Frjáls verslun - 01.03.1971, Blaðsíða 27
FRJÁLS VERZLUN NR. 3 1971
GREINAR OG VIÐTÖL
25
hennar áætlað um 2000 milljónir króna á síðast-
liðnu ári.
3. Aðrar framleiðslugreinar.
Sá efnahagslegi endurbati, er varð á árinu
1969, náði fljótt til þeirra framleiðslugreina,
sem einkum framieiða í samkepnni við erlenda
aðila og nutu því áhrifa gengisbreytingarinnar
til bættrar samkeppnisaðstöðu. A þetta aðallega
við um ýmsar greinar iðnaðar, en vegna slakr-
ar eftirspurnar framan af árinu 1969 gat iðnað-
urinn ekki almennt notfært sér hina bættu að-
stöðu. í nokkrum greinum varð þó fljótt um
aukningu að ræða, t. d. í þeim greinum, er fram-
leiða aðföng og fjárfestingarvörur fyrir sjávar-
útveg. Þannig leiddi aukin sjósókn og fiskafli
til aukinnar endurnýjunarþarfar bátaflotans og'
einnig var um viðbótarþörf að ræða. Þessum
þörfum var nú að mestu mætt með innlendri
skinasmíði. og var það gagnstætt því, sem áður
hafði verið. í lok ársins 1969 höfðu flestar grein-
ar iðnaðar náð sér vel á strik og á árinu 1970
var um verulega framleiðsluaukningu í nær öll-
um greinum að ræða. Má gera ráð fyrir, að fram-
leiðsluaukning í almennum iðnaði hafi verið
a. m. k. 13% árið 1970 en var 8,5% árið 1969.
Er þá fiskiðnaður svo og ál- og kísilgúrfram-
leiðsla ekki talin með.
f öðrum greinum. einkum framkvæmdum og
þjónustu, var endurbatinn mun hægari, enda
var ekki við því að búast, að þær tækju við sér
fyrr en áhrifa aukinnar útflutningsframleiðslu
væri almennt talið að geta í þjóðarbúskapnum.
Á árinu 1969 dróst byggingarstarfesmi saman
um 16%, en þessi mikli samdráttur var að
nokkru leyti vegna þess, að framkvæmdum við
Búrfellsvirkjun og álverksmiðjuna í Straums-
vík var að Ijúka í bili. Einnig hafði fiárfesting
í framleiðslutækjum verið mikil á miðjum ára-
tugnum og þörfin því ekki mikil í fyrstu. Á ár-
inu 1970 varð aftur aukning í byggingarstarf-
semi um 2-3%.
Opinber þjónusta jókst um 4-5% á síðasta
ári og er það meðalaukning miðað við fyrri ár,
en árið 1969 hafði aukning aðeins verið 2%.
Einnig varð töluverð aukning í samgöngu og
ferðamálum á síðasta ári. Má búast við, að
þjónustustarfsemi í heild hafi aukist um 5-6%
á árinu en hafði aukizt um 2,5% árið áður.
Landbúnaður hefur búið við erfið ytri skil-
yrði undanfarin tvö ár. Tíðarfar hefur víðast
verið fremur óhagstætt og kal og eldgos hafa
valdið frekari erfiðleikum, Þannig hefur fram-
leiðsla landbúnaðarafurða að líkindum staðið í
stað að magni til á síðasta ári, en hún hafði
minnkað um 2,5% á árinu áður.
4. Atv>nna, tekiur og verðlag.
f kjölfar hins almenna samdráttar í efnahaffs-
lífinu á árunum 1967 ov 1968 fylgdi minnkandi
eftirsnurn eftir vinnuafli og var atvinnulevsi
töhivert um tíma og hélz.t nokkuð út allt árið
1969. einkum vegna samdráttar í bvggingariðn-
aði. Á árinu 1970 má telja, að atvinniilevsi hafi
horfið úr sögunni sem almennt, vandamál van-
eftirspurnar eftir vinnuafli. Meðalatvinnulevsi
var 1,3% af heildarmannafla 1970 (2,5% 1969),
og er það lítið, miðað við reynzlu annarra þjóða.
Um leið kemur það atvinnuleysi sem eftir er,
skýrar í ljós sem staðbundið og árstíðabundið
fyrirbæri, einkum á Norðurlandi.
Á árunum 1968 og 1969 snérust kjarasamn-
ingar aðallega um verðtryggingarákvæði vegna
gengisbreytinganna. Var fyrirkomulag verðlags-
bóta þannig, að hinir lægst launuðu fengu hlut-
fallslega mestar bætur og var því um nokkra
launajöfnun að ræða. Er talið, að í marz 1970,
eða áður en bætur urðu hlutfallslega jafnar fyr-
ir alla, hafi verkamenn unnið á um 7-8%
gagnvart verzlunarfólki og opinberum starfs-
mönnum frá 1967 og iðnaðarmenn um 11-12%.
Hafði þetta áhrif á kjarasamninga opinberra
starfsmanna í lok síðasta árs.
I kjarasamningum á síðastliðnu sumri var
samið um grunnkaupshækkun, sem metin er
um 18%. Við þessa hækkun bættist svo hækk-
un verðlagsbóta í júní um 3% að meðaltali og
í september um 4,2%. Hafði kaup þá hækkað
um 26,5% frá því í marz-maí, en áætlað er,
að kaupgjald verkafólks og iðnaðarmanna hafi
á árinu 1970 hækkað um nær 24% frá meðaltali
fyrra árs, en hækkaði 1969 um 13,7%. í byrjun
árs 1970 hækkaði fiskverð um 9.5% að meðaltali,
en þar sem kostnaðarhlutdeild, sem fiskvinnsla,
greiðir útgerð var minnkuð, hækkaði skiptaverð
til sjómanna um 15% og í júní hækkaði fiskverð
aftur um 5,5%.
Þróun verðlags á árunum 1968 og 1969 mót-
aðist mjög af áhrifum gengisbreytinganna.
Launahækikanir hafa líklega haft einhver áhrif
á árinu 1969, en þó öllu meiri á síðasta ári. Yfir-
leitt munu verðhækkanir á síðasta ári að mestu
hafa orðið fyrir áhrif frá kostnaðarhlið, þar sem
eftirspurn framan af árinu var ekki meiri en svo
að henni mátti fullnægja með þeim framl.-öfium,
sem fyrir hend voru. Erfitt er að greina verð-
lagsþróunina í einstaka áhrifaþætti eins og t. d.
erlendar verðhækkanir, sem hafa verið tölu-
verðar, tollalækkanir og söluskattshækkun, fyrir
utan iaunahækkanir, en gera má ráð fyrir, að
framleiðnibreytingar hafi vegið upp launa-
hækkanir að enhverju leyti.
Hér á eftir fara nokkrar tölur um tekju- og
verðlagsbreytingar á tveimur undanförnum ár-
um. Má af þeim sjá, hve mikil breyting hefur
átt sér stað á árinu 1970, er kaupmáttur launa
(m. v. vísitölu framfærslukostnaðar) eykst um
nær 9% eftir að hafa minnkað um 6,6% árið áð-
ur og kaupmáttur ráðstöfunartekna, en það eru
heildartekjur að frádregnum beinum sköttum
og viðbættum tilfærslum almannatrygginga, hef-
ur Hklega aukzt að meðaltali um 9,7% en
minnkaði um 9% árið 1969 (m. v. vísitölu
neyzluvör uverðlags).
Tekjur og verðlag, breyting frá fyrra ári í %:
Tímakaup verkafólks og
iðnaðarmanna 13,7 23,7
Kaupmáttur tímakaups m. v. vísitölu framfærslukostnaðar -f6,6 9,1
Ráðstöfunartekjur, meðaltekjur 13,0 26,0i)
Kaupmáttur ráðstöfunartekna, m. v. vísitölu neyzluv.verðlags -9,0 9,7i)
Vísitala framfærslukostnaðar 21,7 13,4
Vísitala neyzluvöruverðlags 24,1 14,9
Vísitala byggingaikostnaðar 23,0 17,1
i) Aætlað; tölurnar eiga við kvænta verka-, sjq-
og iðnaðarmenn.