Frjáls verslun - 01.01.1972, Blaðsíða 61
hefur samband við áskrifendur.
Hún vinnur auk þess að niður-
röðun efnis í blaðið og útliti
þess í samráði við ritstjóra.
Auður Sigurjónsdóttir sér um
ýmis konar útréttingar fyrir
blaðið úti í bæ. Hún vinnur
við innheimtu og greiðslu reikn-
inga og er í ferðum milli prent-
smiðju og skrifstofu blaðsins.
Þetta er engan veginn tæm-
andi kynning á því starfi sem
fram fer hjá Frjálsri verzlun
á Laugavegi 178. Það er mun
umfangsmeira en svo að því
verði lýst í stuttri grein. Ef les-
endur blaðsins hafa áhuga á að
kynnast því betur eru þeir allt-
af hjartanlega velkomnir.
Starfslið Frjálsrar verzlunar í morgunheimsókn á skrifstofu
framkvœmdastj órans.
Athygli útgerðarmanna er vakin á því, að Samábyrgðin tekur nú að sér
Ábyrgðartryggingar útgerðarmanna.
Slysatryggingar sjónianna.
Farangurstryggingar skipsliafna.
Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir umboðsmenn vorir veita allar
nauðsynlegar upplýsingar varðandi tryggingar þessar og taka á móti trygg-
ingarbeiðnum.
Vélbátafélagið Grótta, Reykjavík,
Vélbátaábyrgðarfélag Akurnesinga, Akranesi,
Bátatrygging Breiðafjarðar, Stykkishólmi,
Vélbátaábyrgðarfélag ísfirðinga, ísafirði,
Vélbátatrygging Eyjafjarðar, Akureyri,
Skipatrygging Austfjarða, Neskaupstað,
Vélbátaábyx-gðarfélagið Hekla, Stokkseyri,
Vélbátatrygging Reykjaness, Keflavík.
FV 1 1972
57