Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1971, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.03.1971, Blaðsíða 25
FKJÁLS VERZLUN NR. 3 1971 23 GREIIMAR OG VIÐTÖL Þjóðarbúskapurinn Þróun efnahagsmála 1970 Eftir Ólaf Davíðsson hagfræðing. 1. Þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur. Efnahagsþróun undanfarinna ára hefur ein- kennzt mjög af snöggum umskiptum, sem orðið hafa frá góðæri til hallæris, sem fljótt hefur þó snúizt í velgengn á ný. Það hefur því ekki farið fyrir Islendingum nú eins og annarri þjóð forð- um, að sjö mögur ár fylgdu feitu árunum sjö. Sé litið á breytingu þjóðarframleiðslu og þjóðartekna sem mælikvarða á efnahagslega af- komu, er augljóst, hverjar umhleypingar hafa verið í efnahagsþróun á íslandi á undanförnum árum. Þjóðarframleiðslan minnkar að magni til um 2% árð 1967 og um 6% árið 1968 eftir að hafa aukizt að jafnaði um 9% á ári næstu fimm árin á undan, Árið 1969 verður breyting til batnaðar og þjóðarframleiðsla eykst á ný og á síðasta ári má telja, að góðæri hafi aftur ríkt á íslandi. Ef litið er á breytingu þjóðartekna, er sveiflan enn meiri frá góðæri til hallæris og til baka aftur. Munurinn á þessum tveimur stærðum er vegna áhrifa breyttra viðskipta- kjara, þ. e. þeirrar breytingar, sem verður á verði útflutningsafurða miðað við verð inn- flutnings. Kemur í Ijós, að breyting þjóðar- tekna hefur verið meii en breytng þjóðarfram- leiðslu öll árin og munar oft töluverðu. Sezt af því, hve Íslendingar eru háðir erlendu verðlagi á sjávarafurðum um a'fkomu sína. Þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur, aukning frá fyrra ári í %: 1962-66 1967 1968 1969 1970 meðaltal áætlun 1. Þjóðarframl. 8,9 -4—2,1 4-6,0 2,0 6,0 2. Þjóðartekjur 10,2 4-7,0 -7,1 3,0 10.5 3. Þjóðarframl. á mann 7,0 4-3,6 4-7,2 1,2 5.0 4. Þjóðartekjur á mann 8,3 4-8,5 4-8,3 2,2 9.5 Þjóðarframleiðsla, m. kr. á verðlagi hvers árs. 25.730 27.380 33.700 42.200 Hár á eftir verða settar fram nokkrar tölur um ýmsa- þætti þjóðarframleiðslu og almenna efnahagsafkomu á síðastliðnu ári. Er að veru- legu leyti stuðzt við bráðabirgðatölur, þar sem fullnaðarúrvinnsla upplýsinga tekur yfirleitt langan tíma, en ekki er við því að búast, að endanlegar tölur sýni í megindráttum aðra heild- armynd en þá, sem nú liggur fyrir. 2. Útflutningsframleiðslan Eitt markmið þeirra efna'hagsráðstafana, sem gerðar voru í árslok 1968, var að skapa hvatn- ingu til þess að nýta sem bezt þær breytingar, er kynnu að verða á ytri aðstæðum, þ. e. að fiskafli glæddist og verðlag á sjávarafurðum 'færi hækkandi á ný. Sú varð einnig raunin á. Vetrarvertíð 1969 reyndist gjöful, þrátt fyrir sjómannaverkfall í janúar og febrúar, og fiski- gengnd fyrir Norður- og Austurlandi fór vax- andi. Bátar, er smíðaðir höfðu verið til síld- veiða á þeim árum, er síldarhrotan gekk yfir, leituðu nýrra verkefna og mjög almenn aukn- ing varð í sjósókn, Heildaraflinn jókst því veru- lega á árinu 1969 eða um 17% að magni frá ár- inu áður. Verðlag á fiski erlendis tók aftur að hækka, þannig að gjaldeyrisverðmæti fram- leiðslu sjávarafurða hækkaði um 23% á árinu og var þarna fyrst og fremst að finna ástæðu þess, að þjóðarframleiðsla jókst á árinu 1969 um 2% og þjóðartekjur um 3%. Á árinu 1969 var þann- ig snúið við hinni óhagstæðu þróun tveggja und- anfarinna ára. Eins og aflabrestur og verðlækk- un á fiski erlendis mögnuðu sveifluna niður á við, þá sameinuðust bætt aflabrögð og verð- hækkun um að beina sveiflunni upp á við á ný. Framan af árinu 1970 varð enn veruleg aukn- ing fiskafla miðað við sama tíma árið áður, en síðustu mánuði ársins dró úr afla, þannig að heildaraukning fiskaflans varð ekki eins mikil og útlit var fyrir lengi framan af. Samkvæmt bráðabirgðatölum jókst heildarfiskafli um rúm- lega 4% frá árinu áður. Áætlað er, að útflutning's framleiðsla sjávarafurða hafi aukizt um 4% að magni til. Gjaldeyrisverðmæti framleiðslunnar jókst hins vegar um rúm 27% miðað við árið áður, enda fór verð á fiskafurðum erlendis stöð- ugt hækkandi eftir því sem á árið leið, og lætur nærri að meðalútflutningsverð hafi hækkað um 23% frá 1969. Hækkunin var töluvert meiri seinustu mánuði ársins, en framboð á frystum fiski var þá lítið á Bandaríkjamarkaði. Áhrif þessarar miklu verð- hækkunar koma glöggt í ljós, þegar litið er á hina miklu aukningu þjóðartekna umfram þá aukningu, sem varð á þjóðarframleiðslu. Framleiðsla annarra útflutningsafurða jókst einnig á síðasta ári, og á það einkum við um ýmsar ullarvörur. Kísilgúrverksmiðjan var stækkuð á árinu og álverksmiðjan lauk sínu fyrsta fulla starfsári. Er framleiðsluverðmæti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.