Frjáls verslun - 01.02.1971, Blaðsíða 6
6
FRJÁLS VERZLUN NR. 2 1971
ÍSLAIXID
Byggðaþróun
Þjóðflutningar
á Reykjanesið
Samkvæmt töflum um mann-
fjölda á landinu 1.12. 1960 og
bráðabirgðatölum 1.12. 1970,
hefur fólki fjölgað um 27.052
á þessu tímabili, eða því sem
næst um 15.26%. Er fjölgunin
mun minni en gert hafði verið
ráð fyrir, og hefur afturkipps-
ins gætt einkum síðustu ár
tímabilsins.
Það er sérstaklega athyglis-
vert við þetta nýliðna tímabil,
að gífurleg fólksfjölgun hefur
orðið í einu kjördæmi landsins,
en hvergi annars staðar hefur
fólksfjölgunin náð meðaltalinu
og í einu kjördæmi hefur fólki
beinlínis fækkað tölulega.
Reykjanes sker sig úr fyrir
öra fólksfjölgun síðasta áratug,
en þar fjölgaði úr 26.010 í 38.-
030, um 12.020 eða 46.2%. í
Reykjavík fjölgaði úr 72.707 í
81.561, um „aðeins“ 9.154 eða
12.7%. Sama hlutfallsfjölgun
varð á Suðurlandi, en þaðan
af minni annars staðar og 4.7%
fólksfækkun á Vestfjörðum.
Innan kjördæma strjábýlisins
hefur svo aftur orðið nokkur
tilfærzla á fólki, yfirleitt úr
sveitunum í kauptún og kaup-
staði, og nokkuð miðað í þá
átt, að þar eflist byggðakjarn-
ar, þótt hægt fari. T.d. hefur
Egilsstaðakauptún byggzt upp
á þessum árum og í Egilsstaða-
hre,ppi hefur fjölgað úr 280 í
712, um 432 eða 154.3%, sem
er að vísu einstakt.
Hér á eítir fer tafla, sem sýn-
ir breytingar á fólksfjölda í
landinu 1960-1970, tölulegar og
hlutfallslegar, svo og hverjar
breytingarnar hefðu orðið. ef
meðaltalsfjölgun hefði orðið í
hverju kjördæmi fyrir sig:
Tryggingar
Atvinnuleysi
minnkar, sjóð-
urinn stækkar
Atvinnuleysi hér á landi ár-
ið 1970 var talsvert minna en
árið áður eða 1.6% á móti
2.4%, ef miðað er við vinnu-
ali, en 3.1% a móti 4.ö%, mið-
að við tryggða. JViiðað við nú-
gildanai torsendui- má ætla, að
toiuiegu atvmnuleysi verði
ekki utrýmt að tuitu, þar sem
hlé verða jafnan i atvmnulifi
sjávarþorpa og skráning nær
tit ymissa. sem ekki eru raun-
verulega gjaldgengnir á al-
mennum vinnumarkaði. Þessar
forsendur hafa verið fyrir
hendi frá upphafi atvinnuleys-
istrygginga 1955, en viðkom-
andi komust ekki upp á að
nýta þær fyllilega fyrr en á
áfallaárunum 1967 og 1968.
Atvinnuleysisbætur í fyrra
námu 66 milljónum króna, eða
því sem næst, á móti 124 millj-
ónum króna árið áður.
Bætur atvinnuleysistrygg-
inga nema nú til einstaklings
329 kr. á dag, til hjóna 380 kr.
á dag og fyrir hvert barn 35
kr. á dag, en þó mest 509 kr.
á dag, þar sem ekki er reiknað
með að hjón eigi nema mest
3V2 barn á framfærzlualdri.
Atvinnuleysistryggingas j óður
var í heild 31. janúar 1969
1.478 milljónir króna að stofni.
Tekjur hans árið 1970 voru því
sem næst 306 milljónir króna,
en bætur sem fyrr segir 66
milljónir króna, og mun sjóð-
urinn því vera um 1.718 millj-
ónir króna. Af beirri stofnfjár-
hæð eru bundnar í verðbréfum
1.179 milljónir króna, mest í
íbúðaðlánabréfum, enda er sjóð-
urinn skuldbundinn til að
kaupa íbúðalánabréf fyrir allt
framlag ríkissjóðs ár hvert.
Sjóðurinn lánar að aúki til ým-
issa atvinnuskapandi fram-
kvæmda, eftir ákvörðun sjóðs-
stjórnar hverju sinni og einnig
nokkuð í samráði við Atvinnu-
jöfnunarsjóð.
Tekjur Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs eru framlög frá at-
vinnurekendum, sveitarfélög-
um og ríkissjóði, og vaxtartekj-
ur. Atvinnurekendur og sveit-
arfélögin greiða sinn fjórðung
framlaganna hvor aðilinn, en
ríkissjóður helming. Munu upp-
hæðirnar í fyrra hafa verið um
53, 53 og 106 milljónir króna
og vaxtartekjur um 94 milljón-
ir króna.
Verzlun, þjónusta
Verzlunar-
menntun
endurskoðuð
Um nokkurt árabil hefur
verið unnið að endurskipulagn-
ingu á rekstri Verzlunarskóla
íslands, sem nú er að mestu
komin til framkvæmda. Þegar
undirbúningur að breytingun-
um var á lokastigi fyrir rúm-
um tveim árum, var haldin ráð-
stefna forráðamanna og starfs-
manna Verzlunarskólans og
Samvinnuskólans, og síðan hef-
ur verið starfandi samstarfs-
nefnd þessara aðila, sem heíur
fjallað á breiðum grundvelli
um verzlunarmenntun í land-
inu og framtíð hennar. Hafa
m.a. verið haldnir fundir með
starfsmönnum menntamála-
ráðuneytisins, en það ráðuneyti
tók við málefnum verzlunar-
menntunar að því er að ríkinu
snýr um áramótin 1969-1970.
Nýlega var ákveðið að sto-fna
nefnd allra þessara aðila um
lokaaðgerðir til að undirbúa til-
lögur um framtíðarskipun
verzlunarmenntunar í landinu.
Verzlunarskóli íslands og
Samvinnuskólinn eru, sem
kunnugt er einkaskólar, rekn-
ir af Verzlunarráði íslands og
Sambandi íslenzkra samvinnu-
félaga, og eru einu verzlunar-
Fjöldi Fjöldi Breyt. í Breyt. í Fjöldi nú
1960 1970 tölum % ef meðalt.
Reykjavík 72.707 81.561 9.154 12.7 83.800
Vesturland 11.983 13.193 1.210 10.1 13.180
Vestfirðir 10.507 10.040 -h 467 4.7 12.110
Norðurland 30.010 32.083 2.073 7.0 34.590
Austurland 10.367 11.296 929 9.0 11.950
Suðurland 16.018 18.047 2.029 12.7 18.460
Reykjanes 26.010 38.030 12.020 46.2 29.980