Frjáls verslun - 01.07.1970, Page 39
FRJALS VERZLUNT
37
IUillilandavi&skipti
VÖRIiGÆÐI
er aðalkrafa belgísks markaðar, segir
ambassador Belga á Islandi, Van Den Beghe
Ambassador Belga á ís-
landi, Van Den Berghe,
dvaldist hér á landi í viku-
tíma í ágúst, ásamt konu
sinni. Fréttamað'ur FV átti
stutt viðtal við ambassador-
inn um viðskipti þjóðanna.
— Mér var það til mikili-
ar ár.ægju, að líta í verzlun-
arskýrslur um viðskipti
þjóða okkar, þau eru jákvæð,
sagði Van Den Berghe.
— Útflutningur Belga til
íslands hefur verið mikill,
15—18 millj. kr. að verðmæti
á mánuði. Hér úr glugganum
á Hótel Sögu horfi ég út um
belgískt gler, ef grunur
minn er réttur, og glerið
okkar er meðal þess, sem þið
kaupið mikið af, líklega fyr-
ir um 36 millj. kr. á ári. Við
seljum ykkur stál fyrir svip-
aða upphæð, og einnig á-
burð fyrir álíka upphæð.
Margt annað kaupið þið af
okkur, sem of iangt yrði upp
að telja, og ég nefni aðeins
eitt í viðbót, veínaðarvörur,
en þær hygg ég vera vel
kunnar hér á landi.
— Útflutningur íslend-
inga til Belgíu er hins vegar
mest fiskafurðir, og fyrstu 3
mánuði þessa árs selduð þið
okkur þrisvar sinnum meiri
fisk en á sama tíma í fyrra.
Aðalvandamál ykkar varð-
andi fiskútflutning til Belgíu
hefur verið í sambandi við
flutningana, en þið virðist
vera að sigrast á því smátt
og smátt, sem er nauðsyn-
legt, þvi belgískur markaður
er mjög kröfuharður iivað
gæði snertir. Vörugæði er
aðalkrafan. Þá hafið þið selt
okkur lítils háttar af ullar-
vörum, og sú sala hefur einn-
ig aukizt á þessu ári, er nú
orðin jafn mikil og allt árið
í fyrra.
— Vaxandi viðskipti þjóða
okkar er gagnleg og ánægju-
leg á báða bóga. Belgar hafa
þegar náð langt á sviði iðn-
aðar og iðnaðarframleiðsia
okkar á örugglega erindi til
Van Den Berghe
ambassador.
íslands, eins og flestra ann-
arra þjóða heims. íslending-
ar eiga dýrmætt hráefni,
fiskinn, sem á í auknum
mæli að geta orðið eftirsótt
markaðsvara í Belgíu, og
iðnaður ykkar er að færa út
kvíarnar. Enda þótt við selj-
um ykkur nú meira en þið
kaupið af okkur, er ekki að
vita nema það geti breytzt
áður en varir.
Það ern mina 20.000 ár síðan Homo Heidelhergensis prentuðu 1‘yrstu lotsóla sína á leir-
inn á Rínarbökkuni. Þetla var seinlcgl. Fyrir 110 árum byrjuðu Jjeir svo að l'ramleiða
prentvélar (þær beztu í heimi) og mina í desember síðaslliðnum voru jieir luinir að
í'ramleiða 220.000 vélar og tilkynna yður það hér með.
HEIDELBERGER DRUCKMASCHINEN AG. STURLAUGUR JÚNSSON & CO.