Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 41
frjá'ls verzlunt
39
v SWEDA peningakassi.
HERMES 10.
■mmm 111111111 -----------
•• 1 ~ v,,
BBiMilSiB
"^raiiiiraiiiiiMiiiiiiniraiiiinniiininninnnnnmnnnjr
.MÉMMHIl
ADDO-X.
NCR peningakassi.
nesk gæðavara. Þá má nefna
merkin TRIUMPH og JAPY.
CONSUL er tékknesk skóla-
ritvél, sem kostar kr. 5.055,-
00.
Einar hefur umboð fyrir
KIENZLE bókhaldsvélar og
þar er verðið frá um kr.
100 þús. til kr. 658 þús. eftir
gerðum.
Þá eru SWEDA peninga-
kassarnir eða búðakassarnir
mikið keyptir, enda mikið
þarfaþing við hvers konar
eftirlits- og gjaldkerastörf.
PLANOCOP ljósprentun-
arvélar eru dönsk smíði og
kosta kr. 19.050,00 og 24.-
050,00.
DANFLEX skrifstofu-
stólar eru danskir og helztu
gerðir þeirra kosta kr. 4.050,-
00 (án arma) og kr. 5.070,00
(með örmum).
Magnús Kjaran, heildverzl-
un, hefur umboð fyrir hinar
þekktu ADDO reikni- og
bókhaldsvélar. f dreifibréfi
frá fyrirtækinu segir m. a.:
ADDO-X skrifstofuvélar
eru sænsk gæðavara, og höf-
um við vélarnar að jafnaði
fyrirliggjandi á lager til taf-
arlausrar afgreiðslu.
ADDO-X bókhaldsvélar
eru notaðar af hvers konar
fyrirtækjum og stofnunum.
Má í því sambandi nefna út-
gerðarfyrirtæki, kaupfélög,
iðnaðarfyrirtæki, heildverzl-
anir, bæjarfélög, ríkisstofn-
anir og mörg fleiri. Við er-
um ávallt reiðubúnir til að-
stoðar við uppsetningu á
bókhaldi, auk þess sem pró-
gramering vélanna er innt
af hendi án endurgjalds.
Ýmsir aukahlutir, svo sem
spjaldskrárkassar, bókhalds-
spjöld o. fl., er alltaf fyrir-
liggjandi á lager í fjöl-
breyttu úrvali.
Við höfum eigin viðgerð-
arþjónustu og tekur Addo-
verkstæðið, Hafnarstræti 5,
eins árs ábyrgð á öllum
ADDO-X vélum.
Ódýrust reiknivélanna er
ADDO-X 331, sem er hand-
knúin og kostar kr. 8.000,00,
en dýrust er ADDO-X 4683,
sem hefur tvö reikniverk, og
kostar kr. 59.000,00. ADDO
hefur einnig fjölbreytt úrval
af elektrónískum reiknivél-
um og bókhaldsvélum, sem
kosta frá kr. 150 þúsund,
þar á meðal vélar með letur-
borði og IBM kúlu, og kosta
þær um kr. 250 þúsund.
NCR, eða National, er
þekkt merki á skrifstofuvél-
um hér á landi. Það var
firmað O. Westlund, sem hóf
innflutning á þessum vélum
árið 1922 í gegnum aðalum-
boð í Danmörku. Árið 1941
gerðist O. Westlund einka-
umboðsmaður fyrir NCR á
íslandi. O. Westlund rak
einnig Ritvélaverkstæðið frá
árinu 1922.
Steingrímur Westlund er
nú í forsvari fyrir NCR hér
á landi, og sagði hann frétta-
manni, að NCR ætti verk-
smiðjur í mörgum löndum
og væru vélarnar ýmist flutt-
ar inn frá Bandaríkjunum,
Japan eða Evrópu, eftir teg-
undum og verði hverju
sinni. Fyrirtækið framleiðir
margs konar gerðir af bók-
haldsvélum, peningakössum,
elektrónískum kalkúlatorum
og rafreiknum. Þá var NCR
fyrst til að framleiða kem-
ískan pappír, sem er mikiö
notaður í innleggs- og úttekt-
armiða og hvers konar nót-
ur. Jafnhliða sölu á NCR
vélum rekur Steingrímur
Westlund almenna viðgerða-
þjónustu að Miðstræti 12 og
ritfangaverzlun.
Erfitt er að gefa upp fast-
ákveðið verð á þessum vél-
um, þar sem yfirleitt er ekki
um staðlaða vöru að ræða,
þ. e. flestir viðskiptavinir
þurfa að fá sérþjónustu. Ef
vélar eru ekki til á lager, er
afgreiðslufrestur yfirleitt 2
—4 mánuðir.
Hjá GUMA, Hverfisgötu
72, sem er rit- og reiknivéla-
verkstæði, eru seldar CBM
reiknivélar, sem eru jap-
anskar og hafa verið á
markaðnum í ein fjögur ár.
Ódýrari gerðin, 208, kostar
kr. 9.160,- en sú dýrari 202,
sem er hraðvirkari með 10
stafi inn og 11 út, kostar
kr, 10.965.-. Þá getur fyrir-
tækið útvegað VICTOR kalk-
úlator, sem er bandarísk
smíði og kostar um 50 þús-
und krónur.