Frjáls verslun - 01.02.1971, Blaðsíða 48
48 GREINAR OG VIÐTÖL FRJÁLS VERZLUN NR. 2 1971
Austur Evrópa
Paradís er ekki á næstu grösum
í upphafi síðasta árs spáðu
nO'kkrir vestrænir sérfræðing-
ar á sviði efnahagsmála, að
hagvöxtur í Sovétríkjunum
myndi minnka, en að í Ung-
vexjalandi myndi verða fram-
hald á endurbótum og fram-
förum í efnahagslífinu. Sé þessi
spá borin saman við reynziuna
kemur í ljós, að iðnaðarfram-
leiðsla í Sovétríkjunum jókst
um 8% árið 1970, miðað við
7% árið 1969 og 10% 1968.
Því fer fjarri, að Rússar hafi
leyst sín vandamál, því að fyr-
ir skömmu spáði sovézka á-
ætlunarráðið því, að iðnaðar-
framleiðsla myndi aðeins auk-
ast um 6,9% á árinu 1971 og
þjóðartekjur um 6.1% á móti
7.6% á sl. ári.
Eins og áður, er gert ráð fyr-
ir, að aukningin í framleiðslu
neytendavarnings verði meiri
en aukningin í útflutningsiðn-
aðinum. Fjárfesting í nýjum
fyrirtækjum innan framleiðslu-
iðnaðarins mun fara hlutfalls-
lega minnkandi miðað við
þjóðartekjur, í samræmi við
þróun undanfarinna ára, en
útgjöld til hernaðar og geim-
vísinda munu enn aukast. A
fundi Æðsta ráðsins í haust,
þar sem efnahagsmálin voru
efst á baugi, gagnrýndu
margir æðstu menn efnahags-
mála, seinaganginn í nýtízku-
legri vélvæðingu framleiðslu-
iðnaðarins og landbúnaðarins.
Einkum lögðu þeir áherzlu á
nauðsyn þess að vélvæðingu
landbúnaðarins yrði hraðað,
þar sem æ fleiri landbúnaðar-
verkamenn flytjast nú yfir í
aðrar atvinnugreinar og þar af
leiðandi fer skortur á ýmsum
landbúnaðarafurðum vaxandi,
t. d. kjöti. Var lögð áherzla á
að þetta mál þyldi enga bið.
Eitt erfiðasta vandamál sov-
ézkra ráðamanna, hefur verið
síaukin eftirspurn neytenda og
hvernig hægt sé að fullnægja
þeirri eftirspurn. Þetta vanda-
mál hefur nú orðið enn Ijós-
ara í kjölfar óeirðanna í Pól-
landi nú fyrir skömmu, þar
sem mesta óánægjan var yfir
skorti á neyzluvarningi og svo
auðvitað hinum gífurlegu verð-
hækkunum, sem Gomulka til-
kynnti, skömmu áður en hon-
um var steypt úr valdastóli.
Óeirðirnar í Póllandi sýna bet-
ur en nokkuð annað, hvað ger-
ist, ef framboð neyluvarnings
er ekki viðunandi, þ. e. a. s. ef
ekki nýtur stálhnefa Stalíns.
Á seinni hluta sl. áratugs
var hafizt handa um sérstak-
ar efnahagsumbætur í Austur-
Evrópu, að Rúmeníu og Búlgar-
íu undanskildum, sem þegar
voru komin lengra á leði.
Markmiðið var að losna við að
til aðgerða eins og í Póllandi
drægi. Allir vita hver örlög
Tékkóslóváka urðu, en hvergi
var umbótunum tekið jafnvel,
né urðu meiri framfarir á sviði
efnahagsmála. Tékkóslóvökum
urðu aðeins á ein mistök, og
það var að umbæturnar og
frelsið færðust út í alla þætti
þjóðlífsins.
í Póllandi köfnuðu umbóta-
tilraunirnar áður en þær náðu
sér á strik og skipti þar mestu
hreinsanirnar árið 1968, eftir
ólguna það ár, en þá var flest-
um helztu umbótasinnunum
sparkað úr flokknum, eftir
mikil átök innan hans. Síðan
þá hefur ekkert miðað áfram
og ástandið farið síversnandi
unz upp úr sauð í hafnarborg-
unum á Norðurströndinni. Gi-
erek eftirmaður Gomulka, er
talinn kjörinn, til að taka upp
þráðinn á ný og hleypa nýju
lífi í efnahagslíf þjóðarinnar,
en hitt er ekki enn ljóst, hversu
styrkur hann er í sessi gagn-
vart ráðamönnum í Kreml
enda þótt Brezhnef, aðalritari
sovégka kommúnistaflokksins
hafi þegar eftir valdatökuna,
sent Gierek heillaóskaskeyti,
þar sem hann kallaði hann góð-
an vin Sovétríkjanna. Stjórn-
málafréttaritarar telja það ó-
hjákvæmilegt að Gierek fari
sér hægt í byrjun og þreifi fyr-
ir sér, áður en hann hefst
handa. Ýmsir hafa talið það
góðs viti. að hin nýja flokks-
forusta Póllands hefur þegar
byrjað að saka Gomulka um að
hafa átt sök á hvernig fór, en
eins og kunnugt er, var aldrei
sagt 'Opinberlega að Gomulka
'hefði verið steypt úr stóli, held-
ur að hann hefði dregið sig í
hlé af heilsufarsástæðum. En
það er líka ljóst, að þar sem
flokksforustan hefur nú viður-
kennt að ástandið sé slæmt,
kemst hún ekki hjá því að heifj-
ast handa til að friða Pólverja.
Enn berast fréttir af því að
verkamenn viða um landið
halda áfram fundum og mót-
mælaaðgerðum og jafnvel
verkföllum, til að reka á eftir
umbótum og fyrir skömmu var
birt bréf frá forsætisráðberra
Póllands, sem hann sendi
stjórnendum iðnfyrirtækja og
annarra stjórnenda atvinnufyr-
irtækja, þar sem hann gagn-
rýndi þau „vettlingatök", sem
hann taldi að stjórnendur
hefðu tekið fólkið í stað þess
að halda uppi aga og reglu til
að tryggja viðunandi afköst.
Líklega hafa ráðamenn í Kreml
staðið að baki bréfsins, til þess
að láta vita að mótmælaaðgerð-
ir og ólga verði ekki látin við-
gangast. Þetta er mjög í sam-
ræmi við þróunina í Sovétríkj-
unum á þessu ári, en þar hafa
umbótasinnar verið í varnar-
stöðu, þar eð svo virðist sem
valdamenn í Kreml hallist nú
æ meir að því, að agi sé bezta
ráðið til að tryggja lausn efna-
hagslegra vandamála.
I dag eru það aðeins þrjú
lönd í Austur-Evrópu, sem geta
státað af raunverulegum fram-
förum í efnahagslífinu, Ung-
verjaland, Búlgaría og Rúmen-
ía, en það er aðeins í Ungverja-
landi, sem þessar framfarir eru
virkilega raunhæfar og skipta
verulegu máli. Rúmenar og
Búlgarar hafa nokkra sérstöðu,
því að þeir eru hvað óháðastir
Rússum. Búlgarar lúta þó al-
gerri harðlínustjórn og eru því
meira í náðinni hjá Rússum,
Rúmenar eru frjálslyndari og
sjálfstæðari, en eru látnir í
friði. því að Kremlarbúar vita
að Ceausescu forsætisráðherra
er dyggur kommúnisti, sjálf-
stæðari en þeir kunna að telja