu, sem þú verður að þegja yfir? Áslaug: Jú auðvitað, en þag- mælska er hlutur, sem tilheyr- ir starfi einkaritarans. Á meðan við sitjum að tali við Áslaugu, er komið með kaffivagn á hjólum. Vagn þessi fer á milli starfsfólksins um kaffileytið. Áslaug: Það er ósköp nota- legt að eiga von á þessu. Auk þess er mikill vinnusparnaður að þessu, fólk er ekki að fara í burtu í kaffi. FV: Er þetta þægilegur vinnustaður? Áslaug: Já, það mundi ég segja og einnig að mjög vel er búið að starfsfólkinu. Þá er líka ákaflega mikils virði að hafa þokkalegt í kringum sig, og eins og þú sérð eru skrifstofurnar hlýjar og bjartar. FV: Svo að við snúum okk- ur aftur að efninu, hvers saknar

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.