Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1971, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.02.1971, Blaðsíða 17
FRJÁLS VERZLUN NR. 2 1971 ÚTLÖND 17 urnar koma ekki á markaðinn fyrr en í júní og uppskerutíma- bilinu lýkur í september, þann- ig að hér er mikið í húfi. Brezkir vísindamenn, sem unnið hafa að þessum tilraun- um um eins árs skeið, hafa þeg- ar náð athyglisverðum árangri. T. d. hefur tekizt að geyma eina tegund kartafla (Maris Peer) frá því í ágúst fram í febrúar. Meðalhitinn í geymsl- unni var um 3,3 gráður á cel- cíus, og reynt var að halda háu, þó breytilegu rakastigi í sam- ræmi við hitann. Sýnishorn voru tekin á mánaðarfresti, soðin niður og síðan geymd í þrjá mánuði við stofuhita, unz dósirnar voru opnaðar. Þessi sýnishorn voru síðan borin saman við uppskeru. sem kom beint úr görðum í ágúst og reyndust gæðin mjög svipuð. Það eina, sem raunverulega var fundið að, var að erfiðara var að afhýða kartöflurnar, sem geymdar höfðu verið. Vís- indamennirnir eru nú mjög bjartsýnir á að geta leySt þetta vandamál og önnur, sem kunna að koma upp og halda áfram tilraununum með mismunandi hita og rakastig i geymslunum. um. Bretland Shillingurinn úr sögunni. Breytingin kost- ar um 200 millj. punda Bretar tóku upp tugakerfið 15. þessa mánaðar, rétt tæpum 8 árum eftir að ákveðið var að leggja niður hið flókna pen- ingakerfi, sem verið hefur í gildi um aldaraðir. Pundið verður nú ekki lengur 20 shill- ingar og 240 penní, heldur 100 penní og aðeins það. Síðustu sex vikurnar, fyrir breyting- una stóð einhver mesta aug- lýsingaherferð í sögu Breta, er hið opinbera eyddi um 270 milljónum ísl. kr. til að tryggja að það færi ekki fram hjá nokkrum manni, að skipt yrði yfir í tugakerfið. Stjórnin gsf út um 25 milljón- ir bæklinga, eða tæplega einn bækling fyrir hverja tvo Breta, auk þess sem sjónvarp, útvarp og blöð voru full af auglýsing- um. Meira að segja var saminn sérstakur framaldsþáttur í sjónvarpi, sem einkum höfðaði til eldri kynslóðarinnar og hét „Amma skilur hvernig í pott- inn er búið“. Ýmsir Bretar hafa á undan- förnum árum látið í ljósi ótta við að þeir muni aldrei geta lært að telja skv. tugakerfinu, en nefndin, sem hefur haft yf- irumsjón með breytingunni brosir að slíku og segir að með tilliti til þess að brezka þjóðin sé talin sú fastheldnasta á gamlar venjur og siði í öllum heiminum, sé ekki að undra þótt svartsýnisraddir heyrist. Nefndin telur þó fullvíst að þjóðin verði ekki lengi að kom- ast uppá lagið og spáir því að gamla kerfið verði gleyrnt löngu áður en aðlögunartiminn, sem er 18 mánuðir, rennur út, og að þá muni viðkvæðið verða: „Hvers vegna í ósköp- unum var þetta ekki gert fyrr?“ Enginn veit með vissu, hve mikið breytingin kemur til með að kosta, en árið 1963 var áætl- að að heildax-kostnaðurinn yrði ekki undir 128 milljónum sterlingspunda, síðan hefur gengi pundsins verið fellt einu sinni og mikil verðbólga hefur verið í landinu. Telja ýmsir að kostnaðuiánn muni verða um 200 milljónir strelingspunda áður en yfir lýkur. Gífurlegt magn af nýjum peningum hefur verið slegið og er reiknað með að væri pen- ingunum staflað tíu í stafla myndu staflarnir ná næstum tvisvar sinnum í kringum jörð- ina. Alls hafa verið slegnir 3,4 milljarðar peninga, eða sem svarar 62 á hvern Breta. Helm- ingurinn af þessum peningum er þegar kominn í umferð, 5,10 og 50 penní, því að hægt var að nota þá með gamla kerfinu. ¥2, 1 og 2 penní féllu ekki inn gamla kerfið og voru því ekki teknir í notkun fyrr en 15. febrúar. Gífurlegur viðbúnaður var við hafður síðustu dagana fyrir D-dag og bankar og peninga- stofnanir leigðu heilan flota af flugvélum til að flytja pening- ana til útibúa sinna úti á lands- byggðinni, auk þess sem þurfti að flytja alla ávísanareikn- inga og annað svipað til Lond- on, þar sem rafmagnsheilar sjá um að breyta bókhaldinu yfir í tugakerfið. Hér er um að ræða 14.500 banka og útibú. En það eru ekki aðeins bankar og peningastofnanir, sem viðbúnað þurftu að hafa, einnig allar verzlanirnar á Bretlandseyjum. Þær þui’ftu allar að fá sína peninga í tæka tíð, auk þess sem þær urðu að láta breyta yfir 5 milljónum peningakassa. Aætlað er að í London hafi þurft að breyta jafnmöi'gum kössum og í Ástra- líu, Nýja Sjálandi og S-Afríku til samans, er þar var skipt yfir í tugakerfið á sínum tíma. Er þetta glöggt dæmi um, hve gíf- ui'lega umfangsmikil þessi breyting hefur verið. Brezka tugakerfisnefndin kynnti sér gaumgæfilega allt í sambandi við bi'eytingar í þessum löndum og öðlaðist þar dýi’mæta reynzlu og vitneskju. Það var sameiginlegt með öll- um þessum þjóðum, að íbúarn- ir urðu þegar í stað sáttir við breytinguna og töldu nær ein- róma að mikil hagsbót hefði verið að henni. Brezka tuga- kerfisnefndin telur að Bretar verði hér engin undantekning. Brezkir verzlunarmenn hafa orðið að kosta miklu fé til þjálfunar stai'fsmanna sinna vegna breytingarinnar, en þeir telja að aukin framleiðsla og tímasparnaður muni meira en bæta upp útgjöldin. Hjá einu fyrirtæki leiddu prófanir í Ijós að tímasparnaður af tugakerf- inu nam um 30% og mistök minnkuðu um 50% í úti’eikn- ingum í tugum frá því sem var með sterlingspund, shill- inga og penní. í stói'verzlunum, sem tapað hafa um 10 shillingum af hverj- um 1000 pundum er gert ráð fyrir að tapið minnki um helm- ing, er tugakerfið verður kom- ið í fulla notkun. Líklega eru brezkir ferða- skrifstofumenn allra manna glaðastir, því að þegar fei’ða- mannastraumurinn byrjar (í ár koma 5 milljónir ferðamanna til Bretlands) munu ferða- mennirnir, sem nær allir eru vanir tugakei'fi, eyða meira fé og verða ánægðari með dvöl- ina. Þungu fargi verður líka létt af stai'fsmönnum hótela, veitingastaða, leigubifreiða- stjórum. Hvað sem öllu líður verður tugakerfið nú tekið upp og ekki verður aftur snúið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.