Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1970, Side 63

Frjáls verslun - 01.07.1970, Side 63
FRJÁLS VERZLUN BETRI NÝTING FISKAFLA Fiskafli okkar íslendinga fyrsta þriðjung þessa árs var 439.975 tonn upp úr sjó, eða 54.552 tonnum meiri en á sama tíma í fyrra. Mjög aukinn hluti aflans fór tií frystingar, og einn- ig fór mun meira en í fyrra til niðursuðu, en minna fór nú til herzlu. SAMVÁ Fyrir nokkru var stofnað Sameinaða vátryggingafélagið h.f. og hefur það aðsetur að Hátúni 4A í Reykjavík. Fram- kvæmdastjóri er Kolbeinn I. Kristinsson. Stofnendur voru 27 kaupsýslumenn. Um leið og SAMVÁ tók til starfa, lagðist niður starfsemi Vátryggingafél- agsins h.f., Verzlanatrygginga h.f. og Vátryggingafélagsins Heimis h.f. MINNKANDI GOS- DRYKKJAFRAMLEIÐSLA Framleiðsla gosdrykkja var í fyrra 7.909.805 lítrar, og er það nokkru minna en fram- leiðsla áranna 1966—1968, hvers um sig. Af maltöli voru framleiddir 1.051.138 lítrar, öðru óáfengu öli 1.046.828 lítr- ar, áfengu 5.448 lítrar og á- vaxtasafa 145.202 lítrar. Pilsn- er og lageröl teljast til „ann- ars óáfengs öls“, og er athyglis- vert, að þrátt fyrir harða sölu- mennsku hefur framleiðsla í þessum flokki minnkað síðustu tvö ár, var 1967 1.416.464 lítr- ar, 1968 1.135.746 lítrar og loks í fyrra 1.046.828 lítrar, eins og fyrr segir. 88 ÍSLENZKAR FLUGVÉLAR Um síðustu áramót var flug- vélaeign okkar ísltndinga 88 ílugvélar, 55 eins hreyfils, 17 tveggja hreyfla, 1 þriggja hreyf'la, 15 fjögurra hreyfla. Farþegasæti voru alls 1.553. f árslok 1960 áttum við 51 ílugvél með 713 fai’þegasætum. 600 MILLJ. AF VARNARLIÐINU Tekjur af varnarliðinu, vegna olíusölu, byggingastarfsemi og annars tilkostnaðar þess hér á landi námu 1967 652.4 millj. kr. og 1968 621 millj. kr., en sömu ár var inni'lutt vegna þess fyrir 46.7 og 85 millj. kr. Kolbeinn I. Kristinsson, framkv.stj. SAMVÁ, ræðir við viðskipta- vin. * Islenzkur markaður hl. Fyrir skömmu hóf fyrirtækið íslenzkur markaður hf. rekstur verzlunar á Keflavíkurflugvelli, í nýbyggingu út frá flugstöðinni, sem Keflavíkurverktakar reistu á aðeins tveim mánuðum. í verzlun þessari eru margs konar íslenzk- ar vörur fyrir ferðamenn, og þar mega verzla þeir, sem eru á förum út úr landinu og viðkomufarþegar. Verzl- uninni er ætlað að auka tekjur af þessum ferðamönnum og um leið að selja íslenzka framleiðslu, en jafnframt er henni ætlað að safna ýmsum upplýsingum um kaukéhuga útlendinganna, svo og kaupgetu. Sala hefur verið góð það sem af er, en sumarið er að sjálfsögðu bezti sölutíminn. ■— Þegar þessi verzlun var opnuð, var jafnframt lögð niður verzlun Ferðaskrifstofu ríkisins, en í sáraþætur greiðir ís- lenzkur markaður hf. Ferðaskrifstofunni 21 kr. af hverj- um farþega, sem um flugvöllinn fer, og að auki eignast ríkið bygginguna og fær, ásamt viðkomandi sveitarfélagi, venjulega skatta af starfseminni. — Verzlunarstjóri er Guðmundur Ingólfsson. — Önnur stjórn og skrifstofa ís- lenzks markaðar hf. er í Reykjavík, framkvæmdastjórar

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.