Frjáls verslun - 01.01.1972, Page 11
AUGLYSIIMGAR
Bannið kostar blöðin 12 milljónir
Tóbaksinnflytjendur reyna nýjar leiðir
„Allar auglýsingar á tóbaki
í blöðum, útvarpi, sjónvarpi og
utandyra skulu bannaðar. Þó er
Áfengis- og tóbaksverzlun rík-
isins heimilt að auglýsa verð á
tóbaksvörum."
Þannig hljóðar lagaákvæðið,
sem gekk í gildi um áramótin
og bannar tóbaksinnflytjendum
á ís’landi að auglýsa vörur sín-
ar,en það mun jafnframt þýða
um 12 milljón króna tap fyrir
íslenzk dagblöð og tímarit, sé
miðað við þær upphæðir, sem
varið var í auglýsingar á síðast-
liðnu ári.
Tóbaksinnflytjendur geta þó
og má sjá þau allvíða í búðar-
gluggum nú þegar. Samkvæmt
lögunum mun ekki hægt að
amast við slíkum auglýsingum
séuþær innan á glugga, jafnvel
þótt þær snúi út að fjölförnum
götum.
Tóbaksinnflytjendur áttu í
vor viðræður við heilbrigðis-
málanefnd Alþingis, þar sem til-
lagan um auglýsingabannið var
rædd. í rökstuðningi sínum
bentu þeir á, að reynslan er-
lendis frá leiddi í ljós, að aug-
lýsingabönn hefðu ekki haft til-
ætluð áhrif í minnkandi tóbaks-
neyzlu. Þvert á móti hefði
í kvikmyndahúsum. í Svíþjóð
er bannað að auglýsa tóbak í
kvikmyndahúsum og á íþrótta-
völlum, auglýsingar mega ekki
höfða til unglinga og fyrirsæt-
ur í auglýsingamyndum verða
að hafa náð 25 ára aldri.
I Bandaríkjunum hefur bann
við tóbaksauglýsingum í sjón-
varpi leitt til 215 milljón doll-
ara samdráttar í auglýsinga-
tekjum sjónvarpsstöðvanna.
Þessi herferð gegn vindling-
unum hefur bakað tóbaksfram-
leiðendum mikil óþægindi og
hin hefðbundna markaðsupp-
bygginghefur verulega raskazt.
Winston: Gjaíavörur.
KENT
Kent: Gjafavörur,
Viceroy: Gluggaskilti.
gripið til annarra ráða til að
vekja athygli á þeim tóbaksteg-
undum, sem þeir flytja inn. Hjá
Rolf Johansen, sem er umboðs-
maður fyrir Camel, Winston og
Salem, sáum við á dögunum
ýmsar smágjafir með merkjum
þessara vindlingategunda, og
eru þær ætlaðar til dreifingar
hérlendis. Voru það einkum
pennar, öskubakkar, blöðrur og
jafnvel rafmagnsrakvélar.
Albert Guðmundsson, sem
flytur inn Kent-sígarettur, hef-
ur fengið til dreifingar nokkurt
magn af innkaupapokum, bolt-
um og spilum með merki Kent.
Árni Gestsson í Glóbus, sem
hefur umboð fyrir Viceroy, hef-
ur látið gera auglýsingaspjöld
til að setja upp í verzlunum
neyzlan aukizt jafnt og þétt,
þrátt fyrir bönnin.
Ítalía mun vera eina Evrópu-
landið, þar sem tóbaksauglýs-
ingar eru algjörlega bannaðar.
Þetta bann var sett árið 1962.
Þá nam meðalneyzlan á mánuði
4.652 millj. vindlinga þar í
landi, en 5.555 að meðaltali á
mánuði 1967. Er þetta mikil
aukning á hvern íbúa, en hún
stóð aðeins í stað árið 1964.
í Bretlandi var bannað árið
1962 að auglýsa tóbaksvörur í
útvarpi og sjónvarpi fyrr en
eftir kl. 21. Það ár seldust
109.900 millj. vindlinga. Árið
1967 nam vindlinganeyzlan
hins vegar 119.100 milljónum.
í Noregi gilda þær reglur, að
tóbaksauglýsingar eru bannaðar
Framleiðendur reyna því ýmis
nýmæli og í Bandaríkjunum
sjást augljós dæmi þess.
Sígarettupakkinn má ekki
lengur líta út eins og sígarettu-
pakki. í stuttu máli má segja,
að litprentuðu auglýsingarnar,
sem til þessa hafa birzt í blöð-
um og tímaritum, hafi nú ver-
ið smækkaðar og skellt á sjálfa
sígarettupakkana.
Þannig fyllast nú hillur tó-
baksverzlana af smámyndum
af skærbláum fjöllum eða ljós-
hærðum fyrirsætum og stæl-
mennum í nýjustu gerðum
sportbíla.
Framleiðendurnir segja, að
þessi nýbreytni hafi tilætluð
áhrif.
FV 1 1972
7