Frjáls verslun - 01.03.1971, Blaðsíða 15
FRJÁLS VERZLUN NR. 3 1971
ISLAND
13
Þar hverfur einn af sterkara taginu; bannvara á íslandi. En við höfum ])ó vínið í fjölbreyttara úr-
vali en flestir aðrir!
an hálfs til eins áratugs, verði
jarðvarmi hitagjafi á öllu höf-
uðborgarsvæðinu og í næsta
nágrenni þess.
Reykjavíkurborg býr nú við
jarðvarmaveitu, eins og kunn-
ugt er. Ætlun borgaryfirvalda
er að ný hverfi fái jarðvarma
jafn óðum og þau rísa. Hefur
staðið til að leiða jarðvarma
frá Nesjavöllum við Hengil,
þar sem talið hefur verið að
virkjunarmöguleikar á Reykj-
um í Mosfellssveit og í sjálfu
höfuðborgarlandinu væru nær
fullnýttir. Nú hafa verið borað-
ar nokkrar nýjar holur á
Reykjum, sem gefa mikla
vatnsaukningu, og með dæl-
ingu er talið að vatnsaukning-
in á Reykjasvæðinu nægi
Reykjavíkurborg næstu 10 ár-
in. Og ekki nóg með það, held-
ur geti Kópavogskaupstaður
fengið nægan jarðvarma fyrir
jarðvarmaveitu um allan kaup-
staðinn.
Einnig hefur verið rætt um
þann möguleika að Kópavogs-
kaupstaður, ásamt Garðakaup-
túni og Hafnarfjarðarkaupstað,
fengi jarðvarma frá Krísuvík.
Síðarnefndu staðirnir geta
vissulega nýtt þann möguleika
engu að síður, þótt Kópavogs-
kaupstaður fengi jarðvarmann
norðan frá og austan. Byggð á
Suðurnesjum á þess kost að fá
jarðvarma bæði af Reykjanesi
og frá Krísuvík. Og nú í sumar
mun hefjast lagning jarð-
varmaveitu um Seltjarnarnes
frá borholum þar. Loks eru
möguleikar miklir í Mosfells-
sveit og austan Fjalls, og hafa
að nokkru verið nýttir nú þeg-
ar.
Enda þótt líkurnar bendi til
þess, að jarðvarmi verði hita-
gafi á öllu höfuðborgarsvæð-
inu í næstu framtíð, má reikna
með og er raunar nær fullvíst,
að einstaka hús og húsaþyrp-
ingar verði út undan. Líkleg-
ast er að raforkan kom þar
til skjalanna.
Iðnaftur
Islendingar
drekka 2 millj.
lítra af óáfengu
öli árlega
Samkvæmt skýrslum Hag-
stofu íslands, drekkum við ís-
lendingar um 1.1 millj. lítra af
maltöli og svipað af öðru ó-
áfengu öli árlega, eða rúmlega
2 millj. lítra í allt af þessum
vökvum. Raunar er þetta ó-
áfenga öl ekki alveg óáfengt,
nokkurt áfengismagn er í malt-
öli, innan við 2%. og 2.25% í
pilsner og lageröli.
Ef þessu ölmagni er deilt
niður á landsmenn, og gert ráð
fyrir að útlendingar fúlsi við
krásunum, gerir það um 10
lítra á hvert mannsbarn. Sé
'hins vegar einnig gert ráð fyr-
ir að börn byrji ekki í ölinu
fyrr en 15 ára, er ölmagnið
17-18 lítrar á hvern landsmann
15 ára og eldri. Ólíklegt er að
þeir teygi það allir, svo ein-
hverjir drekka talsvert af öli,
þótt það sé eins og stendur í
Hagtíðindum „óáfengt". Sá
sem drekkur 20 lítra á ári,
tæmir 60 flöskur.
Nú eru það tvö fyrirtæki,
sem framleiða óáfengt öl, Öl-
gerðin Egill Skallagrímsson hf.
og Sana hf. Tómas Tómasson
eldri, forstjóri Ölgerðarinnar,
sagðist aldrei gefa blöðum upp
framleiðslumagn hennar, og
ekki óhætt fyrir okkur að
treysta fullkomléga tölum
Hagtíðinda. Börkur Eiríksson
framkvæmdastjóri Sana hf. gaf
okkur hins vegar upp, að fyrir-
tæki hans hefði framleitt um
664.500 lítra af óáfengu öli í
fyrra. Ætti Ölgerðin því að
hafa framleitt um 1.400.000
lítra það ár, en sú tala er auð-
vitað hrein ágizkun okkar. Af
tölum þeim, sem Börkur gaf
okkur upp, gizkum við einnig
á að Sana framleiði álíka mik-
ið af Thule lageröli og Ölgerð-
in af pilsner, en Ölgerðin hafi
megnið af maltölsframleiðsl-
unni.
Bæði nefnd fyrirtæki fram-
leiða nokkurt magn af sterk-
um bjór, 4.5%, sem þau selja
í aðeins minni flöskum til ým-
issa aðila, eins og á Keflavíkur-
flugvelli, sendiráða, flugfélaga
og skipafélaga.
Samgöngur
Fiskútflutningur
loftlei5is í
hnotskurn
Að undanförnu hafa tvö ung
flugfélög hér á landi stefnt að
og gert tilraunir með fiskút-
flutning loftleiðis. Áður hafa