Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1970, Page 34

Frjáls verslun - 01.07.1970, Page 34
32 FRJALS VERZLUN þú helzt úr Verzlunarskólan- um, sem hefði komið að góðum notum í þessu starfi? Áslaug: Ég veit ekki, hvað segja skal. Ég býzt við að verzl- unarmenntun sé mjög heppileg- ur undirbúningur undir flest al- menn skrifstofustörf. Námið þar hefur að vísu breytzt síð- an ég var þar. Notkun ýmissa skrifstofuvéla er meira kennd nú en þá var. Við fengum, að mig minnir, heldur takmarkaða tilsögn í meðferð þeirra. FV: Notið þið mörg tæki við ykkar störf, einkaritarar? Áslaug: Ég nota nú aðallega ritvélina og segulbandið. FV: Samræmist þetta starf hugsjónum rauðsokkahreyfing- arinnar til dæmis? Áslaug: Ja, ég er kannski ekki svo mjög „rauðsokkótt“, en ég held að að hver kona, sem sinnir svona starfi, ætti að geta verið tiltölulega sjálfstæð í starfi. FV: Langar þig aldrei til að skipta um sæti við forstjór- ann? Áslaug: Ne-ei, því fer fjarri. FV: Hvernig væri að veia einkaritari kvenforstjóra? Áslaug: Það væri sjálfsagt ágætt, ef það væri góður for- stjóri. FV: Hefurðu áhyggjur af starfinu þegar þú kemur heim til þín? Áslaug: Nei, en það er alltaf í nógu að snúast þennan tíma, sem ég er hérna. Það kemur jú kannski stöku sinnum fyrir, að maður ber einhverja eftir- þanka heim með sér, það hlýt- ur að vera óhjákvæmilegt í hvaða starfi sem er. FV: Og hvað gerirðu svo við frítímann? Áslaug: Hugsa um heimili mitt og annað sem mér dettur í hug. Ég hef gaman af að lesa góðar bækur, hlusta á tónlist, sækja leikhús og svo hef ég allt- af gaman af því að ferðast. FV: Er það kannski ein af ástæðunum fyrir því að þú fórst í þetta starf? Þið fáið talsverð ferðafríðindi, ekki satt? Áslaug: Ég var nýkomin úr svo löngu ferðalagi, þegar ég réði mig hingað, að ég hafði ekki ástæðu til þess að sækjast eftir starfinu þess vegna. Hins vegar er starfsfólkinu hér boð- ið upp á afsláttarmiða og fer þá eftir starfsaldri, hversu mik- ill afsláttur er boðinn hverju sinni. Og það er ekki til setunnar boðið. Áslaug þarf að setja punktinn aftan við það, sem hún var að pikka á ritvélina, þegar við komum og síðan að haska sér heim til þess að elda fyrir eiginmanninn, en hún er gift Jóni H. Magnússyni, sem nýlega tók við fréttamanns- starfi hjá Sjónvarpinu. Við rek- um því botninn í samtalið og höllum aftur glerhurðinni á kontórnum. SKRIFVÉLIN Bergstaöastræti 3 sjcdfvirkctr margföldunarvélar d kr. 26.482,00 og niður í Sími 19651 PICCALOS-ADDITOR VERK- STÆÐIÐ: Viðgerðir á flestum tegundum skrifstofutœkja, sérlœrðir menn og stór vara- hlutalager í FACIT & ODHNER skrifstofuvélarnar. SKRIFVÉLIN BERGSTAÐASTRÆTI 3 — SlMI 19651

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.